Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 23.10.2014, Qupperneq 3

Fjarðarpósturinn - 23.10.2014, Qupperneq 3
www.fjardarposturinn.is 3 Fimmtudagur 23. október 2014 Hafðu það bragðgott alla daga! Kíktu á matseðilinn á www.burgerinn.is © F ja rð ar pó st ur in n 20 14 -0 5 Flatahrauni 5a Hfj. • 555 7030 Opið alla daga kl. 11-22 Munið krakka matseðilinn ELDBAKAÐAR PIZZUR FLOTTIR HAMBORGARAR BBQ KJÚKLINGUR QUESADILLA GRILLAÐAR LAMBAKÓTILETTUR Hádegisverðartilboð alla daga vikunnar Borðað í sal eða sótt í lúgu ...blaðið sem allir Hafnfirðingar lesa ..bæjarblað Hafnfirðinga síðan 1983 HVAR auglýsir þú? Helgistaðir við Hafnarfjörð – Saga Hafnarfjarðarkirkju og Garðaprestakalls á Álftanesi – Í desember mun sóknarnefnd Hafnarfjarðarkirkju gefa út vandað ritverk í tilefni 100 ára afmælis kirkjunnar, sem vígð var 20. desember 1914. Ritið verður um 1000 blaðsíður að stærð og gefið út í tveimur bindum í stóru broti með miklum fjölda mynda. Höfundur þess er Gunnlaugur Haraldsson þjóðhátta- og fornleifafræðingur. Fyrra bindið nær til sögu Garðaprestakalls hins forna fram til 1914, er Hafnarfjarðarkirkja tók til starfa og Garðakirkja var aflögð og í síðara bindi er rakin saga Hafnarfjarðarkirkju í 100 ár. Sagt er meðal annars frá aðdraganda þess, að byggð var kirkja í kaupstaðnum, undirbúningi framkvæmda og klofningi safnaðarins, staðarvali, hönnun, byggingu og vígslu kirkjunnar. Söluverð ritsins verður kr. 15.000. Öllum velunnurum Hafnarfjarðarkirkju mun gefast kostur á að árna kirkjunni heilla á merkum tímamótum með því að gerast áskrifendur og fá með því nöfn sín skráð í heillaóskaskrá (tabula gratulatoria) fremst í ritinu. Þeir sem hug hafa á að kaupa ritið, árna kirkjunni heilla, og fá nöfn sín skráð í heillaóskaskrá, geta haft samband við sr. Jón Helga Þórarinsson, sóknarprest, í síma 898 5531, netfang jon.helgi.thorarinsson@ kirkjan.is eða Magnús Gunnarsson, formann sóknarnefndar, í síma 665 8910, netfang magnus@haukar.is Hafnfirðingar taka höndum saman! Páll Rósinkrans og Margrét Eir á tónleikaferð Hinir ástsælu söngvarar Páll Rósinkrans og Margrét Eir taka nú höndum saman og gefa út vandaða plötu með þekktum amerískum þjóðlögum. Bæði eiga þau að baki langan og farsælan feril í íslensku tón­ listarlífi og hafa gefið frá sér ótal plötur, jafnt sem sólóistar og í samstarfi við helstu tónlistar­ menn landsins. Páll fagnaði á dög unum fertugsafmæli sínu með stórtónleikum í Háskólabíó og er greinilegt að söngvarinn með silkiröddina á mikið inni. Margrét Eir og Páll hafa unnið saman í gegnum árin en samstarf þeirra þykir blómstra á plötunni sem ber titilinn „If I needed you“. Tvíeykið heldur í fram­ haldinu í tónleikaferð um landið og koma meðal annars fram í hinu sögufræga Bæjarbíó í Hafnarfirði en bæði rekja þau rætur sínar til Hafnarfjarðar og bera sterkar taugar til bæjarins.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.