Skessuhorn - 14.07.2010, Blaðsíða 14
Ólafsdalsfélagið stefnir að því að í
Ólafsdal verði:
• fræðslu- og nýsköpunarsetur um
sjálfbærni í búskaparháttum, hefð-
bundið íslenskt handverk og mat-
argerð, auk rannsókna á menningar-
landslagi og náttúru svæðisins. Þar
verði haldin námskeið og ráðstefnur
er tengjast áðurgreindum þáttum.
Áhersla verður lögð á þætti sem
tengjast Breiðafirði sérstaklega.
• sýningaraðstaða og aðstaða fyr-
ir fundi og ráðstefnur sem tengjast
markmiðum setursins. Einnig verði
þar aðstaða fyrir fræðafólk, kenn-
ara, listamenn sem óska eftir eða er
boðið að dvelja á staðnum í skamman
tíma.
• fræðandi menningarferðaþjón-
usta og veitingasala þar sem boðið
verði upp á mat og drykk sem hefur
orðið til á staðnum, eða er fenginn
úr Breiðafirði og umhverfi hans.
Auk þess verði boðið upp á leiðsögn
í gönguferðum á fornum þjóðleiðum,
við fuglaskoðun, plöntuskoðun og
hlunnindanýtingu.
• Í þessu skyni hefur félagið tekið
upp samstarf við sveitarfélög, söfn,
háskóla og íbúa á svæðinu, auk fræði-
manna og listamanna.
• Ólafsdalshátíð verður haldin ár-
lega.
Gakktu til liðs við Ólafsdals-
félagið og taktu þátt í endurreisn
Ólafsdals.
Margar hendur vinna létt verk!
Hægt er að skrá sig í Ólafsdals-
félagið á olafsdalur@olafsdalur.
is eða í s. 693-2915 (Rögnvaldur).
Einnig á opnunartíma í Ólafsdals í
sumar. Árgjald er 5.000 kr.
Í stjórn Ólafsdalsfélagsins eru:
Bjarni Guðmundsson, prófessor
Guðrún Hallgrímsdóttir, matvæla-
verkfræðingur
Halla Steinólfsdóttir, bóndi (varafor-
maður).
Ingveldur Guðmundsdóttir, bóndi
(gjaldkeri).
Rögnvaldur Guðmundsson, ferða-
málafræðingur (formaður).
Sigríður H. Jörundsdóttir, sagnfræð-
ingur (ritari).
Sumarliði Ísleifsson, sagnfræðingur.
Svavar Gestsson, fyrrverandi ráð-
herra.
Torfi Markússon, rekstrarfræðingur.
Þórður Magnússon, rekstrarhagfræð-
ingur.
24.- júlí - 8. ágúst 2010
Myndlistarsýning í Dölum og
Reykhólahreppi.
Sýningarstaðir: í Ólafsdal, í
Króksfjarðarnesi, að Nýp á
Skarðsströnd og að Röðli á
Skarðsströnd.
Sýningin kallast á við sýningarnar
Dalir og Hólar 2008 og 2009 að því
leyti að hún hefur að markmiði að
taka þátt í mannlífi svæðisins, efna
til samstarfs við heimamenn og leiða
sýningargesti í ferðalag um þetta fjöl-
breytta og fallega svæði. En hún kall-
ast jafnframt á við ákveðna alþjóðlega
hefð innan myndlistarinnar. Það sem
listamennirnir sýna er nokkuð sem
kalla mætti ferðateikningar; teikn-
ingar sem skrásetja eða segja frá
ferðalagi á einhvern hátt – hugleiðing,
hugmynd eða raunveruleg ferð sýnd
– fjalla um ferðalagið og/eða staðina
sem farið er til. Grundvöllur sýning-
arinnar er þannig í anda ákveðinnar
hefðar sem listamenn eins og Coll-
ingwood og Ásgrímur Jónsson voru
hluti af svo dæmi sé tekið, en báðir
gerðu þeir teikningar á ferðum sínum
um landið. Við Breiðafjörð og í Döl-
um hafa margir listamenn sögunnar
og samtíðarinnar slitið barnsskónum
eða unnið lífsverk sitt. Svæðið býr
yfir fjölskrúðugri náttúru, fjölbreyttu
dýralífi, menningu og sögu, sem
enn er ótæmandi uppspretta nýrra
verka og nýsköpunar í listum. Sýn-
ingarstjórn: Kristinn G. Harðarson,
Þóra Sigurðardóttir og Helgi Þorgils
Friðjónsson. Sýningin er styrkt af
Menningarráði Vesturlands, Menn-
ingarráði Vestfjarða, Ólafsdalsfélag-
inu, Kulturkontakt Nord og Statens
Kunstråd (Dk.).
