Víkurfréttir - 10.03.2011, Qupperneq 4
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 10. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR4
ATVINNA
Sumarstörf hjá Sveitarfélaginu Vogum
Eftirtalin sumarstörf eru laus til umsóknar hjá sveitarfélaginu sumarið 2011
Staða flokkstjóra í vinnuskóla
Flokkstjóri starfar undir stjórn forstöðumanns umhverfis og eigna. Hann stjórnar starfi
vinnuskólahóps, kennir nemendum rétt vinnubrögð, vinnur með liðsheild og verkvit, er
uppbyggilegur og til fyrirmyndar. Flokkstjóri verður að hafa bílpróf og geta hafið störf um
miðjan maí. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á vinnutímabilinu. Flokkstjóri skal vera 20 ára eða eldri.
Ráðnir verða 3 flokkstjórar og eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um.
Sumarafleysingar í íþróttamiðstöð
Um er að ræða störf við afgreiðslu, þrif, gæslu á böðum, laugarvörslu og annað tilfallandi.
Starfsmaður þarf að standast hæfnispróf sundstaða, vera stundvís og geta unnið undir álagi.
Skilyrði er að umsækjandi sé 18 ára eða eldri. Starfsmaður verður að geta hafið störf í júní. Ekki
er gert ráð fyrir frítöku á tímabilinu. Unnið er á vöktum. Starfshlutfall 50%.
Vinnuskólinn og íþróttamiðstöðin eru tóbakslausir vinnustaðir.
Umsóknarfrestur er til 8. apríl 2011.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja
Nánari upplýsingar um störfin veitir frístunda- og menningarfulltrúi í síma 440-6225.
Umsókn sendist rafrænt á stefan@vogar.is eða skilist á pappír á skrifstofu
Sveitarfélagsins. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu félagsmiðstöðvarinnar eða á
skrifstofu Sveitarfélagsins.
Frístunda- og menningarnefnd
Sveitarfélagsins Voga
Íslandspóstur - Vogum
Íslandspóstur - Vogum óskar eftir að ráða starfsmann í flokkun
og útburð. Um framtíðarstarf er að ræða, starfshlutfall er 61%.
Nánari upplýsingar í síma 424-6631 eða á staðnum.
Þrjár konur ehf Vogum, Iðndal 2
FRÉTTAYFIRLIT VÍKURFRÉTTA
VF.IS FRÉTTIR SPORT
... síðustu 7 dagar á vf.is
Koparstrengjum fyrir milljónir
stolið í Reykjanesbæ
Tveimur keflum með kopar-
strengjum var stolið af athafna-
svæði hjá HS Veitum í Reykja-
nesbæ í febrúar. Þjófnaðurinn
uppgötvaðist þann 22. febrúar
sl. en gæti hafa átt sér stað á
þriggja vikna tímabili þar á
undan.
Koparkeflin vega um 800 kíló og hvort um sig kostar 2,8
milljónir króna í innkaupum, þannig að verðmæti þeirra er
5,6 milljónir króna.
Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins.
Bláa lónið styrkir heiðursþátttöku
Íslands á bókasýningunni í Frankfurt
Sögueyjan Ísland og Bláa lónið
hafa gert með sér samkomulag
um að Bláa lónið verði einn
af styrktaraðilum heiðursþátt-
töku Íslands á bókasýningunni
í Frankfurt. Grímur Sæmund-
sen, forstjóri Bláa lónsins hf.,
og Halldór Guðmundsson,
verkefnisstjóri Sögueyjunnar, undirrituðu samninginn föstu-
daginn 25. febrúar.
Grímur sagði það vera bæði ánægjulegt og mikilvægt fyrir
Bláa lónið að taka þátt í verkefninu og stuðla þannig að enn
frekari áhuga Þjóðverja á landi og þjóð í gegnum bókmenntir
sem eru mikilvægur þáttur í menningu okkar Íslendinga.
„Árlega heimsækja rúmlega fjögur hundruð þúsund gestir
Bláa lónið sem í dag er einn vinsælasti áfangastaður erlendra
ferðamanna er sækja Ísland heim. Gestir af þýska málsvæðinu
eru þar fjölmennur hópur.“
Bláa lónið mun verða hluti af kynningarmynd í sýningarskála
Íslands á bókasýningunni í Frankfurt í október. Íslenskar
bókmenntir og íslensk náttúra verða í aðalhlutverki í kynn-
ingarmyndinni. Halldór sagði það vera sérstaka ánægju fyrir
Sögueyjuna að fá svo öflugan bakhjarl og samstarfsaðila í
þetta spennandi verkefni sem framundan er.
Garðmenn styrkja plötuútgáfu
Sveitarfélagið Garður hefur
samþykkt að styrkja plötuút-
gáfu Suðurnesjahljómsveitar-
innar Of Monsters and Men
um 150.000 krónur. Hljóm-
sveitina skipar m.a. Nanna
Bryndís Hilmarsdóttir úr
Garði.
„Á síðasta ári hlaut Nanna Bryndís og hljómsveit hennar
þann heiður að sigra í Músíktilraunum en það eru önnur
helstu tónlistarverðlaun landsins og því mikill heiður fyrir
okkur Garðmenn að eiga slíkt listafólk og sendir bæjarráð
Garðs þeim bestu óskir um gott gengi,“ segir í bæjarráði
Garðs. Samþykkir bæjarráð að styrkja sveitina um 150.000
krónur og jafnframt er bæjarstjóra falið að ræða við hljóm-
sveitarmeðlimi um óskir þeirra að koma fram á skemmtun á
vegum bæjarins.
SUMARSTÖRF Í
EPAL DESIGN
Epal Design á Keflavíkurflugvelli leitar eftir tveimur starfsmönnum í
sumarafleysingar, einn í 100% starf og annan í 75% starf.
Unnið er á 3-2-2 vöktum. Verslunin selur íslenska og erlenda gjafavöru
auk íslenskra skartgripa.
Allar nánari upplýsingar veitir Elísabet Guðmundsdóttir
starfsmannastjóri í síma 568-7733.
Umsóknum skal skila á netfangið elisabet@epal.is fyrir 17. mars nk.
STANDIÐ MEÐ OKKUR VAKTINA!
Tekið er við ábendingum um jákvæðar og
skemmtilegar fréttir alla daga í síma 421 0002
eða á póstfangið vf@vf.is
Fréttadeild VíkurFrétta