Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 23.01.2014, Blaðsíða 10

Fjarðarpósturinn - 23.01.2014, Blaðsíða 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 23. janúar 2014 Hafin er undirskriftasöfnun til að mótmæla fyrirhuguðum breyt ingum á skipan skólamála á Völlum. Ákveðið hafði verið að nýta tvær skólastofur sem nú standa í trássi við deiliskipulag við leikskólann Hvamm og setja við leikskólann Hamravelli, innst á Völlunum. Lausar skóla­ stofur við Hraunvallaskóla sem nú eru nýttar undir leikskólabörn á í haust að nýta undir grunn­ skólabörn og fjölga á rýmum á Hamravöllum um 40 á meðan 50 rými falla út í Hraunvallaskóla. Í undirskriftasöfnuninni er minnk­ un leikskólans í Hraun valla skóla mótmælt. Tímabundið ástand Eyjólfur Sæmundsson, for­ maður fræðsluráðs, segir ástand­ ið tímabundið. Í dag séu nægileg rými fyrir öll leikskólabörn, 18 mánaða og eldri, í bænum og rúm lega það. Því sé hins vegar misskipt á hverfi bæjarins. Ljóst sé að seint sé hægt að tryggja að börn fái alltaf inni á leikskóla í sínu hverfi og bendir á að í Reykjavík sé það alls ekki tryggt. Hins vegar segir Eyjólfur það forgangsmál að systkini fái inni á sama leikskólanum sé það nokkur möguleiki. Minnir hann á að nú sé hafinn undirbúningur á byggingu 5 deilda leikskóla við Bjarkarvelli, fremst á Völlunum og á að taka hann í gagnið haustið 2015. Fjöldi leik skóla­ barna getur breyst á milli ára að sögn Eyjólfs sem bendir á að síðasti 5 ára bekkur hafi verið gríðar lega stór og þrátt fyrir rúm­ lega 2% fólksfjölgun á síðasta ári hafi börnum á leikskólaaldri fækkað. Gagnrýni hefur komið fram um að fjölgun á leikskólarýmum eigi að verða innst á Völlunum sem kalli á mikinn óþarfa akstur hjá mörgum. Þegar leikskólinn á Bjarkarvöllum verður tilbúinn verður dreifingin hins vegar mun betri í hverfinu. Stefnt er að byggingu nýs grunnskóla í Skarðshlíð og hug­ myndir eru uppi um að þar verði yngri árgangarnir, 1.­7. bekkur, en þeir eldri í Hraunvallaskóla. Um þetta hefur ekki myndast einhugur og fræðsluráð frestaði á fundi sínum 13. janúar sl. end an­ legri ákvörðun um flutning lausra kennslustofa frá leik skól­ an um Hvammi og mun fara betur yfir málið. Hafa áhyggjur af öryggi Foreldraráð Hraunvallaskóla hefur áhyggjur af öryggismálum leikskólabarna ef starfsemi gunnskólans færist inn á lokað útileiksvæði leikskólabarna. Inngangur fyrir lausu kennslu­ stofurnar séu fyrir innan lokuð hlið á útileiksvæði leikskólans. Telur foreldraráð að þetta geti stefnt öryggi leikskólabarna í hættu. Leggur foreldraráðið áherslu á að starfsemi 5 ára deild ar verði ekki stefnt í hættu en sú starfsemi er nú í lausum kennslustofum við skólann. Vilja íbúafund Ráðið lýsir yfir miklum áhyggj um af stöðu mála, ekki síst þeirri óvissu um það hvernig leikskólamálum verði háttað á Völlum í haust og kallar eftir boðuðum íbúafundi um málið. Níu ár eru síðan áköf börn tóku fyrstu skólfustunguna að Hraunvallaskóla en skólinn er í dag yfirfullur. Er skólaskipan á Völlum í hnút? Næg leikskólarými en misdreift um bæinn Lj ós m .: G uð ni G ís la so n www.facebook.com/ fjardarposturinn til sölu Opel Astra árg. 1999 til sölu. Ekinn 145 þ. km, beinskiptur, 5 dyra. Skoðaður. Verð 190 þús. kr. Uppl. í s. 695 8443. Tveggja mánaða góð nagladekk til sölu. 185/65 R15. Uppl. í s. 895 5793 þjónusta Kaupi bilaðar gamlar þvottavélar og þurrkara. Þó ekki eldri en 8-10 ára. Uppl. í s. 772 2049. Tölvuviðgerðir alla daga, kem á staðinn, hægstætt verð. Sími 664 1622 - 587 7291. Tölvuaðstoð og viðgerðir Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun. Apple* & Windows. Kem í heimahús. Sími 849 6827 - hjalp@gudnason.is Ráðgjöf um þyngd­ ar stjórnun. Líkam legt ástand mælt með skanna. FB: „Yngj andi og orku ríkara líf“. Gerð ur Hannes dóttir lífs stíls leiðbein andi gsm 865 4052 ghmg@internet.is Ódýr húsgagna og teppahreinsun. Við djúphreinsum sófasett, stóla, rúmdýnur, teppi og mottur. Lykt ar- eyðing, rykmauraeyðing og bletta- eyðing. S. 780 8319 eða djuphreinsa@gmail.com Tek að mér að stytta buxur og fl. þ.h. Vönduð vinnubrögð. Lína Björk