Víkurfréttir - 28.04.2011, Blaðsíða 16
8 Opinn dagur 30. apríl 2011ÁSBRÚ
Einar hefur menntað sig í skrúð-
garðyrkju og fór einnig í nám til
Danmerkur þar sem hann fór í
framhaldsnám í tæknifræði. Að
loknu námi kom hann heim til
Reykjanesbæjar. Eitt af fyrstu verk-
efnum hans eftir heimkomuna var
að hanna nýjan knattspyrnuvöll í
Keflavík.
Sérhæfður í grasfræðum
„Þetta er aðeins öðruvísi hjá mér
en flestum öðrum sem fóru til
Danmerkur í nám í tæknifræði.
Ég er ekki í byggingum, heldur
í umhverfinu utandyra og öllu
sem tengist því, hvort sem það er
landmótun eða gróður. Þá hef ég
sérhæft mig nokkuð í grasfræðum
en gróðurpælingar voru auðvitað
nokkuð djúpar í náminu,“ sagði
Einar.
- Er gras ekki bara gras?
„Nei, gras er ekki bara gras en
venjulegu fólki finnst það. Ég ákvað
að fara aðeins dýpra í grasafræðin
og ég held að við séum ekki nema
tveir hér á landi í þessum pælingum
tengdum knattspyrnuvöllunum og
þetta er eitthvað nýtt hér á landi.
Þessi fræði sýna sig m.a. í tveimur
nýjustu knattspyrnuvöllunum á Ís-
landi sem eru í Keflavík og á Sel-
fossi,“ segir Einar, sem kom einnig
að ráðgjöf við gerð Selfossvallarins.
Hann segir að á ráðstefnum og sam-
komum sem haldnar eru í þessum
geira hefur komið fram hjá fagfólki
og þeim sem eru að snúast í þessum
málum að það sé verið að taka skref
uppávið í grasvallarfræðum á Ís-
landi.
Í lokaritgerð Einars við danska
skólann „Jordbrugets Uddannel-
sesCenter Århus“ er gerður
samanburður á byggingu á nýjum
knattspyrnuvöllum erlendis og hér
á Íslandi. Hann segist hafa séð það
að erlendis séu menn aðeins framar
en við hér heima.
„Það er mín skoðun að við getum
nýtt ýmislegt af því sem gert er úti
hér heima, þó svo sumt þurfi að
aðlaga að aðstæðum hér heima.
Byggingarefnið í vellina hér á landi
er öðruvísi og eins veðurfarið.
Gæðagras og
upphituð trjárækt
Fjölbreytt flóra fyrirtækja hefur hreiðrað um sig í fyrirtækjahótelinu Eldvörpum við
Flugvallarbraut á Ásbrú. Eitt þessara fyrirtækja er Lauftækni, sem starfar á sviði land-
mótunar og gróðurs. Eigandi fyrirtækisins er Einar Friðrik Brynjarsson.
Mótar 6 holu golfvöll
á Ásbrú
Á Ásbrú er mikið um stór opin
svæði og grassvæði. Á einu þeirra,
þar sem svokallað Kínahverfi stóð
áður á tímum Varnarliðsins, hefur
Einar fengið það verkefni að móta
6 holu golfvöll á svæðinu og sett
hefur verið upp viðhaldsáætlun
fyrir sumarið sem farið verður
eftir.
„Það verður svolítið spennandi að
sjá hvernig tekst til því það verður
ekki varið miklum peningum í
þetta verkefni og við erum bara að
vinna með þann efnivið sem er á
staðnum,“ segir Einar.
Svæðið þar sem golfvöllurinn er
var í raun bara mói og mosi. Þarna
var á sínum tíma tyrft yfir hverfið
sem stóð þarna, sem Einar segir að
gefi hverfinu vissulega möguleika
ef farið verður lengra með hug-
myndina. Það væri vissulega hægt
að byggja upp flatir á gömlu grunn-
unum undir húsunum sem þarna
voru. Í þessum áfanga voru flat-
irnar hins vegar settar niður eftir
landslaginu og farið verður í hefð-
bundnar viðhaldsaðgerðir á grasinu
á staðnum með slætti, áburðargjöf,
götun, söndun og öðru því sem þarf
til að rækta upp gott gras.
„Svo þegar við höfum náð þessu
á gott strik getum við tekið næsta
skref og farið að yfirsá, sem er ekki
tímabært núna. Við erum hins
vegar metnaðarfullir þessa dagana
að ná þessu svæði á gott strik,“ segir
Einar.
