Víkurfréttir - 20.01.2011, Blaðsíða 21
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í YFIR ÞRJÁ ÁRATUGI! 21VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 20. JANÚAR 2011
Samstaða kvenna á Suðurnesjum hefur
vakið athygli. Frá því í
september hefur glæsi-
legur hópur kvenna hist
fyrsta þriðjudag í mánuði,
í húsnæði Miðstöðvar sí-
menntunar á Suðurnesj-
um, til að fræða hverja
aðra, hvetja hverja aðra til
dáða og styrkja tengslanet
Suðurnesjakvenna undir
merkjum SKASS (Samtök
kraftmikilla, alvöru, skap-
andi Suðurnesjakvenna).
Nú gerum við enn betur á
febrúarfundi samtakanna
og munu SKASS og Frum-
kvöðlasetrið á Ásbrú standa
fyrir kvöldi til að kynna kraft-
miklar konur á Suðurnesjum,
sem standa í frumkvöðla-
starfsemi, og eru allar konur
velkomnar. Fjöldi kvenna
kynnir verkefni sín og fyr-
irtæki, veitingar verða í boði
nokkurra frábærra fyrirtækja,
tónlistaratriði og góðir gestir.
Þetta er tækifæri fyrir Suður-
nesjakonur til að hvetja hver
aðra til dáða og láta reynslu
annarra verða okkur hvatn-
ing til að láta drauma okkar
rætast, hverjir sem þeir eru!
Kvöldið er, eins og SKASS,
opið öllum konum á Suður-
nesjunum og vonast for-
ráðamenn til að sjá sem
allra flestar. Viðburðurinn
verður haldinn þriðjudags-
kvöldið 1. febrúar kl. 20:00 í
Frumkvöðlasetrinu á Ásbrú
í Eldey við Grænásbraut.
Ef einhverjar konur leynast
hér úti um nesin sem ekki
hefur verið haft samband
við en vilja kynna verkefni
sín eða fyrirtæki, endilega
hafið samband við Þórönnu
K. Jónsdóttur, aðra forsvar-
skonur SKASS, thoranna@
asbru.is og sími 843 6020
fyrir mánudaginn 24. janúar.
Þann 2. febrúar hefst svo
námskeiðið Brautargengi,
frá Nýsköpunarmiðstöð Ís-
lands. Námskeiðið er tilvalið
fyrir þær sem vilja hrinda
viðskiptahugmyndum í fram-
kvæmd í nýju eða starfandi
fyrirtæki - og bætast þar með
í hóp kraftmikilla kvenfrum-
kvöðla á Suðurnesjunum!
Frekari upplýsingar má finna
á vefnum www.nmi.is/impra
SKASS eru opin samtök fyrir
konur á Suðurnesjunum. Til-
gangurinn er að efla tengsl-
anet kvenna á svæðinu, fræð-
ast og fræða, efla okkur sjálfar
og um leið hvor aðra og styðja
konur á Suðurnesjunum til
dáða í námi og starfi. Ein-
kunnarorðin eru gleði, kraftur
og sköpun. Það eru allar kon-
ur velkomnar á SKASS fundi,
og því fleiri því skemmtilegra!
Fáðu að vita meira á skass.org.
Frumkvöðlasetrið á Ásbrú
hefur þann tilgang að styðja
við þá sem eru að stíga sín
fyrstu skref í að þróa við-
skiptahugmynd eða eru að
stíga fyrstu skref í rekstri.
Fáðu að vita meira á vefsíð-
unni incubator.asbru.is
Kraftmiklar konur
á Suðurnesjunum!
ER RAFMAGNIÐ
Í LAGI?
Nesraf býður upp á ókeypis skoðun á raflögnum til
1. febrúar og gerir tilboð í úrbætur.
Þessi þjónusta er viðskiptavinum algjörlega að
kostnaðarlausu og án skuldbindingar.
Hjörleifur 893 9065 og Jón Ragnar 8975952
Spkef sparisjóður byggir á gamalli hefð en horfir til framtíðar, til hagsbóta
fyrir það samfélag sem hann starfar í. Hjá sparisjóðnum starfar öflugur
hópur fólks sem leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum
framúrskarandi þjónustu.
Forstöðumaður starfsmanna- og rekstrarsviðs
Spkef sparisjóður óskar eftir að r áða forstöðumann starfsmanna- og rekstrarsviðs.
Forstöðumaður hefur yfirumsjón með starfsmannamálum, gæðamálum,
öryggismálum, húsnæðismálum og upplýsingatæknimálum sparisjóðsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun er skilyrði
Framhaldsnám á sviði mannauðsmála er æskilegt
Reynsla af stjórnun og mannaforráðum skilyrði
Reynsla af gæða- og öryggismálum æskileg
Reynsla af áætlanagerð og greiningarvinnu æskileg
Mjög góð færni í mannlegum samskiptum
Góð skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir. Forstöðumaður hefur aðsetur í Reykjanesbæ.
Upplýsingar veita:
Katrín S. Óladóttir (katrin@hagvangur.is)
og Rannveig J. Haraldsdóttir (rannveig@hagvangur.is)
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar nk.