Víkurfréttir - 05.05.2011, Page 15
Fimmtudagurinn 5. maí 2011 VÍKURFRÉTTIR 15
Aviation Fuel Service– Keflavík Airport Iceland
EAK ehf.
Sandgerðisbær auglýsir eftir verkefnastjóra til undirbúnings og
umsjónar með hátíðum bæjarins sumarið 2011.
Verkefnin sem um ræðir eru skipulagning, undirbúningur og framkvæmd hátíðarhalda hjá Sandgerðisbæ. Má
þar nefna hátíðarhöld á 17. júní, Sandgerðisdagar í ágúst og önnur verkefni sem tengjast hátíðarhöldum hjá
bæjarfélaginu.
Verkefnastjóri starfar undir stjórn bæjarstjóra og ferða- og menningarfulltrúa. Hann starfar með
starfsmönnum Sandgerðisbæjar og nýtur aðstoðar frá þeim. Sandgerðisbær leggur til starfsaðstöðu.
Álag er misjafnt eftir mánuðum og fer eftir verkefnastöðu hverju sinni.
Starfið er hugsað sem hlutastarf í 4 mánuði, maí, júní, júlí og ágúst.
Menntun og reynsla á sviði verkefna- og viðburðastjórnunar er æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Þ. Kristjánsson ferða- og menningarfulltrúi í síma 420 7555 og 899 2739.
Hægt er að sækja um á skrifstofu Sandgerðisbæjar í Vörðunni Miðnestorgi 3
og á netinu á http://www.sandgerdi.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2011.
Bæjarstjóri.
Verkefnastjóri
sumarið 2011
lands má finna í bókinni. Ákveðið
hefur verið innan félagsins að gera
þetta að árlegum viðburði. Bókin er
til sölu á heimasíðu félagsins ljosop.
org.
Björgvin segir allflesta félaga Ljós-
ops vera áhugaljósmyndara. Sjálfur
lærði hann grafíska hönnun í Dan-
mörku sem hafi sterka tengingu í
ljósmyndun.
Hvað finnst þér um þessa þróun
sem hefur orðið undanfarin ár,
allir eru nánast orðnir ljósmynd-
arar eftir stafrænu byltinguna?
„Stafræna byltingin hefur gert
tækifæris- og áhugaljósmynd-
urum kleift að komast yfir ódýrar
og góðar myndavélar, auk þess að
koma sínum verkum á framfæri á
netinu,“ segir Björgvin um björtu
hliðar stafrænnar ljósmyndunar og
bætir svo við.
„Það eru til margar myndavélar, en
ekki jafn margir ljósmyndarar. Þó
menn eigi myndavél, þá er það ekki
samasemmerki yfir það að vera
góður ljósmyndari. Félag eins og
Ljósop hefur það markmið að auka
þekkingu og færni félagsmanna, og
gera þá að betri ljósmyndurum.“
Atvinnuljósmyndarar hafa fundið
fyrir því að aðilar hafa komið inn
í starfsgreinina og starfa þar með
ólögmætum hætti. Björgvin getur
tekið undir þetta. „Já, við höfum
auðvitað heyrt af því. Félagsmenn
Ljósops bera mikla virðingu fyrir
starfsgrein ljósmyndara.“
Hvað þarf maður til að gerast
meðlimur?
„Skrá sig á www.ljosop.org og mæta
á fundi sem haldnir eru á hverju
þriðjudagskvöldi kl. 20:00. Það
er ekki nauðsynlegt að eiga góða
myndavél.“ Aðspurður um aldurs-
dreifingu félagsins segir Björgvin
að meðlimir séu hress hópur, konur
og karlar á öllum aldri.
Vertu í góðu sambandi við VF!
Auglýsingadeild í síma 421 0001 (gunnar@vf.is)
Fréttadeild í síma 421 0002 (hilmar@vf.is)
Ritstjórn og afgreiðsla í síma 421 0000
vf.is • m.vf.is • kylfingur.isMyndirnar með greininni eftir félaga í Ljósopi.