Hann segir að ef verið væri að
búa til nýjan golfvöll þyrfti að fara
eftir þeim stöðlum sem gefnir hafa
verið út fyrir flatir og þess háttar
og þar séu mjög djúpar pælingar
hvernig eigi að gera flatir svo þær
verði sem bestar. Á golfvellinum á
Ásbrú sé kostnaðinum haldið í al-
gjöru lágmarki og pælingarnar ekki
eins djúpar og á alvöru golfvelli.
Aðeins sé notaður efniviður sem er
fyrir á staðnum og þ.a.l. geti golf-
vallargerðin tekið lengri tíma, enda
völlurinn hugsaður sem leiksvæði
en ekki völlur fyrir mót.
„Við höfum líka nógan tíma og
gerum þetta bara í rólegheitum,
skref fyrir skref. Það er trú mín að
þetta eigi eftir að verða bara ágætt“.
Rækta upp knattspyrnuvöll
úr mikilli órækt
Íþróttasvæðin á Ásbrú eru annað
verkefni sem Einar í Lauftækni
hefur á sinni könnu. Á Ásbrú er
knattspyrnuvöllur sem kominn var
í algjöra órækt og hefur lítið verið
haldið við frá því Varnarliðið fór.
„Við byrjuðum síðasta sumar að
reyna að ná tökum á knattspyrnu-
vellinum og settum upp viðhald-
sáætlun fyrir hann. Það er trú mín
að við eigum eftir að ná góðum
árangri með fótboltavöllinn. Það
er völlur sem Kaninn vandaði vel
til á sínum tíma. Það er ekki mikið
mál að gera hann að mjög góðum
velli og það er stefnan að fá mjög
flott íþróttasvæði þar sem knatt-
spyrnuvöllurinn er“.
Gróður í skjólbelti
Einar hefur tekið þátt í umræðum
á Ásbrú sem miðar að því að búa
til skjólbelti og kljúfa vind með
gróðurbeltum. Hann segir svæðið
bjóða upp á gríðarlega möguleika
og með gróðri sé auðvelt að gera
svæðið hlýlegt og meira aðlaðandi.
Mikið af stórum byggingum myndi
skjól fyrir gróður en einnig geti
byggingar skapað vindstrengi sem
gróður geti svo brotið niður. Kan-
inn notaði mikið Alaskavíði til að
setja í skjólbelti. Einar segir það alls
ekki vera skemmtilegustu plöntuna
sem yndisgróður, en hún veiti skjól.
Hann vilji einnig sjá aðrar tegundir
og kann t.d. vel að meta grenireiti
sem víða má finna á svæðinu.
Með aðsetur á
fyrirtækjahóteli
Einar hefur aðsetur fyrir Lauftækni
í fyrirtækjahótelinu Eldvörpum á
Ásbrú. Þó svo hann hafi aðsetur
fyrir starfsemina á Ásbrú þá nær
starfssvæði hans út fyrir Suður-
nes. Þannig hefur Einar starfað í
vetur sem brautarstjóri skrúð-
garðyrkjubrautar í Garðyrkjuskól-
anum (LBHI) sem staðsettur er í
Hveragerði. Þar kennir hann m.a.
trjáklippingar, hellulagnir og upp-
byggingu grænna svæða ásamt að
starfa við endurmenntunardeild
skólans við námskeiðahald. Lauf-
tækni kemur einnig að rannsókn
á Korpúlfsstöðum þar sem unnið
er með upphitun á íþróttasvæðum.
Þá kemur Lauftækni að spennandi
rannsóknarverkefni með Keili.
„Við erum að búa til gróðurreit
með hitalögnum þar sem jarðvegur
verður hitaður upp og síðan gróður-
settur í honum tré og ætlunin er að
sjá hvaða áhrif það hefur. Þetta er
skemmtilegt verkefni að taka þátt
í að sjá hvort það gefist vel að vera
með upphitaðan trjágróður. Mold-
inni verður komið í gróðurreitinn
á næstu dögum og í framhaldinu
verður hann hitaður upp og síðan
plantað,“ segir Einar.
Þeir sem vilja setja sig í samband
við Lauftækni geta sent póst á
lauftaekni@lauftaekni.is eða hringt
í Einar í síma 899 7505.
Upphitaður gróðurreitur við skólahús Keilis á Ásbrú. Að ofan má
svo sjá loftmynd af knattspyrnuvellinum sem kominn var í órækt
en mun ganga í endurnýjun lífdaga.
Svipmyndir frá
Ásbrúardeginum
árið 2010
Fjölmargir gestir mættu á Ásbrúardag-
inn sem haldinn var hátíðlegur í apríl
2010 og kynntu sér fjölmarga viðburði
sem voru í boði. Þá skemmtu ungir sem
aldnir sér við þrautir og leiki eða kynntu
sér það sem fyrirtækin á Ásbrú hafa
uppá að bjóða