Víkurfréttir - 28.04.2011, Blaðsíða 10
2 Opinn dagur 30. apríl 2011ÁSBRÚ
Hinn árlegi Opni dagur á Ásbrú verður haldinn í fjórða
sinn laugardaginn 30. apríl næstkomandi frá kl 12.00
til 16.00. Í fyrra mættu tæplega 20 þúsund manns og
skemmtu sér konunglega við frábæra dagskrá dagsins.
Dagskráin verður engu síðri í ár og nokkuð ljóst að
allur aldur ætti að finna eitthvað við sitt hæfi.
Nemendur og starfsfólk Keilis mun kynna fjölbreytt námsframboð í
húsnæði sínu s.s. nám í Háskólabrú, Heilsu- og uppeldisskólanum,
Orku- og tækniskólanum og Flugakademíunni. Nemendaíbúðir verða
kynntar og til sýnis almenningi.
Í Íþróttahúsi er fjölbreytt dagskrá þar sem ÍAK nemar bjóða upp á ör-
fyrirlestra tengda þjálfun og heilsu, þrautabraut fyrir hrausta krakka
verður sett upp ásamt opnum áskorunum þar sem almenningi gefst
kostur á að taka þátt í skotkeppnum, Keiliskastaranum og að takast á
við Sterkasta manninn á Íslandi, Stefán Sölva, í sjómanni. Verðlaun í
boði.
Fyrir utan skólann verða stærsti slökkvibíll landsins, körfubíll og
sjúkraflutningabíll til sýnis. Þyrla Landhelgisgæslunnar mætir á svæð-
ið kl. 14.00 og tekur æfingu. Að henni lokinni mun hún svo lenda
og verður þyrlan til sýnis almenningi. Þyrla Vesturflugs býður uppá
þyrluflug gegn vægu gjaldi.
Fyrirtæki á Ásbrú munu einnig kynna starfsemi sína en þar er fjöl-
breytt flóra hinna ýmsu þjónustufyrirtækja og sprotafyrirtækja.
Nokkur fyrirtæki munu einnig vera með opið hús hjá sér og bjóða
nokkur upp á tilboð í tilefni dagsins.
Skemmtun fyrir börnin verður á sínum stað þar sem Pollapönk ásamt
Bjarna töframanni fer fremst í flokki. Töggukast í boði Nóa Siríus
verður úr kranabíl slökkviliðs Brunavarna Suðurnesja. Súkkulaðimol-
ar verða í leyni á víð og dreif um svæðið fyrir almenning að finna og
gæða sér á. Andlitsmálning og blöðruskúlptúrar verða á sínum stað
og um að gera að mæta tímanlega í það. Grillaðir verða sykurpúðar
á metangrilli í boði Bónus. Þrautabraut fyrir hrausta krakka verður í
Íþróttahúsinu ásamt fjöldi annarra skemmtilegra viðburða allan dag-
inn.
Sér dagskrá verður hjá Frumkvöðlasetrinu á Ásbrú
Þar verða opnir örfyrirlestrar í boði Trompsins, nýs frumkvöðlanáms
hjá Keili með áherslu á verkefna- og viðburðastjórnun og fara þeir
fram í glæsilegri aðstöðu setursins í Eldey. Einnig munu nokkur frum-
kvöðlafyrirtæki með aðsetur í húsinu kynna starfsemi sína.
Akstursíþróttafélag Suðurnesja heldur Leikdag sinn á Opnum degi
með glæsilegri dagskrá allan daginn. Dagskrá verður við félagsheimili
AÍFS þar sem starfsemin verður kynnt, bílasýning, fjórhjólarallý og
fjórhjólaþrautir, og heitt verður á könnunni. Ökuleiknisþrautin AutoX
sem hefur verið gríðarlega vinsæl í Bretlandi verður í boði fyrir al-
menning til að spreyta sig á á plani Atlantic Studios í boði AÍFS. Tekið
er þátt á eigin bílum, tímataka er í brautinni og verðlaun verða veitt í
lok leikdags.
Innileikjagarður fyrir börnin verður opinn, fyrirtækin á Ásbrú verða
með tilboð og margt fleira í boði þennan Opna dag á Ásbrú frá kl.
