Víkurfréttir - 05.05.2011, Side 14
14 Fimmtudagurinn 5. maí 2011VÍKURFRÉTTIR
Víkurfréttir ætla í sumar að kynna starfsemi hinna ýmsu
félaga á Suðurnesjunum, sögu
þeirra og verkefni. Af nógu er
að taka enda félagslíf blómlegt á
svæðinu en við hefjum leikinn á
Ljósopi sem er félag áhugaljós-
myndara á Suðurnesjum. Rætt
var við Björgvin Guðmundsson
núverandi formann félagsins sem
fræddi okkur um starfsemi og
sögu Ljósops.
Félagið var formlega stofnað í
janúar 2006 eftir að auglýsing hafði
birst í Víkurfréttum þar sem áhuga-
ljósmyndurum á Suðurnesjum var
boðið að taka þátt í stofnun nýs
félags sem sameina átti áhugaljós-
myndara svæðisins.
Stofnaðilar telja sex manns og
hefur félagið vaxið og dafnað síðan
og eru nú um 30 virkir meðlimir í
félaginu að sögn Björgvins. Talin
var þörf á félagi áhugaljósmyndara
á Suðurnesjum, sérstaklega eftir að
ljósmyndaklúbbar í skólum fóru
hallandi fæti vegna þeirrar bylt-
ingar sem stafræn ljósmyndun olli.
Þótti nokkrum því kominn tími til
að ná saman fólki sem deildi sama
áhugamáli, hittast og læra hvort
af öðru.
Félagið er í samstarfi við Tóm-
stundabandalag Reykjanesbæjar
en þaðan fær félagið árlegan styrk
og skuldbindur sig í staðinn til að
halda a.m.k. tvær sýningar á ári um
Tómstundarhelgi og Ljósanætur-
helgi. Félagið sinnir einnig sam-
félagsþjónustu er einna helst beinist
að skólum bæjarins. Auk þess borga
félagsmeðlimir árgjald sem er 5000
krónur og hafa meðlimir aðgang að
aðstöðu félagsins í Listasmiðjunni á
Ég gifti mig bandarískum manni árið 2004 og fluttist með honum til Þýskalands. Ég átti fyrir son sem fór
með mér og eignaðist síðan dóttur í janúar 2006 sem var
skírð á Íslandi og fékk nafnið Caitlin Vicktoria Grund-
fjörð.
Sambúðin gekk hálf brösuglega en alltaf var eitthvað sem hélt
mér í þessu hjónabandi. Við höfðum talað um og hann hafði
sagt mér að hann hefði sótt um að klára herþjónustu sína á
Íslandi eftir tímann í Þýskalandi. Síðan kemur skipun um
að hann eigi að fara til Bandaríkjanna og vera þar um tíma.
Hann hélt áfram að tala um að svo færum við til Íslands og
svo fór að ég fór með honum til Bandaríkjanna með börnin.
Sambúðin í Þýskalandi gekk vægast sagt brösuglega en ég
sannfærði sjálfa mig með hjálp mannsins að það myndi
allt lagast en svo var nú ekki. Um leið og ég var komin til
Bandaríkjanna komst ég ekki heim aftur nema skilja dóttur
mína eftir. Og pabbi hennar sannfærði mig um að ef ég færi
án hennar sæi ég hana aldrei aftur og að hann myndi koma
í veg fyrir eins og hann gæti að ég gæti farið. Hann neitaði
að skrifa undir pappíra sem hefðu gert mér kleift að vera
löglega í landinu. Hann leyfði mér að fara eina ferð til að
sækja son minn til Íslands eftir sumardvöl hjá föður sínum.
Ég fór ein yfir helgi. Caitlin fékk ekki að fara með.
Ég gerði allt sem ég gat til að koma mér út úr þessum
vandræðum, en fljótlega var ég orðin ólögleg þarna úti og
komin í mikil vandræði. En ekki gat ég farið og skilið barnið
mitt eftir. Það gekk á ýmsu og endaði með því að ég varð
að kalla til lögreglu því ég óttaðist um líf mitt og barnanna
minna. Í framhaldi af því komst upp um ólöglega stöðu
mína í Bandaríkjunum og ég var handtekin og send heim.
Án dóttur minnar.
Við tók mikil barátta að reyna að komast til hennar aftur
og eftir 6 mánuði fékk ég loks lögfræðing mér til hjálpar og
sendiráð Bandaríkjanna gaf út vegabréfsáritun fyrir mig til
að geta rekið mál úti í Bandaríkjunum. Fyrrverandi mað-
urinn minn hafði sagt að ég fengi aldrei að sjá dóttur mína
aftur og neitaði að sækja um skilnað svo ég varð að sækja
um forræði og skilnað sjálf.
