Skessuhorn


Skessuhorn - 14.12.2011, Page 15

Skessuhorn - 14.12.2011, Page 15
15MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER Vaxt ar samn ing ur Vest ur lands tók til starfa um mitt ár 2007 og hef ur síð an styrkt fjölda verk efna á Vest ur landi bæði með fjár fram lög­ um og ráð gjöf. Vaxt ar samn ing ur­ inn hef ur frá upp hafi ver ið rek inn und ir hatti Sam taka sveit ar fé laga á Vest ur landi og verk efn is stjóri hans er Torfi Jó hann es son. Að sögn Torfa var í upp hafi lögð mik il á hersla á stuðn ing við klasa­ sam starf og stærri sam starfs verk­ efni. „Sum þess ara verk efni hafa síð an öðl ast sjálf stætt líf og önn­ ur ekki, eins og geng ur, en að al at­ rið ið er að fólk kom sam an og fór að ræða um sam eig in leg á herslu­ at riði og móta sam eig in lega fram­ tíð ar sýn. Við erum enn þá að styðja við klasa starf og til dæm is er heil­ mik ið að ger ast núna í Hval firði og Kjós en eft ir hrun ið 2008 þá fór um við að leggja meiri á herslu á verk­ efni sem stuðla með bein um hætti að at vinnu sköp un,“ seg ir Torfi. „Við ger um enn þá kröfu um þrjá eða fleiri sam starfs að ila í hverju verk efni fyr ir sig, en klasa starf er ekki meg in á herslu at rið ið. Þannig reyn um við að verða að sem mestu gagni fyr ir ný sköp un ar starf á Vest­ ur landi.“ Torfi seg ir að um fang Vaxt ar­ samn ings ins sé svip að og ver ið hef­ ur, eða um 20­25 millj ón ir á ári. „Við höf um hag rætt mik ið í um­ sýslu og nú er svo kom ið að SSV ber all an kostn að af rekstri og seta í verk efn is stjórn er ó laun uð. Þannig náum við að láta fjár muni skatt­ borgar anna nýt ast sem best fyr ir at vinnu líf ið á Vest ur landi. Þess ber að geta að Vaxt ar samn­ ing ur Vest ur lands hef ur ekki það form á um sókn um um styrki að hafa fasta út hlut un ar tíma, en af­ greið ir þess í stað um sókn ir jafn­ óð um og þær ber ast. Fund ir eru haldn ir 4­5 sinn um á ári. mm Vaxt ar samn ing ur Vest ur lands hef ur kom ið að fjölda verk efna á fjór um árum „Heil mik ið er að ger ast núna í Hval firði og Kjós,“ seg ir Torfi m.a. Á þess ari mynd úr Hval firði sést Saur bæj ar kirkja í for grunni og stór iðj urn ar á Grund ar tanga fjær. Ljósm.: hb Torfi Jó hann es son, verk efn is stjóri Vaxtarsamningur Vesturlands tók til starfa um mitt ár 2007 og hefur síðan styrkt fjölda verkefna á Vesturlandi. Hér er yfirlit um þau verkefni sem hafa hlotið fjárhagslega styrki. Til viðbótar hefur Vaxtarsamningurinn unnið að ýmsum viðfangsefnum sem ekki hafa hlotið beinan stuðning heldur ráðgjöf og margvíslega aðstoð. Verkefnin eru flokkuð eftir upphafsári en sum þeirra hafa hlotið styrki fleiri en eitt ár. 2007 All Senses ferðaþjónustuklasinn tók að sér umsjón með ferðaþjónustuklasa Vaxtarsamnings Vesturlands frá 1. júní 2007 til 31. desember 2009. Í því fólst meðal annars: Að örva samstarf ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi. Að efla nýsköpun og markaðssetningu í ferðaþjónustu á Vesturlandi. Að auka þekkingarstig ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi. Að fjölga samkeppnishæfum fyrirtækjum og störfum í ferðaþjónustu á Vesturlandi. Með stofnun Markaðsstofu Vesturlands færðist hluti af