Skessuhorn - 17.10.2007, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER
Táknræn mynd fyrir það sem getur gerst ef hálkuvörnin er ekki í lagi.
Nýtt æði virðist vera að ryðja sér til rúms hjá
unglingum um allt land og eru krakkarnir í
Grunnskóla Snæfellsbæjar engin undantekning þar
á. Unglingarnir hafa fengið sér sportskó og á hæl
skósins er hjól. Þeir geta síðan rennt sér á hjólinu og
svo þegar leiknum er lokið er því bara smellt upp .
Þessi unga dama var einmitt að rúlla sér á slíkum
skóm þegar lósmyndara Skessuhorn bar að og sagði
hún að „þetta væri æði!“
af
Sveitarstjórn Borgarbyggðar
hefur samþykkt að óháður aðili
meti eignarhlut sveitarfélagsins
í Orkuveitu Reykjavíkur. Páll S.
Brynjarsson sveitarstjóri segir þetta
ekki vera af því að sveitarfélagið
ætli að fara að selja sinn hlut í
OR. Í ljósi allar þeirrar umræðu
sem farið hefur fram undanfarna
daga um sölu á eignarhlutum í
orkufyrirtækjum er ekki nema von
að fólk spyrji sig hvort Borgarbyggð
ætli að selja sinn hlut í fyrirtækinu.
Páll segir svo ekki vera þótt
sveitarstjórn hafi samþykkt að fá
óháðan aðila til að meta eignarhluta
Borgarbyggðar í OR. „Við erum
einfaldlega að skoða hvar við
stöndum og hvað sveitarfélagið á,
hver eignarhluturinn er, ekki með
sölu í huga. Sveitarstjórnarmenn
eru sammála um að best sé að
eiga hlut í Orkuveitu Reykjavíkur.
Til stendur að skoða hvernig
sveitarfélagið stendur best að rekstri
almannaþjónustu í veitumálum og
teljum að best muni sveitarfélagið
þjóna íbúum sínum með því að
eiga hlut í OR, sem er alhliða
veitufyrirtæki,“ sagði Páll.
bgk
Capacent Gallup vann í sumar
könnun fyrir Vegagerðina um
viðhorf almennings til þjóðvega
landsins. Könnun af þessu tagi er
gerð reglulega tvisvar á ári, sumar
og vetur. Meðal annars var spurt
um hvar fólk vildi helst sjá úrbætur
á þjóðvegum landsins. Mikill
meirihluti vildi breikka vegina
en gefnir voru sex valkostir til að
velja úr. Svarmöguleikarnir voru
að auka við bundið slitlag, bæta
málun á bundnu slitlagi, fjölga
viðvörunarmerkjum, slétta vegi,
breikka vegi eða nefna eitthvað
annað sem viðkomandi vildi bæta
á þjóðvegum landsins. Ríflega 60%
vildu breiðari vegi, innan við 20
prósent voru á því að auka þyrfti
bundið slitlag, rúm sjö prósent vildu
slétta vegi, tæp fimm af hundraði
vildu fækka eða útrýma einbreiðum
brúm og um átta prósent sögðu
eitthvað annað. Eftir þessu að dæma
fjölgar þeim stöðugt sem vilja sjá að
vegir breikki.
bgk
Miklar framkvæmdir hafa
staðið yfir í sumar við Samkaup
í Grundarfirði. Þar er nú
unnið að stækkun versluninnar,
eins og fram hefur komið í
Skessuhorni. Jafnframt er N1 með
bensínafgreiðslu á planinu. Margir
Grundfirðingar hafa undrað sig
á af hverju bensín og olíuverð
hefur ekki verið lækkað á meðan á
framkvæmdum stendur eins og oft
er gert þar sem framkvæmdir eru
í gangi og aðgengi viðskiptavina
minnkar samhliða þeim. Einn íbúi í
Grundarfirði sagði við Skessuhorn
að það hafi á stundum verið erfitt
að komast að bensíndælunum.
„Það liggur við að maður hafi þurft
sérútbúinn fjallajeppa til að geta
tekið bensín,“ sagði hann í samtali
við blaðamann.
Gunnar Ragnarsson, verslunar
stjóri Samkaupa, sem sér einnig um
þjónustu viðskiptavini N1, sagði
í samtali við blaðamann að nú sé
þriggja króna framkvæmdaafsláttur
á bensíni og olíu hjá N1 í
Grundarfirði. „Við erum að selja
líterinn af bensíni á 122 krónur og
olíu á 123 krónur, en ég á eftir að
setja upp skilti sem sýnir að það sé
afsláttur í gangi,“ sagði Gunnar sl.
fimmtudag. Hjá Skeljungi í Ólafsvík
fengust þær upplýsingar sama dag
að bensínverð væri 124,20 krónur
og verð á olíulítra væri 126,70 kr. í
sjálfsafgreiðslu.
af
Hjónin Kristín Benediktsdóttir og Gestur Hólm
Kristinsson róa saman á bátnum Hólmarinn SH frá
Stykkishólmi. Gera þau út á haukalóð, en það er lína
sem beitt er fyrir stórlúður. Eru krókarnir á haukalóðinni
talsvert stærri og öflugri en á hinni hefðbundnu línu og
lengra er á milli króka. Kristín segir í bryggjusamtali
við Skessuhorn að þau hafi byrjað róðra með haukalóð í
byrjun september aðallega til þess að spara kvótann, en
lúðan er utan kvóta eins og margir vita. „Svo er þetta
árátta hjá karlinum,“ segir Kristín brosandi og heldur
áfram: „Við höfum farið 11 róðra út á Bjarneyjarál og
fengið fjórar lúður sem hafa verið yfir 100 kíló að þyngd
auk nokkurra sem er á bilinu 50 til 60 kíló. Við beitum
línuna sjálf annaðhvort í landi eða úti á sjó, en það fer
náttúrulega eftir veðri hvort hægt er að beita úti á sjó.
