Þjóðlíf - 01.12.1987, Side 38
Púhellirá vatni og stingur í samband. Róandi vatnsniðurog blóm
ífallegri keramikumgjörð
gefa heimilinu nýjan blce og bœta andrúmsloftið með þœgilegum raka.
Líttu við á útsölustöðum okkar:
Akranesi: Blómabúðin Louise
Akureyri: Amaró
Borgarnesi: Kaupfélag Borgfirðinga
Eskifirði: Versl. Elísar Guðnasonar
Hafnarfirði: Blómabúðin Dögg
Húsavík: Raftœkjastofa Gríms og Árna
Hveragerði: Eden
Keflavík: Verslunin Róm
Reykjavík: Blómaval, Kringlunni
Garðshorn, Fossvogi
Selfossi: Blómahornið
Seltjarnarnesi: Blómabúðin Melanóra MARGAR
Vestmannaeyjar: Eyjablóm GERÐIR
VISA
EURO
Afborgunar-
kjör
NATURA CASA
NÝBÝLAVEGUR 20. 200 KÓPAVOGI, SÍMI 91-44422
Norskir dátar
Hvar liggur kveikja og þráður verksins Síldin
er komin? Pórunn Sigurðardóttir leikstjóri
verður fyrir svörum.
„Kveikjan Iiggur í hvaða íslensku sjávar-
plássi sem er eins og þau voru í atganginum í
kringum 1960. Atburðirnir eru tímasettir á
árinu 1961 og höfundarnir höfðu tiltekið
sjávarþorp á Austfjörðum í huga þegar þær
skrifuðu verkið, en þegar upp er staðið þá
gætu þessir atburðir hafa gerst hvar sem er á
landinu. Þetta er hversdagsfólk; sjómenn og
síldarstelpur, verkstjórar, útgerðarmenn,
söltunarfólk og bændur og búaliö. Þaö er helst
þegar norskir dátar stíga á land að bregður
útaf hversdagsleikanum, en á það ber að líta
að hversdagur þessa fólks var bæði ílangur og
ávalur og hét fjögurra stafa nafni."
eru á bilinu 30-40 manns sem þátt taka í
sýningunni og ég er ekki frá því að þetta sé
ámóta vinna og að stýra frystitogara.“
„Reyndar eru nú yfirleitt ekki nema 15
eða 20 á þessum döllum,“ skýtur Valgeir
inní.
ÁHERSLA Á „SJÓ“. Þórunn vísar á bug
öllum samlíkingum við revíur. „Revíusöng-
leikir byggjast upp á mörgum laustengdum
atriðum, en það verk sem við erum að setja
hér á svið er hinsvegar heilsteyptur söng-
leikur þar sem söngvar eru í beinu framhaldi
af leik. Tónlist Valgeirs kemur ekki nauð-
synlega inn á sömu stöðum og í fyrri upp-
færslum og segja má að við séum að stokka
sýninguna algerlega upp á nýtt þó upphaflegi
textinn haldi sér.“
„Þetta er aukin áhersla á „sjó“ hjá okkur,"
bætir Valgeir við.
DRAUGUR í DEIGLU. Aðspurð um önn-
ur verkefni í deiglu hjá sér segir Þórunn leik-
stjóri okkur frá því að hún sé að skrifa jafn-
hliða leikstjórn hjá Iðnó drama fyrir Þjóð-
leikhúsið um hina frægu konu Appolloníu
Schwarzkopf sem ku ganga af og til aftur á
Bessastöðum. En á næstu vikum verður það
síldin sem tekur hugann allan sólarhringinn
og það er sjálfsagt ekki svo einfalt mál að
salta hana. Og við bíðum spennt fram í janú-
arbyrjun eftir kryddsíldarveislu leikfélags-
ins, því stemmningin í upphafssöng Valgeirs
Guðjónssonar er sko ekkert slor.
• Olafur Engilbertsson
Helstu hlutverk
í sýningunni Síldin er komin taka þátt margir
vel „sjóaðir" atvinnuleikarar. Þar sem þetta er
hópsýning hinnar samhentu alþýðu þá eru
engin sérstök aðalhlutverk, að öðrum ólöst-
uðum má nefna að t.a.m. Jón Sigurbjömsson,
Kjartan Ragnarsson, Guðrún Ásmundsdóttir,
Soffía Jakobsdóttir og Margrét Helga
Jóhannsdóttir eru öll að læra að salta rétt um
þessar mundir. Uppundir 40 manns taka þátt í
sýningunni og er þar af um helmingur yngri
leikara sem hafa útskrifast á undanförnum
árum.