12.00 – 16.00.
Ítarlegri dagskrá á asbru.is og á facebook/asbru.
Verið velkomin á Opinn dag á Ásbrú, í blíðskaparveðri, laugardaginn
30. apríl frá kl. 12.00-16.00.
Opinn dagur
á Ásbrú 30. apríl nk.
Pylsuvagn á Ásbrú
Elmar Þór Magnússon og Helga V. Andersen opnuðu nýverið pylsuvagn á
Ásbrú í Reykjanesbæ. Pylsuvagninn heitir Bragginn og hefur verið starf-
ræktur á Ásbrú undanfarna tvo mánuði og fengið góðar viðtökur að sögn
Elmars.
Fjölbreyttur matseðill þegar kemur að skyndiréttum er í boði auk þess
hefðbundna að kaupa sér pylsu og Coke. Þá hafa hamborgaratilboðin
verið að gera góða lukku að sögn veitingamannsins. Í boði er hamborgari,
franskar og Coke fyrir 790 krónur og eins fjölskyldutilboð sem er 4 ham-
borgarar, stór skammtur af frönskum og 2 lítrar af Coke á 2.750 krónur.
Bragginn er opinn alla daga frá kl. 11-20 en vagninn er í göngufæri frá
Keili og stendur beint á móti leikskólanum Velli.
„Það var annað hvort að fara að
skæla og vera þunglyndur yfir öllu
saman eða að fara og gera eitt-
hvað gott. Við ákváðum því bæði
að skella okkur í nám,“ segir Una
Kristín.
Eftir hrunið hafi reksturinn orðið
erfiðari og erfiðari með hverjum
mánuðinum. Ellefu starfsmenn
voru hjá fyrirtækinu fyrir hrun en
þeim fækkaði næstum um hver
mánaðamót. Eins var húsnæði
dregið saman frá því að vera 900
fermetrar og niður í 200 fermetra.
Björn segir að undir það síðasta
hafi hann verið orðinn einn eftir í
fyrirtækinu og það hafi ekki einu
sinni dugað til og því sjálfhætt.
„Tæpu ári eftir hrunið ákvað ég að
gera eitthvað uppbyggilegt og setti
því stefnuna á að læra að reka fyrir-
tæki,“ segir Björn.
Byrjuðu bæði í námi
hjá Keili
Unu vantaði grunninn í sitt nám og
byrjaði því í háskólastoðum. Þaðan
fór hún í fjarnám hjá Keili en Björn
fór í staðnámið. Hann segir það hafa
gengið prýðilega, enda góð aðstaða
hjá Keili og mjög góðir kennarar.
Þá hafi námsefnið verið tekið vel
og þétt yfir árið þannig að undir-
búningurinn hafi verið góður fyrir
áframhaldandi nám í viðskipta-
fræði í Háskólanum í Reykjavík.
„Ég kom mjög vel undirbúinn fyrir
það nám frá Keili og ekki getað haft
það betra, enda ekki verið í skóla í
þrettán ár“.
Una er í félagsráðgjöf við Háskóla
Íslands og segist hafa fengið að
heyra það hvað Keilisnemendur
hafa komið vel undirbúnir undir
námið við HÍ og að hjá Keili sé
greinilega verið að kenna nem-
endum að fara inn í háskólann.
„Sumir sem eru með mér í náminu
hafa sagt að þeir hafi viljað fara í
Keili til að koma sér í gang fyrir
háskólanámið,“ segir Una Kristín.
Björn bætir því hins vegar við að
hann hefði viljað vera lengur í
námi hjá Keili og getað menntað
sig meira þar. Hann kunni það vel
við Keili og þá aðstöðu sem þar er
til náms. „Það er þægilegt að geta
labbað hér niður í skóla og ég hefði
ekki þurft að hugsa mig tvisvar um
ef frekara nám hefði verið í boði
fyrir mig,“ segir Björn.
Ekki erfið ákvörðun að
flytja á Ásbrú
Þau Una og Björn segja það ekki
hafa verið erfiða ákvörðun að rífa
sig upp og setjast að á Ásbrú. Íbúð-
irnar séu góðar og það fari vel um
þau. „Þau sem eru að reka þetta eru
elskuleg og yndisleg og bregðast
alltaf vel við ef það er eitthvað sem
þarf að laga,“ segja þau bæði.
