Víkurfréttir - 05.05.2011, Page 13
Fimmtudagurinn 5. maí 2011 VÍKURFRÉTTIR 13
„Fyrir mér fær hann aldrei fyrirgefningu og ekki frænka mín heldur
fyrir að vera með honum. En hún á sitt líf og sitt val en hún hefur gert
öllum erfitt fyrir með því vali,“ segir Hafdís.
Heppin að hann náði ekki að komast alla leið
Hafdís segist heppin með það að sá sem braut gegn henni hafi ekki náð
að komast alla leið. Hún segir að þó svo hann hafi ekki komið fram
vilja sínum, þá finnist henni dómar í kynferðisbrotum alltof vægir á
Íslandi og hún vilji sjá gerendur fá þann dóm að þurfa að sitja inni.
Hafdís segist ennþá vera að vinna í sínum málum og þetta fari aldrei úr
hennar huga og sé í sálinni. Hún eigi sína erfiðu daga. Þegar erfiðleikar
komi upp í einkalífinu þá komi hugsunin um þetta mál alltaf upp. Þetta
sé sár sem rifni reglulega ofan af og grær aldrei.
Einelti í kjölfar kynferðisbrots
Þegar brotið var gegn Hafdísi var hún nemandi í Njarðvíkurskóla.
Þetta hafi verið erfiður tími, því auk kynferðisáreitis hafi hún orðið
fyrir einelti í skólanum og því flutt sig yfir í Holtaskóla. Þar var vel tekið
á móti henni og eignaðist hún frábærar vinkonur sem hjálpuðu henni
mikið. Hún segir eineltið hafi verið erfitt og sérstaklega þar sem það
var á sama tíma og vanlíðan í kynferðisbrotamálinu. Þá séu þetta erfið
ár hjá stúlkum því þarna eru þær á gelgjuskeiði sínu með tilheyrandi
hormónaflæði og árekstrum.
Fannst lífið lítils virði
„Manni fannst þetta líf vera lítils virði og spurði sig, af hverju ég? Ég
hugsaði um það hvers vegna ég þyrfti að ganga í gegnum þetta allt.
Þetta eiga ekki að vera leyndarmál
Hafdís segir að það eigi að tala opinskátt um kynferðisbrotamál við
börn. Brotamálin eiga alls ekki að vera leyndarmál og það á að tala um
það að gerendur geti verið hver sem er. Þá er netið einnig hættulegt
fyrir börn og ungmenni, því þau vita oft ekki hver er á hinum enda
línunnar.
Ætlar að nýta lífsreynslu og þekkingu
Hafdís ætlar sér að berjast áfram gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart
börnum. Hún ætlar að nýta eigin lífsreynslu og þekkingu sem að þessu
sinni verði beint til foreldra barna með hvatningu um að foreldrar ræði
kynferðismál við börnin sín sem þannig læri að þekkja hætturnar. Hún
hvetur einnig fólk til að taka vel á móti þeim sem á næstu dögum ætla
að selja ljósið á lyklakippunni til styrktar Blátt áfram. Fólk geti einnig
náð sér í ýmsar upplýsingar og fræðslu á blattafram.is.
vf.is
Líf og fjör á Ásbrúardeginum
Hinn árlegi Ásbrúardagur var haldinn hátíðlegur á Ásbrú í Reykjanesbæ um sl. helgi. Fyrirtæki og stofnanir á
Ásbrú kynntu starfsemi sína og ýmislegt var gert til fróðleiks og skemmtunar. Þúsundir gesta lögðu leið sína á
Ásbrú þennan dag til að njóta þess sem var í boði en fjölbreytt dagskrá fyrir unga sem eldri var í boði.
Ljósmyndari Víkurfrétta smellti af nokkrum myndum á hátíðinni. Fleiri myndir á vef Víkurfrétta í dag.