Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.03.2011, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 10.03.2011, Blaðsíða 16
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 10. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR16 Tveir kvennaklúbbar innan Lionshreyfingarinnar eru starfandi í Reykjanesbæ, Lionessur og Lionsklúbb- urinn Æsa. Samanstanda báðir klúbbarnir af góðum hópi kvenna á ýmsum aldri. Þær hittast á fundum tvisvar í mánuði yfir veturinn og eiga þá saman góðar stundir. Blaðasnáp var boðið á fund Lionsklúbbsins Æsu kvöld eitt fyrir stuttu. Formaður þar núna er Guðrún Guðmunds- dóttir en félagskonur skipta með sér verkum í stjórn á hverju ári. Það má segja að þær líti á öll embættin sem eins- konar leiðtogaþjálfun, því það getur falist töluverð áskorun í því að leiða félagsstarfið heil- an vetur en einnig holl og góð reynsla. Allar vilja þær vinna að betra samfélagi með þátt- töku sinni í félagsskapnum um leið og þeim finnst afar gaman að hittast. Innhverf íhugun Á þessum fundi var gestur kvöldsins Hjördís Árnadóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanes- bæjar, sem flutti fróðlegt erindi um Innhverfa íhugun, sem hún hefur stundað undan- farin ár. Hún sagði að hér á Suðurnesjum hefðu 70-80 manns lært þessa tegund hug- leiðslu undanfarið en eins og mörgum er kunnugt þá kom hingað til lands David nokkur Lynch, til að bjóða Íslending- um að læra Innhverfa íhugun gegn vægu gjaldi, tilboð þetta stendur víst enn. Fólk gerir sér lítið grein fyr- ir þeim hættum sem streita hefur á heilsuna en streita er stundum kölluð hinn þögli morðingi. Hugleiðsla og slökun hafa græðandi áhrif á andlega og líkamlega heilsu en það hefur Hjördís svo sann- arlega fundið á sjálfri sér. Hún vildi miðla reynslu sinni til þeirra sem leita eftir innri frið og ró. Hjördís starfar sjálf á annasömum vettvangi og segir að þessi tegund slökunar hafi gert sér mjög gott. Næsta námskeið á Suðurnesj- um verður seinnipart mars. Rannsóknir sýna að þar sem Innhverf íhugun er stunduð, þar hefur glæpum fækkað og ofbeldi minnkað. Betra samfé- lag fær byr undir báða vængi. Þetta var ekki eini fróðleiks- moli kvöldsins því þær Lions- konur skipa sjálfar alltaf ein- hverja Lionskonu til að koma með fræðslu á næsta fundi, þær kalla þetta stundina hans Fróða. Þetta kvöld var Rakel Benediktsdóttir Fróði kvölds- ins og fjallaði hún um jákvætt hugarfar og áhrif þess á heilsu. Sjálf hafði hún notað jákvæðar hugsanir til að lækna sig. Nýflutt og þekkti engan Þórhildur Eggertsdóttir er nýflutt í Reykjanesbæ og var boðið að ganga í klúbbinn. Hún sagði það hafa bjargað sér að ganga í klúbbinn þegar hún þekkti engan í bæjarfélag- inu. Núna heilsar hún góðum Lions vinkonum á förnum vegi, spjallar og finnur sig meira heima. Þórhildur sagði að þegar fólk flytur í nýjan bæ með uppkomin börn þá sé erfitt að mynda tengsl við aðra fullorðna en svona félags- skapur opnar leiðina fyrir vin- áttu. „Ég vildi byrja strax þegar ég frétti af klúbbnum og það gekk eftir. Ég flutti hingað úr Grinda- vík en starfa í Reykjavík. Við ætluðum að flytja inneftir en við gátum ekki réttlætt það að kaupa dýrt í Hafnarfirði en þar gátum við fengið fokhelt hús á 34 milljónir á meðan okk- ur bauðst að kaupa hér sömu stærð fokhelda á 19 milljónir. Miklu skynsamlegri kaup að koma hingað. Mér finnst rosa gaman í Lionsklúbbnum, kon- urnar eru hressar og skemmti- legar. Það er einnig gott að vita að ég geri gagn og hjálpa til í samfélaginu þegar ég tilheyri þessum félagsskap,“ sagði Þór- hildur hress í bragði. Konur eru kröftugar saman! Guðrún Guðmundsdóttir, for- maður, sagði mér að félagskon- um hefði fjölgað undanfarið. Konur hafa gaman af starfinu, þær koma til að hittast, til að borða góðan mat en þær vilja einnig fræðast um leið og þær eiga saman góða kvöldstund. Þetta er mannbætandi félags- skapur og þungamiðjan í öllu starfinu er líknarstarfið, að láta gott af sér leiða fyrir sam- félagið okkar allra. Þær vilja byggja sig upp og samfélagið einnig. Það myndast mjög góður félagsandi og reglulega gera þær eitthvað óvenjulegt sam- an, fara í ferðalag eða læra eitthvað nýtt. Þær fóru td. á leirnámskeið í einni óvissu- ferðinni. Næsti fundur verður á allt öðrum stað en þá verður kaffi- húsakvöld og ætla þær að læra dans. Þetta kvöld mega þær bjóða vinkonum sínum með sér. Nýjar félagskonur eru ætíð velkomnar að ganga í klúbbinn en best er að leita upplýsinga hjá formanninum sjálfum, Guðrúnu í síma 421-2729. BLÓMSTRANDI Það eru þó nokkuð mörg líknarfélög starfandi hér á Suðurnesjum, ýmist karlafélög eða kvennafélög og/eða félög þar sem bæði kynin hafa rétt til þátt- töku. Mörgum finnst mannbætandi að tilheyra svona félagsskap, það gefur líf- inu lit. Skemmtilegt og gefandi félagsstarf Texti og myndir: MarTa EiríkSdóTTir Guðrún Guðmundsdóttir, formaður. rakel Benediktsdóttir. Þorbjörg Garðarsdóttir fékk orðu. Þórhildur Eggertsdóttir.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.