Una byrjaði í fjarnámi við Há-
skóla Íslands og var þá heimavið
og tók námið í lotum. Núna fara
þau hins vegar bæði með rútunni í
skólann á morgnana og koma aftur
heim síðdegis. Börnin þeirra eru á
sama tíma í sínum skólum á Ásbrú.
Tvö þeirra í Háaleitisskóla og það
yngsta í leikskólanum Háaleiti.
Þau Una og Björn hrósa bæði Háa-
leitisskóla og leikskólanum Háaleiti
fyrir gott starf. Þau segjast kunna
að meta það átak sem gert hefur
verið í agamálum í skólanum og
börnin komi sátt heim alla daga.
Þá kemur yngsta dóttirin syngjandi
heim úr leikskólanum.
Þau benda á að aðstæður þeirra
sem búa á Ásbrú séu mismunandi.
Nú stefni í að elsta barnið á heim-
ilinu fari næsta haust í Njarðvíkur-
skóla í stað þess að halda áfram í
Háaleitisskóla. Elsta barnið á heim-
ilinu hafi haft það verkefni að fylgja
yngri systkinum sínum í skólann
og leikskólann því foreldrarnir taki
rútuna á sama tíma til Reykjavíkur
til að fara þar í sitt nám. Það verði
breytingar á þessu í haust sem finna
þurfi lausn á innan fjölskyldunnar.
Góðar samgöngur til
Reykjavíkur
Þau Una og Björn eru ánægð með
tíðar rútuferðir milli Ásbrúar og
Reykjavíkur og hrósa þeim sam-
göngum. Þegar til Reykjavíkur er
komið nýti þau sér strætisvagna til
að komast á áfangastað. Flesta daga
eru þau svo komin aftur heim milli
kl. 15 og 17. Flestir nýti sér það á
morgnana að leggja sig í rútunni
á leiðinni í bæinn en undanfarið
hafa þó verið heitar umræður um
Icesave. Þá sé einnig hægt að fara
á netið í rútunni. Þau segja að með
tíðum samgöngum á milli Reykja-
víkur og Ásbrúar hafi þau náð að
láta skólatíma sinn og barnanna
ganga upp. Þau hafi tvo aðila á
Ásbrú til að leita til ef upp koma
vandræði en þau hafi ekki þurft að
nýta sér það til þessa.
Vilja vera áfram á Ásbrú
Fjölskyldan getur hugsað sér að
vera áfram á Ásbrú. Þannig segist
Björn vera að velta því fyrir sér
að fara í sjávarútvegsfræði. Hún
sé aðeins kennd við Háskólann á
Akureyri en hins vegar sé hægt að
stunda hana í fjarnámi frá Miðstöð
símenntunar á Suðurnesjum. Þá sé
hann til staðar á Suðurnesjum.
Börnin á heimilinu eru einnig sátt
við lífið og tilveruna á Ásbrú. Elsta
dóttirin hefur verið í BRYN ballett
akademíunni og sonurinn tók þátt
í gospelkórnum hjá Hjálpræðis-
hernum síðasta vetur.
Una Kristín Árnadóttir og Björn Sverrisson
búa með þrjú börn á Ásbrú og eru bæði í námi:
Una Kristín Árnadóttir og Björn Sverrisson búa með þremur börnum sínum í nem-
endaíbúðum Keilis á Ásbrú. Una á ættir sínar að rekja í Mývatnssveitina en Björn kemur
frá Siglufirði. Þau voru með eigið fyrirtæki í innréttingasmíði en þegar efnahagskreppan
skall á fór mjög að draga úr verkefnum fyrir fyrirtækið þeirra og að lokum misstu þau
sjálf vinnuna.
Vildu gera eitthvað upp-
byggilegt og fluttu á Ásbrú
„Sumir sem eru með
mér í náminu hafa sagt
að þeir hafi viljað fara
í Keili til að koma sér í
gang fyrir háskólanám-
ið,“ segir Una Kristín.