Vísbending - 06.10.2014, Qupperneq 1
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
V Í S B E N D I N G • 3 8 . T B L . 2 0 1 4 1
6. október 2014
38. tölublað
32. árgangur
ISSN 1021-8483
Sveitarfélög fóru mörg
geyst fyrir hrun og eru
stórskuldug síðan.
Markvisst hefur verið
unnið að því að bæta
fjárhaginn, en mörg stór
sveitarfélög eru í vanda.
Draumasveitarfélagið
að þessu sinni er
Seltjarnarnes, en
Garðabær í öðru sæti.
Það skiptir oft meira
máli hvað við höldum en
raunverulega er. Sumir
nýta sér það.
1 32 4
Sveitarfélög hafa mörg átt erfiða daga undanfarin ár. Þau tóku mikið fé að láni fyrir hrun og urðu allt
of skuldug í kjölfarið. Áform um mikla
uppbyggingu stóðust ekki og tekjur
stóðu ekki lengur undir afborgunum
með góðu móti. Sérstök eftirlits nefnd til
þess að fylgjast með fjár hag sveitarfélaga
hafði gnægð verk efna. Árið 2013 var
farið að styttast í kosningar, en þá grípur
framkvæmda gleðin oft bæjarfulltrúa sem
huga að endurkjöri. Á árinu minnkuðu
skuldir sveitar félaganna í heild um
næstum 10% að raunvirði. Meðal einkunn
þeirra í hinni árlegu úttekt Vísbendingar
á drauma sveitarfélaginu hækkar og þeim
fjölgar sem ná hærri einkunn en 5,0.
Einkunnir hækka og færri falla
Veik staða sveitarfélaganna hefur dregið
úr framkvæmdum og leitt til sam-
dráttar í þjónustu, einmitt þegar mörg
þeirra gjarnan vildu auka hana til þess
að bæta slakt atvinnuástand. Smám
saman eru þau þó mörg að ná fyrri styrk,
þannig að þau geta aftur farið að sinna
sínum verkefnum. Í þetta sinn fengu
23 sveitarfélög, eða rúmlega helmingur,
af þeim 35 stærstu meira en fimm í
einkunnagjöf Vísbendingar. Árið áður
voru þau sextán og sautján þar á undan.
Flest sveitarfélögin nota hæstu útsvars-
prósentu og því erfitt fyrir þau að bæta
fjárhaginn frekar nema með auknu
atvinnu stigi, fjölgun íbúa, niðurskurði
útgjalda eða sölu eigna.
Byggðarlög í vanda
Nokkur sveitarfélög hafa átt í miklum
vanda. Álftanes sameinaðist Garðabæ
sem er mjög vel rekið sveitarfélag. Þetta
kemur auðvitað niður á sameinuðu
sveitar félagi, sem engu að síður er með
mjög góðan fjárhag. Neðstu sveitar-
félögin á listanum í ár hafa lítið bætt
stöðu sína: Norðurþing, Sandgerði,
Reykjanes bær, Stykkishólmur og
Fljótsdals hérað eru öll í veikri stöðu árið
2013 eins og árin þar á undan.
Sveitarfélögin mjakast í rétta átt
Tafla 1. Einkunnir 35 stærstu
sveitar félaganna 2012- 2014
Röð 14 Röð 13 Röð 12 Bæjarfélag Eink.13 Eink.12 Eink.11 Meðaltal
1 2 9 Seltjarnarnes 9,3 7,2 5,7 7,4
2 1 1 Garðabær 8,7 8,8 9,0 8,9
3 12 24 Bláskógabyggð 7,4 5,4 3,9 5,6
4 10 30 Grindavíkurbær 7,1 5,5 3,7 5,4
5 6 11 Fjallabyggð 6,9 6,3 5,4 6,2
6 7 10 Vestmannaeyjar 6,9 6,2 5,4 6,2
7 3 3 Snæfellsbær 6,9 7,0 6,8 6,9
8 13 15 Húnaþing vestra 6,9 5,3 5,1 5,7
9 14 2 Akureyri 6,8 5,2 7,2 6,4
10 25 32 Rangárþing ytra 6,6 4,1 3,4 4,7
11 5 12 Ölfus 6,5 6,4 5,4 6,1
12 11 6 Dalvíkurbyggð 6,5 5,4 6,7 6,2
13 16 5 Akranes 6,4 5,0 6,7 6,1
14 18 7 Eyjafjarðarsveit 6,4 4,9 6,3 5,8
15 20 16 Árborg 6,2 4,8 5,0 5,3
16 8 13 Fjarðabyggð 6,1 5,7 5,1 5,6
17 31 17 Reykjavík 5,9 3,4 5,0 4,7
18 19 23 Rangárþing eystra 5,7 4,8 4,2 4,9
19 4 4 Hornafjörður 5,7 7,0 6,7 6,5
20 21 29 Ísafjarðarbær 5,5 4,5 3,7 4,6
21 26 20 Vogar 5,4 4,0 4,5 4,6
22 22 19 Hveragerði 5,1 4,4 4,6 4,7
23 9 21 Vesturbyggð 5,0 5,6 4,4 5,0
24 27 8 Þingeyjarsveit 4,9 3,9 6,0 5,0
25 28 25 Garður 4,6 3,9 3,9 4,1
26 29 27 Skagafjörður 4,5 3,7 3,8 4,0
27 33 28 Hafnarfjörður 4,5 3,0 3,7 3,7
28 17 18 Mosfellsbær 4,3 4,9 4,8 4,7
29 34 22 Kópavogur 4,2 2,8 4,3 3,8
30 15 14 Borgarbyggð 4,0 5,0 5,1 4,7
31 23 36 Sandgerði 4,0 4,2 2,5 3,6
32 32 33 Reykjanesbær 3,9 3,3 3,4 3,5
33 30 26 Norðurþing 3,9 3,5 3,9 3,8
34 24 31 Stykkishólmur 3,5 4,2 3,6 3,8
35 35 35 Fljótsdalshérað 2,9 2,5 2,7 2,7
Útreikningar Vísbendingar
framhald á bls. 2