Skessuhorn


Skessuhorn - 01.08.2012, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 01.08.2012, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Sími: 433 5500 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.070 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 1.800. Verð í lausasölu er 600 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is Áslaug Karen Jóhannssdóttir, blaðamaður aslaug@skessuhorn.is Heiðar Lind Hansson, blaðamaður hlh@skessuhorn.is Samúel Karl Ólason, blaðamaður sko@skessuhorn.is Íris Gefnardóttir, ýmis sérverkefni irisg@skessuhorn.is Haraldur Bjarnason, ýmis sérverkefni hallibjarna@simnet.is Auglýsingar og dreifing: Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is Umbrot: Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Verk kunn átta Nokkr ar at vinnu grein ar hafi dafn að öðr um bet ur hér á landi á ár un um eft­ ir hrun. Eink um hafa eflst þær grein ar sem byggja á veiku gengi krónu sem njörv að er nið ur með höft um. Því efl ast út flutn ings grein ar þar sem þekk­ ing og reynsla ræð ur för, svo sem ál iðn að ur, sjáv ar út veg ur og hug verka­ smíði af ýmsu tagi. Þá hef ur ferða þjón usta í á kveðn um lands hlut um vax ið svo um mun ar þeg ar þang að flykkj ast er lend ir ferða menn sem keypt geta meira fyr ir evr urn ar sín ar, pund in eða dollar ana með an á stand þetta var­ ir. En það er afar mis mun andi hvern ig lands hlut arn ir eru að standa sig í þeirri sókn sem nú er í ferða þjón ustu hér á landi. Þar stend ur höf uð borg­ ar svæð ið og Suð ur land ið sterkast að vígi enda hefð in lengst og verk kunn­ átt an því mest. Nú í sum ar hef ég ferð ast nokk uð meira en ég gerði árin á und an. Að þessu sinni hef ég far ið í skemmri öku ferð ir um Suð ur land, Reykja nes, Norð ur land og Vest ur land auk þess að dvelja í tvær vik ur suð ur á Spáni. Sem á huga mað ur um vöxt og við gang vest lenskr ar ferða þjón ustu hef ég lit ið með gests auga á hvern ig Ís lend ing ar ann ars veg ar og Spán verj ar hins veg ar taka á móti gest um sín um og nýta þau sókn ar færi sem í túrism an­ um fel ast. Þar skil ur margt þess ar þjóð ir að og ein hverra hluta vegna eru Spán verj ar, þrátt fyr ir djúpa efna hag skreppu þar sem fjórði hver mað ur er án at vinnu, fram ar en við Ís lend ing ar á ýms um svið um. Einna helst gagn­ rýni ég þó Spán verja fyr ir slæm tök þeirra á ensku sem krist all ast í að lít il­ væg at vik eins og t.d. að reyna að sann færa ræst inga kon una á hót el inu um að hún megi þrífa eft ir tíu mín út ur, get ur reynst þraut in þyngri. Á stæð una má rekja til, líkt og hjá t.d. Frökk um og Þjóð verj um, að þeir tal setja allt sjón varps efni og virð ast þannig mark visst koma í veg fyr ir að inn fædd ir læri stakt orð í eng il sax nesku. Í efna hags þreng ing um eins og við þekkj um þær þarf að auka tekj ur, laða fjár magn til lands ins og gera hlut ina eins vel og kost ur er. Ís lend ing ar ættu að fagna hverju því frum kvæði sem leitt get ur til nýrra tæki færa í ferða­ þjón ustu, ekki síst á lands byggð inni. Við þurf um að skapa var an leg störf og styrkja með því byggð ir því auð vit