verkefnum All Senses inn í Markaðsstofuna. Í staðinn lagði klasinn enn meiri áherslu á hugmynda­ þróunar­ og gæðastarf. Stuðningur við ASG gerði klasanum kleyft að halda starfsmann í 60% starfi sem skipti sköpum fyrir starfsemi klasans. Óhætt er að fullyrða að starfsemi ASG hafi haft gríðarmikil áhrif á þróun ferðaþjónustu á Vesturlandi. Klasinn hefur vakið mikla athygli víða um land og orðið fyrirmynd sambærilegra klasa í flestum landshlutum. Umsækjendur: 25­30 ferðaþjónustuaðilar á Vesturlandi Upphaf: Júní, 2007; verkefnið heldur áfram. Styrkur: 6.380. þúsund í nokkrum áföngum. Breiðafjarðarfléttan Verkefnið snýst um samstarf 25 ferðaþjónustuaðila á Breiðafjarðarsvæðinu, sem nær yfir Snæfellsnes, Dali, Reykhólasveit, Barðaströnd og Flatey. Þetta svæði spannar bæði Vaxtarsamning Vesturlands og Vaxtarsamning Vestfjarða og þess vegna var ákveðið samráð milli þessara tveggja samninga um stuðning við verkefnið. Fléttan hefur unnið að samstarfi um markaðssetningu á svæðinu, námskeiðahaldi fyrir meðlimi og gagnkvæma miðlun á hugmyndum milli samstarfsaðilanna. Breiðafjarðarfléttan er gott dæmi um árangursríkt samstarf milli lítilla aðila á stóru svæði. Árið 2009 samdi Breiðafjarðarfléttan við Markaðsstofu Vestfjarða um verkefnisstjórn og fyrir liggur að markaðsmál fléttunnar munu færast inn í Markaðsstofur Vestfjarða og Vesturlands. Klasinn mun hins vegar einbeita sér að þróunarverkefnum (t.d. ferðaþjónustu tengdri fuglaskoðun) og samvinnu félaga. www.flettan.is Umsækjendur: 25­ 30 ferðaþjónustuaðilar á Vesturlandi. Upphaf: Júlí, 2007; verkefnið heldur áfram. Styrkur: 3 milljónir. Markaðsstofa ferða- og kynningarmála á Vesturlandi Markaðsstofa Vesturlands ehf. var eitt af lykilverkefnum Vaxtarsamningsins á sviði ferðaþjónustu. Hlutverk hennar er að markaðssetja og efla ímynd Vesturlands. Stofan er af svipuðum toga og samskonar markaðsstofur annarra landshluta. Verkefnið telst falla undir almennar skilgreiningar á klasastarfi þar sem þarna koma saman að einu verkefni allir ferðaþjónustuaðilar á Vesturlandi. Markaðsstofan heldur úti heimasíðunni www.vesturland.is og www. west.is með fjölbreyttu kynningarefni á Vesturlandi á þremur tungumálum. Gefnir eru út bæklingar, skipulagðar kynningarferðir fyrir erlenda blaðamenn og Vesturland kynnt á kaupstefnum innan lands og utan. Með stofnun Markaðsstofunnar náðist að sameina allt markaðsstarf ferðaþjónustunnar á Vesturlandi undir einn hatt og hefur þessi vinna skilað miklum árangri fyrir landshlutann. www.vesturland.is www.west.is Upphaf: Júní, 2007; verkefnið heldur áfram. Styrkur: 12 milljónir. síðan 2007. 2008 Efling Stykkishólms Verkefnið gengur út á samþjöppun upplýsinga um þá þjónustu sem í boði er í bæjarfélaginu með heimasíðugerð og upplýsingamöppu sem dreift verður í öll þau hús sem teljast frístundahús og/eða eru til leigu. Vefurinn verður byggður upp myndrænt og auðvelt verður að finna allar þær upplýsingar um þjónustu sem í boði er í Stykkishólmi. Starfið er sérstaklega miðað að fólki sem dvelur í orlofshúsum í bænum. Markmiðið er að efla vitund ferðamanna um þá þjónustu sem í boði er í bæjarfélaginu. http://www.stykkisholmur.is/ default.asp?sid_id=1642&tre_ rod=006|003|&tId=1 Umsækjendur: Stór hópur fyrirtækja í Stykkishólmi Upphaf: Mars 2008; verkefnið heldur áfram Styrkur: 1 milljón. Fab-lab á Akranesi Verkefnið á uppruna sinn í því að veittur var styrkur til Fjölbrautarskóla Vesturlands, Akranesbæjar, Verkalýðsfélags Vesturlands, Norðuráls og Elkem til að vinna athugun á möguleikum þess að stofnað yrði þróunarsetur í málmtækni. Setrið gæti orðið miðstöð fyrir fullorðinsfræðslu, rannsóknir og menntatengda starfsemi á sviði málmtækni og um leið samstarfsvettvangur fyrirtækja og menntastofnana (meðal annars verkfræði­ og tæknideilda háskóla) á sviði málmiðnaðar og málmtækni. Unnin var skýrsla sem var notuð sem grunnur að áframhaldandi vinnu, sem m.a. leiddi til stofnunar Fab­ lab smiðju við Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi. Fab­ lab er alþjóðlegt net stafrænna smiðja sem ná allt frá Boston til Afganistan og Suður Afríku til Noregs. Þeim er ætlað að ýta undir nýsköpun og frumkvöðlaanda samfélaga með því að veita einstaklingum aðgang að starfrænum framleiðslutólum. Fab­lab er stytting á fabrication laboratory og er ætlað að þjónusta nánast hvern sem er á viðkomandi starfssvæði. Í þessu tilviki er um að ræða samstarf Akranesbæjar, Fjölbrautarskóla Vesturlands, Norðuráls, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og SSV­Þróunar og ráðgjafar. http://fablabakranes.is/ Umsækjendur: Akranesbær, Fjölbrautarskóli Vesturlands, Norðurál, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og SSV­Þróun og ráðgjöf. Upphaf: Maí 2008; verkefnið heldur áfram. Styrkur: 7,2 milljónir. Félag atvinnulífisins í Grundarfirði Félag atvinnulífsins í Grundarfirði (FAG) var stofnað árið 1997 og var hugsað sem vettvangur fyrirtækja í bænum til að vinna samana að eflingu atvinnulífsins. Það byrjaði með krafti en sá kraftur dofnaði með tímanum þótt félagið hafi aldrei liðið algerlega undir lok. Haustið 2008 ákváðu heimamenn að blása krafti í starfsemi félagsins og þá með tilliti til upprunalegra hugmynda, þ.e. öflugan klasa sem er virkur í atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Sameiginleg markmið eru að félagið taki virkan þátt í uppbyggingu atvinnulífs. Að vera til halds og trausts fyrir aðila sem reka fyrirtæki eða vilja hefja rekstur. Að standa fyrir fræðslu sem styrkir rekstur á svæðinu. Sé leiðandi á að efla samvinnu fyrirtækja og viðhalda sterku tengslaneti. Sjá um sameiginlega markaðssetningu og kynningu fyrirtækja á svæðinu, bæði með vefsíðu og öðru kynningarefni. Félagið stóð fyrir margs konar starfsemi m.a. atvinnuvegasýningu í Grundarfirði. Umsækjendur: Stór hópur fyrirtækja í Grundarfirði Upphaf: Haust 2008; verkefnið heldur áfram. Styrkur: 1 milljón. Food and fun á landsbyggðinni Vaxtarsamningar víðs vegar af landinu tóku höndum saman og styrktu verkefnið Food and fun á landsbyggðinni (Fóður og fjör) árið 2008. Um var að ræða skipulagt samstarf veitingahúsa um allt land um sérstök tilboð á hátíðamat tiltekna helgi og sameiginlega markaðssetningu. Umsækjendur: Hótel Glymur, Hótel Hamar, Landnámssetur Íslands ásamt veitingastöðum úr STYRKT VERKEFNI 2007-2011

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.