Þjóðlíf - 01.12.1987, Blaðsíða 14
INNLENT
varpsins hafa öll fréttaviðtöl verið vélrituð til
geymslu. Þessu var að vísu hætt að hluta til
síðast liðið haust af sparnaðarástæðum sem
er mjög miður. Þetta gerði mér kleift að gera
samanburð á hversu oft er talað við konur í
fréttum miðað við karlmenn og þá um hvað
væri rætt við þær.
Enn sem komið er birti ég eingöngu stað-
reyndir málsins, sem eru vægast hroðalegar
út frá sjónarmiðum jafnréttis, en ég hef líka
ákveðnar skýringar á þessu og tel jafnframt
að þessar niðurstöður gefi tilefni til að setja
fram mikilvægar spurningar.í hnotskurn eru
niðurstöðurnar eindregið á þann veg að ís-
lenskar konur hafa afar litla möguleika á að
komast í sjónvarpsfréttir. Ég hef líka komist
að því að kvennfréttamenn hafa miklu minni
möguleika en karlar á að koma sínum frétt-
um framarlega að í fréttatímum. Konur eru
algerlega útilokaðar frá ákveðnum mála-
flokkum, það er t.d. aldrei rætt við þær um
sjávarútveg, ef fiskvinnslan er undanskilin. í
alls 209 viðtölum um sjávarútveg finnst
engin kona. Jafnréttismál eru eini mála-
flokkurinn þar sem konur koma vel út.“
Aðspurð um skýringar segist Sigrún ekki
láta sér það nægja að bent sé á að konur starfi
ekki t.d. á fiskiskipum og í stjórnum útgerð-
arinnar. „Hvar eru allar konurnar?" spyr
hún. „Eru þær ekki líka að gera eitthvað
merkilegt - rúmur helmingur þjóðarinnar?
Ég tel að alvarlegasta skýringin liggi í því að
fréttaramminn hefur verið skilgreindur og
mótaður þannig að konur passa ekki inn í
hann. Allt sem gerist í kringum sjávarútveg
er talið fréttaefni. Af hverju er ekkert af því
sem gerist á heimilunum í landinu talið til
fréttar? Þar vinna þó tugþúsundir kvenna.
Þessi rammi var ákveðinn fyrir löngu síðan
og við höfum tekið hann eins og gefinn hlut.
Konur virðast einfaldlega hafa gleymst
þegar það var ákveðið hvað væri fréttnæmt
og hvað ekki, og það er orðið löngu tímabært
að endurskoða þetta. Það má líka líta á þetta
frá sjónarmiðum samkeppninnar um
„áhorf“ á milli stöðvanna, eins og það er
kallað. Konur horfa mikið á sjónvarp og þá
ætti auðvitað að fjalla meira um h vað þær eru
að gera.“
Reið, pirruð og
tilbúin að slást...
„Annað er líka íhugunarefni,“ heldur hún
áfram, „og það er sú staðreynd sem frétta-
menn þekkja, að það er erfiðara að fá konur í
viðtöl heldur en karla. Það þarf oft að
dekstra konur til að koma fram í sjónvarpi og
Austurstræti 12 ■ Símar 91 -27077 & 91 -28899
Hótel Sögu viö Hagatorg ■ 91 -622277. Akureyri: Skipagötu 14 • 96-27200
AMSTERDAM
GLASGOW
HAMBORG
LONDON
Samvinnuferdir - Landsýn
14