Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.01.2011, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 20.01.2011, Blaðsíða 1
Metan er innlendur og umhverfisvænn orkugjafi sem er helmingi ódýrari en bensín. Nýttu þér kosti metans með Volkswagen. K. Steinarsson – Njarðarbraut 13 420 5000 - heklakef@heklakef.is Das Auto. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi 3. tölublað • 32. árgangur • Fimmtudagurinn 20. janúar 2011 Grillaður KjúKlinGur og 2l Coke 998kr Skráning í 420 7001 Ný og fjölbreytt tímatafla tók gildi 3. janúar 2011 Fjölbreytt námskeið við allra hæfi Áskorun Lífsstíls • Box Power Pump • CrossFit Heilsurækt fyrir konur Hressó • TTB (Tabata og Tae Bo) Ketilbjöllur • Boot cAmp Zumba • Aðhald konur Velkomin í Lífsstíl, betra líf hefst hjá okkur! 420 7001  lifsstill.net | www.flytjandi.is | sími 525 7700 | VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND „Síminn hringir ekki og það er lítið sem ekkert framundan í verkefnum. Við verðum að gera eitthvað og vonumst til þess að þessi tilraun okkar geti skapað okkur einhver verkefni,“ sagði Hjörleifur Stefánsson hjá Nesraf en fyrirtækið auglýsir í blaðinu í dag ókeypis ástandsskoðun raflagna. Nesraf hefur haft tólf menn í vinnu frá hruni en sú vinna hefur að mestu leyti verið á höfuðborg- arsvæðinu. Vinnu við stórt verk þar lauk nýlega og því ákváðu forsvarsmenn Nesrafs að leita á heimamarkaðinn, til bæjarbúa á Suðurnesjum. „Við komum heim til fólks og skoðum raflagnir án nokkurs gjalds og getum svo, ef fólk vill, gert grófa kostnaðaráætlun á því sem þarf að gera. Við vitum að það er víða sem þarf að laga ýmislegt á heimilum fólks. Nú er gott tækifæri að fá rafvirkja í vinnu og í ljósi stöðunnar á markaðnum er nokk- uð öruggt að hægt er að fá hagstætt verð,“ sagði Hjörleifur. Vitað er að staðan hjá öðrum iðnaðarmönnum, t.d. smiðum er mjög slæm. Nokkur verkefni hafa verið í gangi en nú er fátt um fína drætti og mörg fyrirtæki hafa sagt upp smiðum eða munu gera það á næstunni. pket@vf.is Býður ókeypis raflagna- skoðun í heimahúsum Flugstjóri með magapínu lenti í Keflavík 4 Lítið að gera hjá iðnaðarmönnum á Suðurnesjum Farþegaþota frá Air France með 232 um borð varð að lenda í Keflavík í vikunni eftir að flugstjóri þotunnar hafði veikst skyndi- lega þegar þotan var djúpt út af Reykjanesi. Mikill viðbúnaður var settur í gang og voru um 100 björgunarsveitarmenn, lögregla og sjúkralið í viðbragðsstöðu ásamt Slökkviliði Keflavíkurflugvallar. Lendingin gekk vel og var flugstjóranum ekið á Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja með sína magapínu þar sem hann fékk lausn sinna mála.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.