Skessuhorn


Skessuhorn - 08.12.2010, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 08.12.2010, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER Það verð ur varla ann að sagt um Har ald Magn ús son bónda í Belgs­ holti í Mela sveit en hann sé með fram taks sam ari bænd um. Har ald ur var með al þeirra fyrstu sem reyndu fyr ir sér í korn rækt á Vest ur landi og hef ur ver ið að þróa þá rækt un og vinnslu, með al ann ars sáði hann bæði fyr ir hveiti og repju á liðnu sumri auk byggs ins. Þau Belgs­ holts hjón, Har ald ur og Sig rún Sól mund ar dótt ir, fóru út í rækt­ un skjól belta á sín um tíma og eru þátt tak end ur í lands hluta verk efn­ inu Vest ur lands skóg ar. Að und an­ förnu hef ur Har ald ur svo unn ið að og und ir bú ið upp setn ingu á vind­ myllu í Belgs holti, þeirri fyrstu sem sett er upp á Ís landi. Henni er ætl að að fram leiða orku fyr ir heim ili og bú rekst ur og um framork an fari til sölu hjá Rarik. Har ald ur ætl ar þar með að nýta vind belg ing inn, sem á drjúg um köfl um er við var andi þarna niðri við sjó inn í Mela sveit­ inni, sér og sín um til hags bóta. Fædd ist í gamla hús inu Har ald ur er einn átta barna þeirra fyrr um bænda í Belgs holti, Magn­ ús ar Ó lafs son ar og Önnu Þor varð­ ar dótt ur. Þau Belgs holts systk ini eiga ekki langt að sækja dugn að inn, for eldr ar þeirra ann ál að dugn að ar­ fólk. Með al ann ars var Magn ús sem í lang an tíma seldi möl og sand til hús bygg inga og fram kvæmda, að­ al lega til nær sveita og Akra ness, þekkt ur fyr ir það að moka sjálf­ ur á hönd um efn inu upp á GMC og Vol vo vöru bíl inn, þang að til á mokst urstæk in komu til sög unn ar. „Ég er einn minna systk ina fædd ur hérna í Belgs holti, fædd­ ist í gamla hús inu sem byggt var 1912. Ég var hérna heima við öll upp eld is ár in og sjálf sagt hef ur það alltaf blund að í und ir með vit und­ inni að verða bóndi. Þeg ar ég ólst upp var far skóli hér í sveit inni, til skipt is hérna í Belgs holti eða á Leirá eða Leir ár görð um. Heið­ ar skóli var tek inn í notk un þeg­ ar ég var 12 ára gam all og þar var ég í heima vist í þrjá vet ur, lauk það­ an svoköll uðu ung linga prófi eft ir tveggja vetra nám á gagn fræða stigi. Haust ið eft ir, 1968, fór ég í Reyk­ holt og lauk það an gagn fræða prófi vor ið 1970. Þetta sum ar var fað ir minn að byggja stórt og mik ið fjós, enda var hann á þess um tíma að hætta efn is söl unni og að breyta úr blönd uðu búi yfir í mjólk ur fram­ leiðslu. Ég var heima þetta sum­ ar og fram á mitt sum ar, 1971, að ég fór að vinna á ver tíð inni í Hval­ stöð inni. Ég var svo í Hval stöð inni tvö næstu sum ur, en kom svo heim og vann hér heima að bú inu sum­ ar ið 1974. Þá vor um við Sig rún tek in sam an og við á samt for eldr­ um mín um stofn uð um fé lags bú um ára mót in 1974­´75.“ Dýr veg vís ir Har ald ur seg ir að jörð in hafi ver­ ið bæri lega hýst þeg ar fjós bygg­ ing in var að baki, en þeir feðgarn­ ir þó ráð ist í bygg ingu 200 fer metra véla geymslu 1978 og síð an 1984 var byggð ur hey metis turn, sem setti mik inn svip á Belgs holts býl­ ið. „Turn inn var í notk un í tíu ár, en síð an kom hann eig in lega mest að gagni sem veg vís ir. Ég hef sagt að hann hafi ver ið dýr asti veg vís ir á land inu. Í stór viðr um sem gengu yfir land ið haust ið 2007 varð hann fyr ir skemmd um og þá var ekki beð ið boð anna með að rífa hann.