Sýnendur:
Anna Guðjónsdóttir f. 1958
Fyrir sýninguna Dalir og Hólar
2010 hefur Anna unnið teikningar
út frá ferðalýsingum og frásögnum af
svæðinu við Breiðafjörð, í Dölum og
Reykhólahreppi.
Anne Thorseth f. 1952
Verk Anne á sýningunni Dalir og
Hólar 2010 eru út frá skissum og
ljósmyndum sem Anne hefur unnið á
gönguferðum sínum við Breiðafjörð.
Anne hefur verið tíður gestur á Ís-
landi síðan 1994 og hefur nýtt áhrif
frá landslagi og víðáttu í verkum sín-
um.
Dagbjört Drífa Thorlacius f. 1980
Vegna sýningarinnar Dalir og
Hólar 2010 hefur Dagbjört lagt í
ferðalag um sveitina – á kunnugar
heimaslóðir sínar – og heimsótt
unga bændur. Ferðalagið á sér stað
í miðjum sauðburði þar sem, eins og
gefur að skilja, eru miklar annir. Út-
koman verður efni sýningarinnar.
Helgi Þ. Friðjónsson f. 1953
Fyrir sýninguna Dalir og Hólar
2010 hefur Helgi Þorgils unnið
að 3 verkefnum: Hann hefur haft
skissubókina með og skrásett ferð út
í Breiðafjarðareyjar fyrstu helgina
í maí, þegar hann hefur tínt egg
og fleira gómsætt ásamt vinum og
vandamönnum og gert veislu úr því.
Annað verkefni er skrásetning rústa
gamla bæjarins að Ytra-Felli á Fells-
strönd í vinnubækur og þriðja verk-
efnið er skrásetning göngu frá Kjall-
aksstöðum yfir fjallveg, að kirkjunni
á Skarði,
Kristinn G. Harðarson f.1955
Kristinn sýnir teikningar gerðar á
sl. þremur árum á ferðum hans um
Dalasýslu og þá aðallega um Skarðs-
strönd og Gilsfjörð. Þetta eru lands-
lagsmyndir unnar með vatnslit og
ýmiss konar teiknáhöldum
Kristín Rúnarsdóttir f. 1984
Kristín hefur lagt ákveðna áherslu
á teikningu í vinnu sinni. Meðal
viðfangsefna hennar eru tengsl fag-
urfræði og hagnýti. Teikningin er
þá að vissu leyti notuð sem tæki til
að skrásetja/kortleggja umhverfi og
hugarheim.
Þorri Hringsson f. 1966
Undanfarin ár hefur Þorri aðallega
sótt myndefni sitt í Aðaldal í Þingeyj-
arsýslu þar sem hann hefur vinnuað-
stöðu. Verkefni sýningarinnar Dalir
og Hólar 2010 eru unnin út frá um-
hverfi Breiðafjarðar og nágrennis
og er þetta í fyrsta skipti sem hann
glímir við landslag utan Þingeyj-
arsýslunnar.
Nánari upplýsingar á
www.nyp.is/dalirogholar2010
Dalir og Hólar - ferðateikningar
Sverrir Markússon, f. 16/8
1923- d. 28/11 2009
Sverrir Markússon frá Ólafs-
dal lést í nóvember síðast-
liðnum. Hann var síðasta eft-
irlifandi barnabarn Torfa og
Guðlaugar í Ólafsdal og virtur
dýralæknir þar til hann lét af
störfum. Sverri var mjög annt
um Ólafsdal og minningu afa
síns og ömmu og beitti sér
lengi fyrir því að önnur ætt-
menni og stofnanir sinntu
staðnum betur en raun varð
á. Það gladdi því Sverri mjög
að endurreisn Ólafsdals skuli
nú loks hafin. Mætti hann
af því tilefni á fyrstu Ólafs-
dalshátíðina árið 2008. Ólafs-
dalsfélagið þakkar Sverri fyr-
ir hans þátt í varðveislu sög-
unnar um Ólafsdal og vottar
aðstandendum hans innlegar
samúðarkveðjur.
MinningÓlafsdalur, frumkvöðlasetur 21. aldar
– framtíðarsýn Ólafsdalsfélagsins
Mynd úr seríunni um unga bændur, fædda eftir 1980. Dagbjört Drífa Thorlacius.
Ský yfir Bröttubrekku. Mynd eftir Þorra Hringsson.
Lagt á ráðin um framkvæmdir í Ólafsdal sumarið 2009. Nikulás Úlfar
Másson frá Húsafriðunarnefnd lengst til vinstri, Hjörleifur Stefánsson
arkitekt, Bogi Kristinssson byggingarfulltrúi Dalabyggðar og Jóhannes
Stefánsson smiður.
Sverrir í Ólafsdal 2008
Unga fólkið kann vel að meta Ólafsdal. Frá Ólafsdalshátíð 2009.
Dalabyggð