Fjarðarpósturinn - 23.10.2014, Page 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 23. október 2014
Aðgengi fólks að upplandinu
hefur verið takmarkað. Vegar
slóðum hefur verið lokað með
stórgrýti og dæmi er um vegaslá
þvert yfir malbikaðan veg á
iðnaðarsvæðinu þar sem al menn
ingi er ekki ætlað að fara framhjá,
hvorki akandi, hjólandi né gangandi. Í allri umræðunni
um gagnsæja stjórnsýslu er gott að nefna þetta því
ákvörðun um svona lokanir eru greinilega ekki teknar á
fundum þar sem fundargerðir eru birtar almenningi. Það
er hægt að skilja að reynt sé að hamla því að sóðar fari
ekki þessa vegarslóða og hendi rusli í næstu gjótu eins og
svo mörg dæmi eru um. Það má hins vegar ekki hindra
aðgang fólks að upplandinu og einhvers staðar þarf fólk
að geta lagt bílum sínum komi það langt að. Engin stefna
virðist vera til um aðgengi að okkar fallega upplandi og
sumir hafa gengið svo langt að fagna fyrirhuguðum
raflínum því þá fáist vegarslóði í gegnum hraunið verði
hann þá ekki lokaður almenningi. Hvatningu um að nýta
náttúruna verður að fylgja meira en orðin tóm. Hafnar
fjarðarbær hefur yfir miklu landi að ráða og því hlýtur að
vera eðlileg krafa að til sé skýr stefna um gott aðgengi að
þessu landi. Þó auðvitað eigi að hvetja fólk til að ganga
þá er miður ef ekki er hægt að leyfa þeim sem erfitt eiga
um gang að njóta náttúrufegurðarinnar.
Eftir kröfu Fjarðarpóstins um að fá að sjá verkefna
lýsingu fyrir þróunarverkefni nem nefnt er við Flens
borgarhöfn, fékkst hún loksins, og ber því að fagna. Hins
vegar er blásið á þau rök að ekki hafi mátt birta hana fyrr
en væntanlegur verkefnastjóri hefði fengið að sjá hana. Í
raun var lítið á þessari verkefnalýsingu að græða annað
en það að ráða átti ákveðinn arkitekt til verksins. Þó kom
ekki fram þar að vikomandi hafði verið í 6. sæti á lista
Bjartrar framtíðar í Reykjavík. En auðvitað skiptir það
ekki máli. Í raun sagði ekkert annað í þessari lýsingu en
að verkefnastjórinn væri ráðinn í hálft starf í 35 mánuði.
Skipaður verði starfshópur og á hann að vinna skipulags
lýsingu fyrir þetta svæði.
Það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr þessari
vinnu forvitnilegt hvernig aðkoma bæjarbúa verður að
henni fyrir utan einfaldan kynningarfund um verkefnið
sem haldinn var fyrir nokkru á Kænunni. Hins vegar hef
ég áhyggjur af að þetta skipulag sé unnið eins og eyland
og inni í dæminu er t.d. ekki tenging við miðbæinn. Þar
er líka eldgamalt skipulag í gildi sem þarfnast rækilegrar
endurskoðunar. Hafnarsvæðið verður ekkert án öflugs
miðbæjar og á meðan menn hafa ekki mótaðar hugmyndir
um uppbyggingu á honum er til lítils að láta sig dreyma
um vinaleg kaffihús og fjölda útlendinga á hafnarsvæðinu.
Og svo er hafnarstjórn að átta sig á nauðsyn þess að vinna
að framtíðarsýn fyrir Hafnarsvæðið.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Útfararþjónusta
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
Inger Rós Ólafsdóttir
Sunnudagurinn 26. október
Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11
Hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn undir
stjórn Arnar Arnarsonar.
Sjá nánar um starfið á www.frikirkja.is
og á Facebook.com/frikhafn
www.frikirkja.is
Sunnudagurinn 26. október
Klassísk messa kl. 11
Sunnudagaskólinn á sama tíma
Eftir messu verður kaffisala kórs Ástjarnarkirkju
til ágóða fyrir tónleikaferð hans næsta vor.
Foreldramorgnar og barnastarf
á þriðjudögum
Unglingastarf
á miðvikudögum
www.astjarnarkirkja.is
Sunnudagurinn 26. október
Hallgrímsmessa kl. 11
í tilefni af 400 ára afmæli Hallgríms Péturssonar.
Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson.
Organisti Guðmundur Sigurðsson.
Félagar úr Barbörukórnum syngja.
Sunnudagaskóli kl. 11
með Önnur Elísu og samstarfsfólki.
Alla miðvikudaga
Morgunmessa kl. 8.15
Morgunverður á eftir.
Kvenfélagsfundur
fimmtudag 23. október kl. 20.
Oreltónleikar
þriðjudag 28. október kl. 12.15
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
Víðistaðakirkja
Sunnudagur 26. október:
Kl. 11 Sunnudagaskólinn
er á sínum stað.
Kl. 20 Sálarmessa
„Lífið og ljósið“
Kór Víðistaðakirkju við stjórn Helgu Þórdísar
og Alma Rut flytja lög hljómsveitarinnar „Sálin
hans Jóns míns“ ásamt Hljómsveit Hjartar
Howser (Hjörtur Howser; hljómborð, Haf steinn
Valgarðsson; bassi, Eysteinn Eysteins son;
trommur og Jens Hansson saxófónn).
Sr. Halldór Reynisson leiðir stundina.
www.vidistadakirkja.is
Verslunin Kona opnaði í Firði sl. fimmtudag. Voru
móttökur gríðarlega góðar að sögn Laufeyjar
Vilhjálmsdóttur eiganda en hún verður með þær
gæðavörumerki sem Anas seldi áður.
KONA
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n