Málaferlin þarna úti stóðu í rúmlega ár og svo tók við löng
bið sem endaði á að taka eitt ár í viðbót. Þá kom úrskurður
um sameiginlegt forræði og skiptingu á hvar dóttir mín ætti
að vera hverju sinni. Faðir hennar sinnti þessum úrskurði
ekkert og meðan við stóðum í ströngu við að fá barnið í
hendurnar eins og úrskurðurinn mælti fyrir, fékk hann
málið tekið upp að nýju í öðru fylki sem hann hafði flust til
meðan á biðinni eftir úrskurðinum stóð.
Þá urðum við að byrja upp á nýtt. Það hefur gengið á ýmsu
og faðir dóttur minnar gert allt sem hann getur til að hindra
umgengni við barnið. Hann hefur brotið gegn mörgum
dómsúrskurðum um umgengni og þegar við höfum farið
út til að hitta Caitlin hefur það verið mikið vesen og ég ekki
fengið neinn raunverulegan tíma með henni.
Síðan var fenginn óháður lögfræðingur til að starfa í þágu
dóttur minnar og síðan þá hefur umgengni gengið betur og
dóttir mín fengið meiri tíma með mér og syni mínum. Það
hefur aldrei verið nein hræðsla í henni að umgangast mig
þrátt fyrir að henni hafi verið sagt að ég ætli að ræna henni
og ég hef margsinnis verið ásökuð um það af föður hennar.
Hins vegar kæmi það aldrei til greina af minni hálfu. Ég
vil einfaldlega að Caitlin fái að kynnast báðum foreldrum
sínum og fjölskyldum.
Nú eru réttarhöldin í maí og ég þarf að fara út til að vera
við þau og svo að hitta Caitlin að sjálfsögðu. Þetta er búið
að kosta miklar fjárupphæðir í lögfræðikostnað, ferðir og
annað sem fylgir svona málaferlum. Það hafa verið safnanir
í gangi sem ég er mjög þakklát fyrir og eins allan stuðning-
inn sem fólk hefur veitt mér á margan hátt.
En því miður er fjárhagsstaðan orðin slæm núna og því leita
ég að hjálp hjá hverjum sem hana gæti veitt. Ég fór í öll þau
fyrirtæki sem mér datt í hug að gætu veitt mér aðstoð og
vona að einhverjir þar sjái sér fært um að hjálpa mér.
Einnig er til blogg um það sem gekk á í fyrri réttarhöldum
en eftir að úskurður kom og ég hélt að þessu væri lokið hef
ég ekki skrifað meir á það. Ég einfaldlega treysti mér ekki
til þess.
http://dagbjort-ros.bloggar.is/
Öll hjálp er vel þegin.
REIKNINGSNÚMER 0542-14-605040
KENNITALA 160982-4709
Dagbjört Rós Halldórsdóttir
›› Dagbjört Rós Halldórsdóttir skrifar um forræðismál sitt í Bandaríkjunum:
›› Félagsstarf á Suðurnesjum:
Vantar hjálp hjá hVerjum sem hana gæti Veitt
áhugaljósmyndarar
sameinast í ljósopi
Ásbrú sem samanstendur af stúdíói
og fundarherbergi.
Markmið félagsins
- að sameina þá sem áhuga hafa
á ljósmyndun og ljósmyndum.
- að hittast og spjalla og
læra hvert af öðru.
- að bjóða fram þjónustu
okkar í skólum bæjarins,
veita áhuga barna á ljós-
myndun viðtökur og áheyrn.
- að bjóða táningum og ung-
lingum aðstoð okkar varðandi
allt er viðkemur ljósmyndun.
- að sýna landsmönnum að
fleira er áhugavert frá Reykja-
nesbæ en körfubolti og rokk
- og margt margt fleira
„Viðbrögðin við sýningum félags-
ins á Ljósanótt ár hvert hafa verið
mjög góð, enda er Ljósanætursýn-
ingin sú stærsta sem félagið heldur
á hverju ári. Auk þess hefur verið
mjög skemmtilegt að fylgjast með
framförum félagsmanna ár frá ári,“
segir formaðurinn Björgvin. Engin
breyting er fyrirhuguð í ár og mun
félagið halda sína árlegu sýningu á
Ljósanótt.
Glæsileg bók gefin út í fyrra
Ráðist var í gerð myndabókar á
vegum Ljósops í framhaldi af sýn-
ingu félagsins á Ljósanótt á síðasta
ári. Í bókinni eru ljósmyndir frá
14 meðlimum Ljósops og sýnir
myndefni bókarinnar fólki hversu
fjölhæfur og skapandi hópurinn er.
Margar fallegar myndir frá Suður-
nesjum sem og af náttúrufegurð Ís-