Víkurfréttir - 28.07.2011, Síða 12
12 FIMMTudagurInn 28. júLí 2011 • VÍKURFRÉTTIR
Samband sveitarfélaga
á Suðurnesjum
Auglýst er eftir styrkumsóknum til Menningarráðs Suðurnesja vegna menningarstarfs og menningartengdrar
ferðaþjónustu á grunni samnings sveitarfélaga á Suðurnesjum og mennta- og
menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis.
Úthlutunarreglur, umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar er að finna á
vefsíðu Menningarráðs Suðurnesja http://menning.sss.is
Verkefni sem geta komið til greina:
1. Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða
á fleiri en einum stað.
2. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs og menningartengdrar ferðaþjónustu.
3. Verkefni sem fjölgar atvinnutækifærum á sviði lista og menningar.
4. Verkefni sem styðja við ferðaþjónustu.
5. Verkefni sem fara fram á vinnustöðum.
Frekari upplýsingar veitir Björk Guðjónsdóttir, bjork@sss.is, verkefnastjóri á skrifstofu Sambands sveitarfé-
laga á Suðurnesjum, Iðavöllum 12b, Reykjanesbæ, sími 420 3288.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 22. ágúst.
Umsóknum skal skilað í 7 eintökum á skrifstofu Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum eða á netfangið
menning@sss.is .
MENNINGARRÁÐ SUÐURNESJA
VERKEFNASTYRKIR
vinalegur bær
Verne Real Estate ehf. óskar eftir tilboðum í öryggisgæslu við gagnaver fyrirtækisins
að Ásbrú í Reykjanesbæ. Um er að ræða öryggisgæslu allan sólarhringinn, alla daga
ársins ásamt því að sinna móttöku og öðrum tilfallandi viðvikum.
Útboðsgögnin eru einungis aðgengileg á ensku, þau er hægt að fá send á rafrænu
formi frá birtingu þessarar auglýsingar með því að hafa samband við Helga Helgason
í síma 8966961 eða með tölvupósti til helgi@verneglobal.com. Útboðsgögnin inni-
halda nánari kröfulýsingu og skilmála. Gefa skal upp nafn tilboðsgjafa, nafn tengiliðs,
símanúmer og tölvupóstfang.
Tilboðum skal skilað á ensku fyrir kl. 16, þann 12. ágúst 2011, sjá nánari
leiðbeiningar í útboðsgögnum. Tilboðin verða opnuð kl. 10:00 þann 16. ágúst 2011 að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska að skrifstofu félagsins
Valhallarbraut 868 að Ásbrú í Reykjanesbæ
Verne Real Estate ehf.
ÚTBOÐ
Öryggisgæsla í gagnaveri Verne
Sumarspjall
Veiðimaðurinn:
Birgir Már Bragason, umsjón-
armaður fasteigna hjá Keili í Kefla-
vík byrjaði að veiða ungur að árum
þegar hann fór fyrst í veiði með
föður sínum, Braga Pálssyni og
bræðrum, þeim Tryggva Þór og
Ólafi Braga. „Pabbi fór alltaf í Geir-
landið og Baugstaðarós með okkur
bræðurna. Síðan þá hafa veiðifélög-
unum og ánum fjölgað.“
Uppáhaldsveiðiá:
Verð að segja Iðan, Miðfjarðará og
Fljótaá.
Fyrsti fiskur á stöng kom:
Maríulaxinn fékk ég í Iðu fyrir all
löngu síðan. Veiddist á íslenskt buff.
Man að baráttan stóð í ca 30 mín.
og ég skalf allur þegar mér loksins
tókst að koma honum á land eftir
mikla baráttu.
Eftirminnilegasta stundin í
veiðinni:
Þær eru svo margar. Verð þó að
nefna tvær. Þegar ég og Hjálmar
Árnason fórum í Skógá fyrir tveim-
ur árum. Vorum staddir við veiði-
stað sem heitir Ingólfur, það var smá
vindur og skýjað. Við vorum ekkert
búnir að fiska að ráði og okkur leist
frekar illa á þennan veiðistað. Um
leið og Hjálmar segir: „Þetta er glat-
að. Það er enginn fiskur í þessum
pitt. Eigum við ekki að færa okkur“
datt hann í dúnalogn og sólin fór
að skína. Viti menn, pitturinn var
fullur af fiski og við náðum að landa
nokkrum. Svo verð ég að nefna þeg-
ar ég fékk fyrsta 20 pundarann á
flugustöng í Fljótaá í ágúst í fyrra
með vini mínum Rúnari Ingibergs.
Það var frábært.
Uppáhalds flugan:
1/2" rauður Francis með keiluhaus
og rauð Francis með gullkrók (a la
Hjálmar)
Stærsti fiskurinn sem ég hef
veitt, hvar og hvenær:
20 pundarinn í Fljótaá 24. ágúst
2010.
Veiðin í sumar 2011:
Blanda, Stóra Laxá, Kjósin og að
sjálfsögðu í Fljótaá og Iða. Svo veit
maður aldrei hvað dettur meira
inn?
Birgir með 20 pundarann
úr Fljótaá í fyrra.
Flugukastkennsla á Seltjörn 28. maí nk.
Einhendu- og tvíhendukennsla undir
leiðsögn þeirra Klaus Frimor, sem er
einn allra besti kastkennari heims,
Hilmars Hanssonar og Óskars Páls
Sveinssonar.