“ Belg holts bú ið er all stórt mjólk­ ur bú, tæp ar 50 kýr mjólk andi og alls eru þar í fjósi um 180 grip ir. Har ald ur seg ir jörð ina land mikla og góða til bú skap ar. Magn ús fað ir hans stóð í mikl um rækt un ar fram­ kvæmd um á sjö unda ára tug lið inn­ ar ald ar. Þá voru slægj ur þurrk að ar með kíl ræs ingu og síð an ræst fram með skurð um. Enn frek ari jarð ar­ bæt ur voru síð an gerð ar í fram hald­ inu. Um fangs mik il korn rækt Har ald ur byrj aði í korn rækt inni 1996 og síð asta sum ar sáði hann í 65 hekt ara. Hann seg ir korn ið nýt­ ast mjög vel í fóð ur bæti fyr ir kýrn ar og það sem um fram er hef ur hann selt með al ann ars Öl gerð inni Agli Skalla gríms syni til bjór gerð ar. Þar hef ur ís lenska bygg ið ver ið nýtt með því inn flutta þang að til á liðnu sumri að Öl gerð in fram leiddi bjór ein göngu úr bygg inu frá Belgs­ holti. Eins og Skessu horn greindi frá var þessi bjór kynnt ur á að al­ fundi Land sam taka skóg ar eig anda í mót töku á Fitj um í Skorra dal í haust. Þessi bjór hef ur þótt mjög góð ur og ekki síst hef ur kven þjóð­ inni lík að hann vel, finnst mörg um eft ir bragð ið af hon um mýkra en af venju leg um bjór. Har ald ur seg ir að hann hafi ver ið tals vert í því að kynna þenn an bjór að und an förnu, en hann fer síð an í fram leiðslu snemma á næsta ári sem þorra bjór. „Þeg ar ég byrj aði í korn rækt inni, súrs aði ég korn ið til að byrja með í stór sekki, en nennti því svo ekki og fékk Borg arplast til að fram leiða fyr ir mig plast t anka und ir korn ið. Ég fór síð an út í að byggja þurrk­ un ar stöð 1999 og not aði þá plast s­ ekk ina sem ílát und ir þurrk að korn, með al ann ars sem fer í bjór gerð ina. Þurrk un ar stöð in hef ur reynst mjög vel og að mínu mati er það al gjör grund völl ur fyr ir fram leiðslu korns að hafa góða þurrk un ar að stöðu. Ég hef síð an ver ið að prófa aðr ar teg und ir í sán ingu. Síð asta sum ar sáð um við hveiti í þrjá hekt ara og feng um fjög urra tonna upp skeru af hverj um hekt ara. Kon an hef ur próf­ að að baka úr hveit inu eft ir að hún fann að ferð til að mala hveitikorn­ ið og gefst það vel. Síð an sáði ég repju fræj um í rúma fimm hekt ara og er þar að gera til raun ir. Ég sáði þrem ur af brigð um á fjór um sán­ inga tíma bil um, því fyrsta 12. júlí og það sein asta 5. á gúst. Ráð lagt er að sá ekki fyrr fyr ir repj unni, þar sem hún er fjöl ær jurt og kem ur ekki til upp skeru fyrr en næsta haust. Ef sáð er fyrr er hætt an sú að hún fari í blóma und ir haust. Litlu mun aði að það gerð ist í því grósku mikla sumri sem var núna síð ast, enda sló ég þá tún in þrisvar og þau voru samt orð­ in loð in fyr ir vet ur inn. Ég stefni á að repjan komi til með að út vega mér olíu til að knýja vél ar bús ins að hluta, og hrat ið til prótein gjafa í fóð ur og búið verði því enn sjálf­ bær ara en það er í dag.“ Veð ur stöð in kveikti hug mynd ina En repju rækt in er ekki eina til­ rauna verk efn ið sem Har ald ur stend ur í. Núna í vik unni á hann von á út gáfu bygg ing ar leyf is vegna upp setn ing ar vind myllu í landi Belgs holts. Einnig er á næst unni von stað fest ing ar á af greiðslu vind­ myll unn ar frá verk smiðju í Krist i­ an stad í Sví þjóð, sem Har ald ur býst við að komi hing að til lands í febr ú­ ar mán uði. Það er Sig rún Sól mund­ ar dótt ir hús freyja sem á orð ið þeg­ ar talið berst að vind myll unni. „Það má segja að veð ur stöð in sem ég gaf hon um í 50 ára af mæl is­ gjöf í júlí 2003, hafi ver ið kveikj an að þess ari hug mynd að reisa hérna vind myllu. Har ald ur hef ur alltaf ver ið svo mik ill á huga mað ur um veð ur að mér fannst það al veg grá­ upp lagt að gefa hon um veð ur stöð í af mæl is gjöf.