Sigmundsdóttir, klæðskeri, Fagrahvammi 2a, Hafnarfirði s. 866 2361 e. kl. 16 virka daga. Viltu hafa hreint, tek að mér heimilisþrif og þrif á stigagöngum í Hafnarfirði og Garðabæ. Vönduð vinnubrögð. Uppl. í síma 781 0369. smáauglýsingar aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s s ím i 5 6 5 3 0 6 6 A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . m a x 1 5 0 s l ö g . M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r. Ta pað - f u nd i ð o g fæs t g e f i n s : FR Í TT R e k s t r a r a ð i l a r : F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r ! www.fjardarposturinn.is Lilja sýnir á Hrafnistu Lilja Hallgrímsdóttir sýnir málverk í Menningarsalnum á Hrafnistu í Hafnarfirði. Sýningin stendur til 19. febrúar. Sýningar í Hafnarborg Í aðalsal Hafnarborgar stendur yfir sýning sem gefur innsýn í fjölbreyttan feril lista kon unnar Rúnu - Sigrúnar Guðjóns dóttur. Á sýningunni eru verk fá öllum listferli Rúnu (f. 1926), þau elstu frá því um 1950 en þau nýjustu frá þessu ári, 2013. Síðasta sýn­ ingar helgi. Í Sverrissal Hafnarborgar sýning á nýjum verkum eftir Harald Jónsson, en sýningin ber yfirskriftina Hnit. Á sýningunni eru bæði teikningar og skúlptúrar sem hvert á sinn hátt virkja skynjun mannsins á eigin tilfinningum, upplifun af rými og táknum. Sendið stuttar tilkynningar á ritstjorn@fjardarposturinn.is menning & mannlíf Forvarnargildi og mikilvægi íþrótta- og tómstundastarfs Öll erum við sammála um að börnin okkar eru það mikil væg­ asta í lífinu og þau eiga skilið það besta óháð efnahag foreldranna. Íþrótta­ og tómstundastarf er eitt af því sem hvert barn á að hafa sem greiðastan aðgang að því börn­ unum er hollt og nauð­ synlegt að taka þátt í skipu lagðri starfsemi af því tagi. Það er löngu sann að að börn sem stunda íþróttir eða ann að tómstundastarf geng ur betur í námi og eiga auðveldara með félags leg samskipti. Þau þjálfa aga og tillitsemi og fara síður eða seinna en önnur börn að nota áfengi. Forvarnargildið er því mjög mikilvægt og verður seint metið til fjár. En nú er svo komið að börnin okkar hafa ekki öll jafna mögu­ leika á að stunda íþrótta­ og tóm­ stundastarf vegna hárra æfinga­ gjalda og annars kostnaðar við búninga og keppnisferðir. Það er slæmt að horfa upp á slíkt. Íþróttabærinn Hafnarfjörður? Íþróttafélögin hafa eins og aðrir gengið í gegnum miklar þreng ingar undanfarin ár, rekstr­ arframlög bæjarins hafa verið skorin niður og er rekstur félag­ anna því mjög þungur. Vegna þessa hafa íþróttafélögin neyðst til að hækka iðkenda gjöld, fella niður syst kina afslætti og fækka æfingatímum. Og það í íþrótta­ bænum Hafnar firði. Forsvars­ menn félag anna eiga þó heið ur skilinn fyrir að hafa ekki hreinlega gefist upp! En af metnaði og fórnfýsi hefur þeim tekist að gera það besta úr erfiðri stöðu. Við verðum að standa vörð um þessa mikilvægu starfsemi og þau mikilvægu lífs­ gæði sem felast í því að börn og unglingar geti eflt og styrkt líkama sinn og anda án þess að foreldrar þeirra þurfi að hugsa sig tvisvar um þegar kemur að því að ákveða hvort börn þeirra taki þátt í slíku starfi. Forvarnargildið sem af slíkri þátttöku hlýst er ómetanlegt og er dýrmæt fjárfesting í heilbrigðri æsku. Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Unnur Lára Bryde3 Skarphéðinn Orri Björnsson Ég óska eftir stuðningi í 3. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins 1. febrúar. Öflugt atvinnulíf! Tilboð í janúar á heilsunuddi og gjafabréfum kr. 5.900 Heilsunuddstofa Unnars Strandgötu 11, 3. hæð Pantanir í síma 774 8507 Skrifstofu húsnæði til leigu Glæsilegt, vel innréttað skrifstofuhúsnæði til leigu á 2. hæð í lyftuhúsi að Bæjarhrauni 2 Húsnæðið er 60 m² með sameign og skiptist í tvær skrifstofur og kaffistofu. Laust frá 1. febrúar nk. Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði sími 517 1060 • mih@mmedia.is Loftnet - netsjónvarp Viðgerðir og uppsetning á loftnetum, diskum, síma- og tölvulögnum, ADSL/ljósleiðurum, flatskjám og heimabíóum. Húsbílar - hjólhýsi! Loftnetstaekni.is sími 894 2460

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.