að á það að vera mark mið okk ar að land­ ið sé allt í byggð, ekki ein ung is suð vest ur horn ið. Fylgist ég af þeim sök­ um spennt ur með lykt um stóra Núpó máls ins á Gríms stöð um. Stað reynd­ in er nefni lega sú að hér þurfa að verða til nýj ar at vinnu grein ar í stað þeirra starfa sem tap ast hafa á um liðn um árum af ýms um or sök um í þjón ustu, land bún aði og iðn aði til sjáv ar og sveita. Til að fjölga störf um verð um við því að nýta þau tæki færi sem bjóð ast og vissu lega eru þau mörg í ferða­ þjón ust unni ef rétt er á mál um hald ið. Engu að síð ur er lyk il at riði að þjón­ ust an verð ur að vera fag leg og góð og um fram allt meg um við ekki láta ferða mann inn upp lifa von brigði, eins og t.d. fjöl marg ir gest ir gera sem eiga við komu við Deild ar tungu hver í Borg ar firði þar sem ekk ert sal erni er að finna. Skort ur á jafn sjálf sagðri þjón ustu er bein lín is hneisa og væri, með­ an ekki er úr bætt, miklu hrein legra að loka að komu að þess um vatns mesta hver í Evr ópu. Hvort sem kenna verð ur um sof anda hætti íbúa í hér að inu, sveit ar fé lag inu eða Orku veitu Reykja vík ur þá er þetta á stand til skamm­ ar. Ég heyrði ný ver ið haft eft ir mark aðs manni hjá Icelanda ir inn an lands að Vest ur land væri ekki inni í þeirra ferða á ætl un um af þess um sök um: „Vest­ ur land,“ sagði við kom andi með nokk urri vand læt ingu; „þang að för um við ekki með ferða menn með an ekki er einu sinni hægt að fara með fólk ið á kló sett.“ Svo mörg voru þau orð. Verk kunn áttu skort ir því enn í þeirri ungu at vinnu grein sem ferða þjón­ ust an er. Til að hafa út úr grein inni tekj ur verð ur að standa fag lega að hlut­ un um alls stað ar í virð is keðj unni. Brest ir í henni skaða alla; sveit ar fé lag ið, aðra ferða þjón ustu að ila og orð spor lands hlut ans. Bendi ég því að end ingu á að rekst ur gjald skylds sal ern is húss, t.d. við Deild ar tungu hver, er að lík ind­ um eitt af væn legri við skipta tæki fær um. Ef ann ar hver gest ur sem þang að kem ur greiddi eina evru fyr ir notk un náð húss, myndi það velta 10,4 millj­ ón um króna á ári. Þurf um við eitt hvað að ræða þetta nán ar, kæru sveit­ ung ar? Magn ús Magn ús son Leiðari Síð ast lið inn mánu dag var Snorra Jó hann essyni stofn fé laga í Björg­ un ar sveit inni Ok í Borg ar firði fært Þjón ustu merki Slysa varn ar fé lags­ ins Lands bjarg ar sem þakk læt is­ og virð ing ar vott fyr ir störf hans í þágu sveit ar inn ar. Snorri lét af for­ mennsku í sveit inni á síð asta að al­ fundi og hafði þá sinnt þeirri stöðu und an far in ell efu ár. Þjón ustu merki SL er prýtt ein kenn is orð um sam­ tak anna en þau eru „For ysta, Fag­ mennska og Fórn fýsi.