Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.03.2011, Síða 8

Víkurfréttir - 10.03.2011, Síða 8
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 10. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR8 4 Karma Keflavík hefur opnað í Grófinni GÓUGLEÐI Félag eldri borgara á Suðurnesjum heldur hina árlegu góugleði í samkomuhúsinu í Garði 13. mars nk. kl. 15:00. Margt til skemmtunar að ógleymdu kaffihlaðborði. Fjölmennum! Skemmtinefndin. Brekkustíg 38 | 260 Reykjanesbæ | www.tsa.is | tsa@tsa.is | Sími:x 421 2788 TSA ehf. Trésmíðaverkstæði Stefáns & Ara Karma Keflavík, sem er hollustumatsölustaður þar sem boðið er upp á holla skyndibita og næringarlega rétt samsettar máltíðir í sam- ræmi við ráðleggingar Lýð- heilsustöðvar, opnaði í Gróf- inni 8 í Keflavík á föstudag- inn. Það eru þær Sóley Birg- isdóttir, lýðheilsufræðingur og Hildur Kristjánsdóttir sem standa að matsölustaðnum. „Nafnið á staðnum, Karma, kom eiginlega út af þýðingu orðsins. Karma þýðir í raun afleiðing á gjörðum fólks, en það sem við látum ofan í okkur Hollustustaður með veglegan matseðil verður einhver afleiðing, því við erum það sem við borð- um“ sagði Sóley. „Við notum aðeins gæða hráefni. Ekkert ger, sykur eða hvítt hveiti er notað og þess í stað erum við með mikið af lífrænu hráefni, þó ekki allt þar sem það fæst ekki allt líf- rænt í dag.“ Matseðillinn á Karma Keflavík er frekar veglegur. Kjúklinga- vefja, lasagna, graskerssúpa og Karmabollur eru meðal rétta en allt eru þetta hollir réttir og næringarlega rétt samsettir. Karmakakan hefur fengið svakalega dóma en hún er m.a. með kiwi, jarðarberjum og rjóma, ekkert ólík eplaköku. „Okkur langar líka til að inn- leiða smá kaffihúsastemningu og þá vera með kaffi og kökur á boðstólum. Fólk getur komið og skoðað listasýningu sem er í salnum hjá okkur en það verða alltaf einhverjar sýn- ingar í salnum, nýr listamaður á u.þ.b. 6 vikna fresti,“ sagði Sóley. Karma Keflavík er opið mánudaga til föstudaga frá kl. 11:00 til 19:30. Það eru þær Sóley Birgisdóttir, lýðheilsufræðingur og Hildur Kristjánsdóttir sem standa að matsölustaðnum. Úr matsal Karma. Að neðan er mynd sem tekin var í opnunarhófi staðarins nú á dögunum.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.