Flugukofinn, Sólvallagötu 6, Reykjanesbæ, sími 821-4703
Fyrsti 20 pundarinn
á flugustöng í Fljótaá
Veiðimaður vikunnar
Þær Guðný Birna Falsdóttir, Ásta Rún Arnmundsdóttir, Lovísa
Gunnlaugsdóttir og Steinunn Ástrós Sighvatsdóttir söfnuðu 4.050
krónum á tombólu á dögunum.
Guðjónína Sæmundsdóttir fagnar 10 ára starfsafmæli
sínu hjá Miðstöð símenntunar
á Suðurnesjum
þ ann 1. ágúst
n æ s t k o m a n d i .
Hún segir það
hafa verið frábært
tækifæri að koma
að uppbyggingu á
svona góðu fyrirtæki. Guðjónína
er þessa stundina á ferðalagi um
Bandaríkin en hún hefur komið
víða við í sumar.
Hvernig hefur sumarið verið hing-
að til hjá þér?
Sumarið hefur verið bara yndislegt.
Skemmtileg ferðalög, göngutúrar,
hjólatúrar og yndisleg samvera með
fjölskyldunni.
Hvað fer á grillið hjá þér?
Það getur allt farið á kolagrillið
mitt. Ætli lambakjötið sé nú ekki
algengast en grillaður fiskur er al-
gjört lostæti.
Á að ferðast eitthvað innanlands
í sumar?
Ég fer óvenjulega lítið um Ísland
í sumar. Ég er búin að fara í tvær
útilegur í sumar með krakkana, á
Úlfljótsvatn og í Hvalfjörðinn. Frá-
bærar ferðir í góðum félagsskap.
Einnig fór ég á N1 mótið á Akureyri
en yngsti sonur minn var að keppa.
Þessi fótboltamót eru svo skemmti-
leg og alveg ómissandi á sumrin.
En erlendis?
Fór í yndislega ferð til Noregs í byrj-
un maí með frábæru samstarfsfólki.
Lærði þar ýmislegt um námskeiða-
hald fyrir einstaklinga sem eru án
atvinnu. Við löbbuðum líka upp á
Preikestolen, alveg æðisleg göngu-
ferð. Í Noregi hitti ég líka vini síð-
an á háskólaárunum. Ein vinkona
mín þar er að vinna í því hverfi sem
sprengjan sprakk um daginn en hún
var svo heppin að hún fór fyrr heim
úr vinnunni en skrifstofan þar sem
hún vinnur eyðilagðist mjög mikið
og slösuðust þeir sem voru þar inni.
Það er skrítin tilfinning þegar svona
hlutir gerast svona nálægt manni á
stöðum sem maður þekkir vel til og
hefur verið á.
Hvað á annars að gera í sumarfrí-
inu?
Við lokuðum hjá MSS í júlímán-
uði. Fyrstu tvær vikurnar voru
notaðar í sambland af vinnu og að
gera hluti heima sem maður þarf
að gera en gefur sér ekki venjulega
tíma í eins og þrífa, smá garðvinna,
sortera myndir og prenta út, taka
til í skápum og annað skemmtilegt.
Síðan var ferðinni heitið til USA
með stórfjölskyldunni; New York,
Orlando, Chigaco, Michigan. Þar
verður slappað af, skoðað, farið í
skemmtigarða, ættingjar heimsótt-
ir, farið á ströndina, spilað o.s.frv.
Er eitthvað sem er einnkennandi
fyrir íslenskt sumar að þínu mati?
Birtan, grasilmur frá nýslegnu
túni, náttúrufegurðin á Íslandi, að
geta vakað alla nóttina og aldrei
verður dimmt, meiri hreyfing en
venjulega, hjólatúrar, göngutúrar,
fótboltamót. Svo verða bara allir
svo glaðir á sumrin. En sumarið er
bara of stutt.
Hvað á að gera um verslunar-
mannahelgina?
Föstudagurinn byrjar eldsnemma
og verður farið í Universal Studios
Orlando. Síðan um kvöldið ætlum
við stórfjölskyldan að fara út að
borða í tilefni þess að faðir minn
sem lést á síðasta ári hefði orðið 70
ára þennan dag. Síðan kveðjum við
tvo fjölskyldumeðlimi sem halda til
Íslands en við hin höldum áfram að
njóta sólarinnar hér í USA.
Universal Studios um
verslunarmannahelgina
Listatorg er mjög stolt af því að nú sé komið að formanni Lista-
torgs Guðnýju Jóhönnu Karlsdóttur
að halda myndlistarsýningu á Lista-
torgi. Guðný hefur verið Listatorgi mikil vítamínsprauta, og komið
með nýjar og ferskar hugmyndir í starfsemina. Guðný hefur unnið
að endurskipulagningu á Gallerýinu og hlotið mikið lof fyrir.
Guðný nam myndlist í FB og í Myndlistarskóla Reykjavíkur og er þetta
hennar önnur einkasýning. Sýningin opnaði 16. júlí kl. 14 og stendur
sýningin yfir til 21. ágúst.
Listatorg er opið alla daga vikunnar frá kl. 13:00 – 17:00 og eru allir
velkomnir.
Dulúð Í Listatorgi