Alþýðublaðið - 27.11.1919, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 27.11.1919, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Símskeyti. Khöfn 26. nóy. Kolaverðið lækbar. Prá London er símað, a5 stjórn- m hafi tilkynt, að kolaverðið muni tekka um 10 shillings (á smálest) 1 næstu viku, og útflutningur hiuni verða takmarkaður. Rúmenar og bandamenn. Prá Bukarest er símað, að þing- iS sé nýlega komið saman og að konungurinn hafi í hásætisræð- unni óskað að bandalag Rumena við Bandamenn mætti haldast. Her Judenitsch ónýttnr. Fréttaritari „Berlingske Tidende“ 1 Reval heldur því fram að her Judenitsch sé algerlega uppleystur. Enn um Scapaflóaskipin. Frá Berlín er símað, að París- urnefndin þýzka sé óvænt kom- in heim, líklega vegna ákvæða nukafriðarsamninganna um atburð- inn í Scapaflóanum. (Að því er viðvíkur síðasta ®keytinu mun það eiga við það, er Þjóðverjar söktu skipum sín- uni í Scapaflóanum, til þess, að tnu kæmu ekki Bandamönnum að gagni.) lítlenðar fréttir. Syiss — Rúmenía. Nýlega hafa Svissland og Rúm- ®nía gert með sér verzlunarsamn- lng* Er kveðið svo á í honum, að -^úmenía skuli láta Svisslandi í landbúnaðarafurðir og steinolíu, en í staðinn á Svissland að láta vúlar og vefnaðarvörur, en þó fyrst um sinn ekki fyrir hærri uPphæð en 10 milj. franka. Nýtt farfaefni. Ýerksmiðja ein í Fredrikstad, er G^öga byrjuð á þvi að búa til khsamál úr titansöltum, efni, sem ^ngað til hefir mikið verið notað ^ hess, að lita með postulín, en einkum til leirvörulitunar (Tit- nnkaliumoxalat). Sölt þessi hafa 1 skamms tíma verið framleidd í enskum álúnverksmiðjum, sem aukaefni. Þær tilraunir sem gerð- ar hafa verið með mál þetta sýna, að það er bæði endingarbetra en það mál, sem áður hefir þekst, og það þolir betur áhrif allrar sýrugufu og áhrif lofts. Yerksmiðj- an framleiðir daglega 8000 kg. af máli og hyggst bráðlega að auka svo framleiðsluna, að hún geti miðlað öðrum en Noregi af henni. Sveisn er að þvo fér. Herra ritstjóri! Yiljið þér ljá mér rúm fyrir eftirfarandi í blaði yðar. Sveinn BjörnssoD er að hrósa sér af því, að hann hafi mælt fast fram með Jóni Magnússyni, þar sem þeir buðu sig fram sam- an. Eg var á nokkrum kjósenda- fundum, t. d. hjá Kobba í Bár- unni. Ekki mælti Sveínn með Jóni þar, það eitt er víst. Ekki mælti Morgunblaðið, blað Sveins og lagsbræðra hans fram með Jóni, meira en góðu hófi gegndi. Mælti meira að segja jafnt fram með Jóni og svæsnasta fjand- manni hans, Jakob Möller. Mér er spurn. Hvar var það sem Sveinn mælti með Jóni og hvernig? Ætli að Sveinn vildi svara því? Gamall heimastjórnarmaöur. Dm dapn 09 vegim. Nýja Bio sýnir þessa dagana ágæta kvikmynd, sem heitir Ind- íánastúlkan. Myndin er prýðilega vel leikin og efni hennar ágætt, sérstaklega er Poleon, söguhetjan og John Glayfod, fósturfaðir stúlk- unnar, vel leiknir. Höfundur bók- arinnar, sem bókin er sniðin eftir, heitir Rex Beach, ungur amer- ískur rithöfundur, sem fæddur er og alinn upp í Alaska og því eðlilegt, að lýsingar hans séu nátt- úrlegar. Annars er það leiðinlegt, hvað við öpum mikið eftir Dönum. Nafnið á bókinni á frummálinu, er V erzlunin Laugayeg <4.0. Selur: epli, vinber, sælgæti. Tóbaksvörur ýmsar, svo sem; skorið ncftóbah, vindla 0. fl. 0. fl. „The Barrier", en á dönsku heitir bókin „Indianerpigen". Vínlandið kom frá Englandi í gærmorgun. James Hensell, enskur togari 'frá Grímsby, liggur fyrir austan steinbryggjuna til viðgerðar, skrúf- an brotnaði úti í sjó. íðland fór í gær frá Leith, á leið hingað, kemur við íp’æreyjum. Botnía kom á sunnudaginn til Khafnar, á að fara þaðan 2. des- ember, áleiðis hingað. Geysir er á leið hingað frá út- löndum, hlaðinn vörum. Hann á að taka saltfisk hór á landi fyrir Geo. Gopland og fara með hann til Miðjarðarhafsins. Lagarfoss kom í morgun frá Ameríku, hlaðinn vörum. Smánfsi hefir undanfarið verið veiddur í Hafnarfirði og verið seld- ur hér í borginni til matar. ynþinglskosningarnar. í Norður-Múlasýslu eru kosnir þeir Porsteinn M. Jóns- son með 386 atkv. og Björn Hallsson á Rangá með 241 at- kvæði. Ófrétt er enn um atkvæðafjölda hinna frambjóðendanna. — Sagt er, að einhver ljóður hafi verið á kosningunni og búist við að hún verði kærð. í Barðastrandasýslu er Hákon Kristófersson kosinn með 256 atkr. Síra Böðvar var um 100 atkv. lægri.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.