“ Þykja þau orð lýsa starfi Snorra í þágu Bjsv. Ok bet ur en önn ur. þþ Nú hafa ný skip bæst í flot ann eða ver ið færð um set á Snæ fells nesi. Sæ garp ur ehf. í Grund ar firði hef­ ur fest kaup á Þórs nesi II SH­209 frá Þórs nesi ehf. í Stykk is hólmi. Þórs nes II er 233 brúttó tonn og er smíð að á Ak ur eyri 1975. Að al­ steinn Sig ur geirs son fram kvæmda­ stjóri Sægarps seg ir að þeir hafi keypt skip ið fyr ir mán uði síð an og ætli að nota það í beitu kóngsveið­ ar í Breiða firði. „ Þetta er nokk uð stórt skip en hent ar okk ur mjög vel. Það er ver ið að gera það klárt fyr ir veið ar en ekki er al veg ljóst hvenær þær hefj ast. Vænt an lega ger ist það á næstu vik um,“ seg ir Að al steinn. Fyr ir á fyr ir tæk ið tvö önn ur skip, Blíðu SH­277 og Garp SH­ 95 en fyr ir tæk ið ætl ar að hætta út gerð á þeim skip um og not ast ein ung is við Þórs nes II. Í Stykk is hólmi hef ur út gerð ar­ og fisk vinnslu fyr ir tæk ið Þórs nes ehf. keypt tvö skip. Það eru skip in Þórs­ nes SH­109 sem hét áður Marta Á gústs dótt ir GK og Bílds ey SH­65, sem hét áður Kiddi Lár GK. Ver­ ið er að setja beitn inga vél í Þórs nes sem er 360 brúttó tonn og er smíð að í Þýska landi 1964. Á skip ið að vera til bú ið til veiða nú í á gúst. Bílds ey er um 15 metra lang ur plast bát ur og er róið frá Breiða dals vík. Bílds ey var áður í eigu Sæ fells hf. en smíð uð í Hafn ar firði 2004. sko Hald in var úti messa við Mar íu lind á Helln um á Snæ­ fells nesi í blíð viðri um miðj an júlí mán uð. Pét ur Bürcher, kat ólski bisk upinn á Ís landi, söng mess una. Með fylgj andi mynd tók Hregg við ur Jóns son við það tæki færi. mm Björg, björg un ar skip slysa varna­ fé lags ins Lífs bjarg ar í Snæ fells bæ, kom um tíu leyt ið sl. fimmtu dags­ morg un til Rifs hafn ar með Þor­ lák ÍS í togi. Þor lák ur er 156 tonna línu veiði skip frá Bol ung ar vík. Skip­ ið var búið til mak ríl veiða þeg ar troll ið þess fór í skrúf una og varð vél ar vana að far arnótt mið viku dags­ ins. Þá var skip ið statt 83 sjó míl­ ur vest ur af Breiða firði. Björg, sem er 44 tonn að stærð, var þeg ar send út til að stoð ar en þar sem sigl ing­ ar leið in er löng, og Þor lák ur stórt skip, tók ferð in í allt 28 tíma. Sigl ing ar hrað inn með Þor­ lák í togi var um fjór ar sjó míl­ ur. Þetta var því að sögn Páls Stef­ áns son ar skip stjóra á Björg inni ein stærsta ein staka björg un ar að gerð sem skip ið hef ur far ið en sigl ing ar­ leið in til Rifs hafn ar var 86 sjó míl­ ur. Þó tek ur Páll það fram að far­ ið hafi ver ið í lengri ferð ir á Björg­ inni með vara hluti. Páll sagði í sam tali við Skessu horn að heim­ ferð in hafi geng ið hægt en ör ugg­ lega. Veð ur var þokka legt, en þó var norð an golu kaldi um tíma um nótt ina. Þeg ar kom ið var með Þor­ lák til hafn ar fóru kaf ar ar strax í að hreinsa úr skrúfu skips ins og tók það stutta stund. Ekki þurfti að skera held ur ein ung is vefja veið ar­ fær un um utan af skrúf unni. Skip ið gat því hald ið aft ur til veiða síð ar á fimmtu dag inn. mm/ Ljósm. af. Mess að við Mar íu lind Guðni Eð varðs son for mað ur sveit ar inn ar af hend ir Snorra þjón ustu merk ið SL. Snorra fært þjón ustu merki Lands bjarg ar Páll Stef áns son skip stjóri í þess ari far­ sælu björg un ar ferð. Ein stærsta björg un ar að gerð Bjarg ar til þessa Björg með Þor lák í togi skammt utan við Rifs höfn. Þórs nes II í eigu Sægarps ehf. er hér við bryggju í Grund ar firði. Skip ið á eft ir að fá nýtt nafn sem verð ur op in ber að síð ar. Ný skip á Snæ fells nes

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.