Skessuhorn - 19.10.2011, Qupperneq 13
Föstudagur 21.október
Kl. 14:00 Lambhrútasýning í Norðurhólfi og opin fjárhús í Klifmýri á
Skarðsströnd.
Að Klifmýri mæta til leiks best dæmdu lambhrútar í Norðurhólfi og gefst okkur
gott tækifæri til að koma og líta á þá, jafnvel fá aðeins að pota og þukla þá og
dæma eftir okkar ágæta höfði.
Að Klifmýri eru hefðbundin fjárhús með landnámsgörðum, en settar hafa verið
upp gjafagrindur í hlöðunni.
Hrútadómarar verða að vanda þeir Jón Viðar Jónmundsson og Lárus G.
Birgisson.
Kl. 19:30. Er svo komið að hinni geysivinsælu sviðaveislu, hagyrðingum
og harmonikkudansleik
Í boði verða köld svið, söltuð svið, reykt svið, sviðalappir og fl. tengt sviðaveislu.
Hagyrðingar verða Helgi Björnsson Snartarrstöðum, Jóhannes Sigfússon
Gunnarsstöðum, Pétur Pétursson (betur þekktur sem Stera Pétur), Guðrún
Jónína Magnúsdóttir Smábæ í Borgarfirði, Helga Guðný Kristjánsdóttir Botni í
Súgandafirði.
Stjórnandi verður Bjarni Harðarsson.
Um harmonikkudansleik sér hinn eini sanni og síungi Geirmundur Valtýsson
ásamt sínum strákum. Já nú skal sko dustað rykið af gömlu og góðu dans-
skónum, 16 ára aldurstakmark á dansleik.
Miðapantanir á sviðaveislu hjá Gunnu á Háafelli í síma: 866-5194 eða
434-1368 Frá kl: 9 - 13, dagana 13. – 18. okt. 2011
Aðgangseyrir er 4.000 krónur.
Laugardagur 22. október
Kl. 10:00 Lambhrútasýning í Suðurhólfi og opin fjárhús að Hömrum í
Haukadal
Þar mæta til sýnis og dóms best dæmdu lambhrútar í suðurhólfi. Endilega
komið, brettið upp erm-
arnar og þuklið aðeins á
þessum gripum og vitið
hvort þið séuð sammála
endanlegum dómum sem
kveðnir eru upp af þeim
Jóni Viðari og Lárusi.
Á Hömrum eru hefðbund in
fjárhús með görðum, nýtt
gólf er á öllum húsunum
- allt plastað.
Kl. 10:00 Opna UDN hrútamótið í innanhúsknattspyrnu að Laugum í
Sælingsdal
Þar er öllum frjálst að mæta með sitt lið og sýna getu, færni og prúðmennsku
sinna manna.
Skráningargjald á hvert lið verða 4000 kr. Allar nánari upplýsingar og skrán-
ing er hjá Ásbirni í síma 691-3393 og hjá Kristjáni Gauta í síma 844-7247.
Reiðhöll opnar kl.13:00
Kl. 14:00 Meistaramót Íslands í rúningi
Þar leiða saman klippur sínar heitustu og sveittustu rúningsmenn og konur
landsins. Nú er bara að spíta í lófana, brýna kambana, skrá sig og það kemur
í ljós hvar þú stendur meðal okkar fremstu klippara. Vegleg verðlaun eru í boði
fyrir þann besta.
Skráningar þurfa að berast í síðasta lagi 18. október til Hönnu Siggu á
netfangið hannasigga@audarskoli.is eða Jón Egill í síma 848-8918 eða
á netfangið jonegillj@visir.is, úrslit og verðlaunaafhending að keppni
lokinni.
Kl.13:00 Ullarvinnsla
Þar sem konur úr Dölum verða með sýningu á ullarvinnslu og hægt verður að
taka í rokk!
Kl.13:00- 15:30 Prjónasamkeppni FSD
Prjónasamkeppnin verður nú í þriðja sinn í tengslum við haustfagnað FSD fyrsta
vetrardag. Sú breyting verður nú á að keppt verður í tveimur flokkum. Flokki
fullorðinna og auk þess flokki barna 16 ára og yngri. Í ár snýst keppnin um að að
prjóna fylgihluti og að sjálfsögðu úr íslenskri ull.
Þá er bara að láta hugmyndaflugið njóta sín, taka fram
prjónana og hefjast handa.
Skráning í prjónasamkeppnina verður í
Reiðhöllinni.
Úrslit verða kynnt í samstarfi við Ístex um kl 16:00 og
eru vegleg verðlaun fyrir frumlegustu flíkurnar.
Kl. 13:00 Vélasýning
Þar koma saman nokkur fyrirtæki og sýna okkur helstu
og nýjustu tæki og tól sem viðkoma landbúnaðarstörfum.
Kl. 13:00 Markaður opnar.
Þar sem verður meðal annars til sýnis og sölu kaffi, málverk, skartgripir og
ullarvörur, svo eitthvað sé nefnt. Endilega ef þú lumar á einhverju sem þú vilt
losna við og mögulega heldur að aðrir vilji kaupa eða vilt bara sitja þar og sýna
þig, skaltu hafa samband við Hönnu Siggu á Stóra Vatnshorni í síma. 847-9598
eða á netfangið hannasigga@audarskoli.is Endilega takið með ykkur borð undir
ykkar varning.
Kl.14:00-16:00 Barnadagskrá þar sem upprennandi bændur spreyta sig í
þrautum og leikjum undir leiðsögn Skátafélagsins Stíganda.
Kl.18:30 Grillveisla og verðlaunaafhending í Dalabúð
Þar verður að sjálfsögðu grillað íslenskt lambakjöt.
Bestu lambhrútarnir í Dalasýslu verða verðlaunaðir, verðlaunaðar verða bestu
ærnar úr 2006 árgangnum.
Drengjakór Hafnarfjarðar syngur nokkra sveitasöngva.
Einnig verða myndasýningar frá síðustu vísinda- og menningarferðum okkar í
FSD, en í ár var farið til Skotlands.
Grín, söngur og gaman verður einnig á matseðlinum.
Aðgangseyrir 1500 kr. á mann en frítt fyrir 14 ára og yngri í fylgd með
forráðamönnum.
Kl. 00:00. Í Dalabúð
Lýkur svo hefðbundinni dagsskrá Haustfagnaðar með stórdansleik þar sem
drengirnir í Svörtum fötum munu sjá um að halda uppi fjörinu langt fram eftir
nóttu.
Aðgangseyrir 2500 kr. - 16 ára aldurstakmark.
Nánari upplýsingar á www.dalir.is
Hlökkum til að sjá ykkur.
Góða skemmtun!
Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu.
Munum að klæða okkur eftir veðri.
Ullin yst sem innst, það er allra best.
Árlegur haustfagnaður Félags
sauðfjárbænda í Dalasýslu
Helstu styrktaraðilar hátíðarinnar eru:
Dalabyggð, KVH afurðir, KS Sauðárkróki, Sláturfélag Suðurlands,
SAH afurðir, Ísbú, Ístex, KM þjónustan, Rjómabúið Erpsstöðum,
Radisson SAS, Landssamtök saufjárbænda.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
1