Þjóðlíf - 01.12.1987, Side 33
• Sviðið tílbúið fyrir „Vesalinga" Victors Hugos.
Vesallngarmr______________
Um jólauppfærslu Þjóöleikhússins
,, Uppreisn er einskonar fellibylur í and-
rúmi þjóðfélagsins sem myndast snögg-
lega við ákveðið hitastig, rís ogsnarsnýst
um sjálfan sig, rífur upp með rótum,
brýtur og eyðileggur, hrífur með sér jafnt
mikla hugi sem sjúka, sterka sem veika,
trjáboli sem hálmstrá. Vei þeim sem
hann ber í burtu ekki síður en hinum sem
hann leitast við að eyða; etja saman ná-
grönnum eins og blóðhundum. Þeir sem
í vegi þessa byls verða upptendrast af
ofurmannlegu afli og dularfullum neista,
fyllast hluttekningu í viðburðum og um-
breytast sjálfir í byssustingi; steinvalan
verðurað fallbyssukúlu og verkamaður-
inn að stórskotaliðsmanni.“
EITTHVAÐ Á ÞESSA leið kemst Victor
Hugo að orði í hinu sígilda verki sínu Vesa-
lingarnir, þar sem hann lýsir vettvangi
stúdentaóeirðanna í París hinn 5. júní 1832.
Bókin, sem var skrifuð um það bil þrjátíu
árum eftir þá atburði, hefur gjama verið
nefnd „lengsta verk bókmenntanna“, enda
einatt útgefin smáletruð á upp undir tvö-
þúsund síðum. Parísarstúdentar hafa oft ver-
ið eirðarlausir upp frá því og við slík tækifæri
hefur þetta sígilda verk Hugos tíðum borið á
góma. Glæður ýfinganna frá 1968 voru enn
ekki að fullu kulnaðar þegar tveir frakkar,
tónskáldið Claude Michel Schönberg og
textahöfundurinn Alain Boublil, tóku sig til
og bjuggu til söngleik og texta upp úr verki
Hugos. Árið 1977 voru söngvar þeirra gefnir
út á hljómplötu og sviðsettir um það bil
þremur árum síðar í einskonar tónleika-
uppfærslum í París.
ROYAL SHAKESPEARE. Næst gerist það
að breski leikhússfrömuðurinn Cameron
Mackintosh fer á einn slíkan „Vesalinga-
konsert" í París og ákveður að koma verkinu
á framfæri við hið þekkta Royal Shake-
speare leikhús í London. Svo fór að Royal
Shakespeare féllst á samstarf við Cameron
Mackintosh um að fjármagna breska gerð
sýningarinnar í formi söngleiks, en leik-
húsið hefur einmitt vakið mikla athygli á
undanfömum ámm fyrir nýstárlegar
uppfærslur þar sem byggt hefur verið á
gömlum bókmenntaverkum og þau sýnd í
nýju ljósi. Þannig færði leikhúsið upp
Nicholas Nickelby eftir Dickens og sömu-
leiðis söng- og dansgerð á ljóðum T.S. Eliots
sem enn er sýnd fyrir fullu húsi í London
undir heitinu Cats. Trevor Nunn, leikhús-
stjóri Royal Shakespeare fékk enska texta-
höfundinn Herbert Kretzmer til liðs við sig
og í samráði við frönsku höíundana, þá
Schönberg og Boublil, sömdu þeir söngleik í
kringum upphaflegu lögin, en nýjum lögum
var einnig bætt við. Þessi vinna með frönsku
höfundunum tók um það bil tvö ár og það
var loks í nóvembermánuði 1985 sem söng-
Ieikurinn var frumsýndur í Royal Shake-
speare leikhúsinu. Sýningin gekk það vel að
hún var fljótlega flutt inn í eitt eftirsóttasta
West End leikhúsið. Hér um bil ári eftir
frumsýningu í Bretlandi var söngleikurinn
frumsýndur í Bandaríkjunum, fyrst í Was-
hington og síðan á hinum eina og sanna
Breiðvangi á Manhattaneyju. í kjölfarið
fylgdu frumsýningar í ísrael, Ungverjalandi,
Japan og Ástralíu. Og nú er röðin komin að
íslandi.
FLÓKIÐ DÆMI. Þjóðleikhúsið hyggst verða
fyrsta leikhúsið í Evrópu - utan Bretlands og
Frakklands - til þess að setja söngleikinn
Vesalingana á svið. Frumsýning er áætluð á
annan dag jóla og er fyrirsjáanlegt að þetta er
eitt allra viðamesta verkefni Þjóðleikhússins
til þessa, enda öllu tjaldað til að gera sýn-
inguna sem best úr garði.
33