Þjóðlíf - 01.12.1987, Page 5
Til lesenda
þjóðlíf vill benda lesendum sínum á að
þeir geta sent okkur bréf til birtingar, svo
framarlega sem fjallað er um efni ÞJÓÐLÍFS
eða því tengdu á einhvem hátt. Bréf sem fjalla
um annað em ritstjóm kærkomin, en verða
ekki birt.
Bent er á, að ritstjóm áskilur sér rétt til að
stytta bréf, en mun kappkosta að breyta ekki
rnerkingu þeirra.
Bréf skulu stfluð þannig:
Fréttatímaritið ÞJÓÐLÍF
c/o Bréffrá lesendum
Vesturgötu 10
Pósthólf 1752
121 Reykjavík
Bækur
Þetta er hálauna fólk og spjarar sig áreiðan-
lega án ykkar tára.
Sigurlaug, Reykjavík.
Getur það verið að stjórnmálin í landinu séu
farin að líða fyrir það að hæfileikaríkt fólk
sinnir ekki þingmálum vegna launa og óvissu
um hvað við tekur eftir að þingmennsku
sleppir? Eitthvað er brogað við stjómmálin í
dag og þetta gæti hugsanlega verið skýringin,
eða a.m.k. hluti hennar. Fólk sem sér fram á
að þurfa kannski að sleppa sinni vinnu sem
það hefur sérstaklega menntað sig til í mörg
, og hefur að engu að hverfa, hlýtur að
hugsa sig tvisvar um áður en það leggur
út í slíka óvissu.
Pétur, Reykjavík.
Sykurmolamir
Ég skil ekkert í ykkur á þessu blaði að birta
forsíðumynd af hljómsveitinni Sykurmolun-
um (Nóv. 1987). Vel má vera að þessi hljóm-
sveit sé fræg einhvers staðar úti í heimi, en
hér heima er hún kúlthljómsveit sem fáir
hlusta á. Ég ætla ekki að metast um það
hvort þau eru góð eða vond, en það er stað-
reynd að ekki er mikið hlustað á hana hér og
því engin ástæða til að hleypa henni svona
upp. En viðtalið var býsna skemmtilega
tekið samt sem áður.
Ævar, Kópavogi.
Ég vildi gjarnan nota tækifærið er ég sendi
ykkur þessa krossgátulausn og þakka ykkur
fyrir bókakálfinn sem fylgdi síðasta blaði.
Þetta var mjög gott framtak og sýnir, að
þetta er mjög menningarlegt blað hjá ykkur,
dálítið annað en önnur tímarit í landinu sem
keyra mikið á því sem engu máli skiptir.
Jónatan, Reykjavík.
VÖRÐUR
Styrkár Snorrason lést með sviplegum
hætti 24. nóvember 1987. Styrkár var sex
ára gamall er hann lést, fæddur 27. maí
1981. Hann var sonur Dagrúnar
Magnúsdóttur myndlistarnema og Snorra
Styrkárssonar framkvæmdastjóra Þjóð-
lífs. Við minnumst hans.
Þingmenn
Mér finnst þið vorkenna fullmikið þessum
blessuðu þingmönnum ykkar í síðasta blaði
(Nóv. 1987). Ég held að þessu fólki sé engin
vorkunn að kynnast erfiðleikum með að fá
sér vinnu; þannig verður alþýðan að lifa í
þessu landi og haldið þið að fiskverkafólk
t.d. vorkenni þeim eitthvað? Nei, blessuð
reynið að finna aðra hópa til að vorkenna.
£P
NATURA CASA
NVBVIAVECUR 20. 200 KÓPAVOCI. SlMI 91-44422
ASKRIFENDAHAPPDRÆTTI
Ætlar þú að vera með í áskrifenda-
happdrætti Þjóðlífs?
Því ef þú verður skuldlaus áskrifandi um
áramótin verðurðu búin(n) að tryggja þér
aðild.
Dregið verður þann 15. janúar um átta
glæsilega vinninga:
1. Ferðavinningur að eigin vali frá
Ferðaskrifstofunni Sögu, að verðmæti
15.000.-
2. íslendingasögurnar með nútíma
stafsetningu frá Svart á hvítu, að
verðmæti 12.250.-
3. FAM-ryksuga frá versluninni Hauki
og Ólafi, að verðmæti 12.700.-
4. -8. Hljómplata, Bergþóra í seinna lagi.
5