Veður hefur hrjáð okkur mikið að undanförnu,“ sagði
Kristín.
„Við höfum fengið tvær ýsur á haukalóðina og það
hefur komið okkur á óvart. Það er algengt að við fáum
100 til 150 kíló af þorski í hverjum róðri og það er ekki
alltaf stórir þorskar sem bíta á,“ bætir hún við.
Þau hjón hafa róið saman í eitt ár. Kristín vann áður
í sundlauginni í Stykkishólmi og ákvað að fara með
bónda sínum á sjóinn. „Það líkar mér bara mjög vel og
okkur líður mjög vel saman á sjónum. Við róum á línu á
veturna og erum svo á skaki á sumrin. Við fórum í fyrra
á Skagaströnd og rérum út á Hornbanka og fengum 24
tonn í fimm róðrum. Það var skemmtilegur tími,“ segir
Krístín að lokum. af
Selur hálkuvörn á flísar
og sleip gólf
Hjónin Eyjólfur M Eyjólfsson og
Hugrún Sigurðardóttir á Akranesi
hafa stofnað fyrirtækið Á föstum
fótum ehf. Verkefni þeirra í upphafi
er að kynna og selja hálkuverjandi
efni sem borið er á fleti sem blotna
og verða hálir, svo sem flísalögð
gólf, sturtubotnar og baðkör, eða
almennt þau svæði sem hætta er á
að fólk renni til og geti slasað sig.
Fyrirtækið er nýlega stofnað en
áætlanir Eyjólfs felast í að hann
hætti smám saman annarri vinnu
og sinni einvörðungu sölu og
meðhöndlun efnisins Sure step sem
hann hefur fengið einkasöluleyfi
fyrir hér á landi.
Eyjólfur hefur undanfarið
hálft annað ár starfað í sölu
og markaðsdeild Skagans hf. á
Akranesi. Hann er menntaður
fiskitæknir og sem slíkur hefur
hann m.a. starfað sem verkstjóri
í frystihúsum og sem sjálfstætt
starfandi eftirlitsmaður og ráðgjafi
í fiskvinnslu. „Ég hef í starfi mínu
orðið var við mikið af ískyggilega
blautum og hálum gólfum á
vinnustöðum. Það hafði blundað
í mér að stofna eigin fyrirtæki og
þegar ég rakst af tilviljun á kynningu
á efninu „Sure step“ aflaði ég mér
einkaumboðs hér á landi fyrir
það. Það er skemmtilegt að segja
frá því að efnið er kanadískt og er
það Vestur Íslendingur sem heitir
Sigurður Franklín sem fann það
upp.“
Eyjóflur segir að efnið sem um
ræðir sé litlaust efni sem borið er
á hála fleti og verða þeir stamir
eftir meðhöndlun. Efnið á t.d. við
á keramikflísar, baðkör, sturtubotna
og steinsteypt lökkuð gólf. Þá er
búið að þróa efni sem hægt er að
bera á plastfleti, stál og trégólf.
Efnið er hinsvegar ekki hægt að
kaupa í verslunum því það krefst
sérfræðiþekkingar í meðhöndlun,“
segir Eyjólfur.
Aðspurður um kostnað við að
láta meðhöndla hála fleti, segir
Eyjólfur að það kosti 5000 krónur
að setja efnið á sturtubotn eða
baðkar og er þá bæði efni og vinna
innifalið. Síðan kostar það um
1000 krónur á fermetra að bera
efnið á gólf. Endingartímann segir
Eyjólfur verða um 5 ár á baðkör en
um eitt ár á slitfleti þar sem mikið
mæðir á svo sem á vinnustöðum.
„Framtíðarsýn mín er að geta lifað
af því að selja efnið og meðhöndla
það. Ég hef áhuga á því að vinna
við þetta og eiga um leið þátt í að
fækka hálkuslysum hér á landi,“
sagði Eyjólfur M Eyjólfsson.
mm
Eyjólfur sýnir blaðamanni hvernig efnið gjörbreytir hálkustuðli á keramikflís.
Hjón saman á lúðuveiðum
Kristín og Gestur með tvær vænar lúður. Sú stærri er 140 kíló en
sú minni um 37 kíló. Er lúðan seld á fiskmarkaði og verðið er á
bilinu 670 til 800 krónur fyrir kílóið.
Þriggja króna
framkvæmda
afsláttur hjá N1
Miklar framkvæmdir eru í gangi hjá Samkaupum og stundum erfitt að komast að
bensíndælum N1 stöðvarinnar.
Flestir vilja breiðari vegi
Mat á hlut
Borgarbyggðar í OR
Hjólaskór