“ Veð ur stöð in er tengd við tölvu Har ald ar sem skrá ir all ar upp lýs­ ing ar frá henni jafn óðum, og sá hann þá fljót lega að vind ur inn var ó trú lega stöð ug ur, bæði frá landi og hafi; þótt til tölu lega lygnt væri á heit um sum ar dög um, gætti jafn­ an haf gol unn ar hluta dags ins. „Það var þessi út koma sem mér fannst benda til þess að upp setn ing vind­ myllu gæti reynst hag stæð. Eft ir að hafa tek ið sam an upp lýs ing ar um veðr ið í þrjú ár setti ég mig í sam­ band við Sig urð Inga hjá Orku setri Ís lands á Ak ur eyri, sem einnig hef­ ur sýnt vind myll un um á huga. Hon­ um fannst þess ar nið ur stöð ur á lit­ leg ar og hvatti mig til að fara út í verk efn ið. Sig urð ur Ingi benti mér á að hafa sam band við verk smiðj­ urn ar Hann evind í Sví þjóð og það­ an á ég von á bún aði í vind myllu í febr ú ar mán uði.“ Spenn andi til rauna verk efni Har ald ur fær vél bún að inn og spað ana frá verk smiðj un um á samt teikn ing um af mastr inu sem hann læt ur smíða hér heima. „Ég held það sé hag kvæmt fyr ir mig að láta smíða burð ar virk ið hérna heima, þannig verð ur þetta held ur ó dýr­ ara, auk þess að hér nýt ist vinnu­ afl. Það eru hæg heima tök in þar sem að tengda son ur minn, Sveinn Rún ar Þór ar ins son hjá Vík ur vögn­ um, er vél smíða meist ari og suðu­ mað ur góð ur,“ seg ir Har ald ur. Hann á ætl ar að vind myll an upp­ kom in kosti um tíu millj ón ir króna. Vegna þessa til rauna verk efn is fékk Har ald ur 1,5 millj óna króna styrk frá Orku sjóði og einnig fram lag frá Fram leiðni sjóða land bún að ar­ ins eins og smærri bænda virkj an ir hafa feng ið. Stærst an hluta kostn­ að ar ber hann þó sjálf ur. Á ætl að er að vind myll an fram leiði 30 kw þeg­ ar vind ur er 10 metr ar á sek úndu. Ork an verð ur fyrst og fremst not uð fyr ir heim ili og bú í Belgs holti, þó ekki til hús hit un ar þar sem heim il­ ið er hit að upp með vatni frá hita­ veitu. Um framork an mun fara inn á net Rarik, en lít ið verð fæst fyr ir hana þar sem hún er skil greind sem ó trygg orka. „Þeir hjá Orku setr inu munu fylgj ast vel með verk efn inu og upp lýs ing ar um hvern ig því reið­ ir af verða hugs an lega að gengi leg­ ar á net inu,“ seg ir Har ald ur. Þeg­ ar við spjöll um um þetta spenn­ andi til rauna verk efni, er m.a. rætt um mögu leika ef vind myll an reyn­ ist vel hér á landi. Gætu slík ar vind­ myll ur t.d. nýst vel til hús hit un ar á köld um svæð um eins og Snæ fells­ nesi? Har ald ur seg ir að það sé vel hugs an legt og þá með því að tengja hana beint inn á hita túburn ar, með stór um auka vatns geymi sem þá yrði að vera ein angr að ur. „Það yrði þá el em ent í tönk un um sem stýrði því að heim il is raf magn ið tæki við kynd ing unni þeg ar ork an frá myll­ unni þryti,“ seg ir Har ald ur og Sig­ rún skýt ur inn í: „ Kannski þú eig ir þá eft ir að koma á þannig stýr ingu hérna.“ „Ja, það er aldrei hægt að setja neinn enda punkt við fram tíð­ ina,“ sagði Har ald ur þá. Og það lát­ um við verða loka punkt inn á þess­ ari heim sókn í Belgs holt. þá Ætl ar að nýta vind belg ing inn til orku öfl un ar Har ald ur Magn ús son í Belgs holti ætl ar að gera bú sitt enn sjálf bær ara Sænsk ar vind myll ur af sömu gerð og Har ald ur í Belgs holti hef ur nú keypt. Har ald ur við holt ið norð an Belgs holts þar sem vind mill an verð ur stað sett. Horft til norð urs yfir jörð ina í Belgs holti. Ljósm. Mats Wibe Lund. Har ald ur Magn ús son og Sig rún Sól- mund ar dótt ir bænd ur í Belgs holti við kynn ingu á bjórn um úr Belgs holts- bygg ingu á Fitj um í haust.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.