Fjarðarpósturinn - 23.10.2014, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 23. október 2014
Tjarnarvöllum 11 220 Hafnarfjörður apotekhfn.is
Hagstætt verð
í heimabyggð
Sími 555 6650
Fyrrum starfsmaður les fyrir börnin
Leikskólinn Álfasteinn fékk barnabókahöfund í heimsókn
Meira val um kaup á skólamat
Samþykkt að hægt verði að kaupa mat aðeins ákveðna vikudaga
Í síðustu viku fengu börnin í
Álfasteini skemmtilega heim
sókn frá barna bókahöfundinum
Dagbjörtu Ásgeirsdóttur. Las
hún fyrir börnin og ekki síður
starfsfólkið úr nýjustu bók sinni
„Gummi fer í fjöruferð“ og
höfðu börn og kennarar gaman
af.
Þetta er þriðja bókin hennar en
allar fjalla þær um hann Gumma
sem er 7 ára og lendir í ýmsum
ævintýrum. Á fyrstu árum
Álfasteins var Dagbjört aðstoðar
leikskólastjóri leikskólans þann
ig að hún var vel kunnug og segir
starfsfólkið að gaman sé að fá
hana reglulega í heimsókn til að
lesa upp úr bókum sínum.
Á fundi fræðsluráðs Hafnar
fjarðar sl. mánudag var tekið
fyrir að nýju erindi frá Foreldra
ráði Hafnarfjarðar en ráðið
óskaði eftir því að samningur við
Skólamat yrði endurskoðaður og
foreldrum gefinn kostur á að
velja einstaka daga í skólafæði
fyrir börnin sín.
Eftir skoðun hjá Fræðslu
þjónustu var niðurstaða ráðsins
afgerandi. Fræðsluráð fagnaði
óskum foreldraráðs Hafnar
fjarðar um að foreldrar í Hafnar
firði geti valið um vikudaga í
áskrift að mat hjá Skólamat, en
niðurstöður athugunar Fræðslu
þjónustu leiddu það í ljós að
þetta er vel framkvæmanlegt.
Fræðsluráð fól fræðslustjóra
að endurskoða samning við
Skólamat með það í huga að
foreldrum verði gefinn kostur á
að velja einnig staka daga í
matar kaupum og nýtt fyrir
komulag verði kynnt svo fljótt
sem auðið er. Einnig verði unnið
að því að bjóða upp á samskonar
fyrirkomulag í þeim skólum sem
ekki selja mat frá Skólamat.
Hörður Svavarsson fulltrúi í
fræðsluráði segir þetta er góðar
fréttir fyrir börn og foreldra í
Hafnarfirði. „Ekki einungis
vegna þess að þarna er strax
brugðist við óskum og ábend
ingum foreldra heldur líka vegna
þess að þetta aukna frelsi fólks til
að stjórna sjálft hvað það kaupir,
er til þess fallið að hvetja þann
sem framleiðir matinn, til að hafa
hann enn meira freistandi og
betri að gæðum.“
Bæjarstjóri fékk fyrsta að keypta
skólamatinn í Setbergsskóla 2004.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n