Þjóðlíf - 01.12.1987, Page 46
• Um Lawson fjármálaráðherra má segja að hann hafi teflt á tvær hættur undanfarið.
ÁHRIFIN Á ÞJÓÐARBÚIÐ. Allar efna-
hagsspár eru varhugaveröar um þessar
mundir. Meðan viðbrögð Bandaríkjastjórn-
ar eru óljós er erfitt að segja til um hversu
mikill samdráttur verður í heimsviðskiptum.
I þessu sambandi er ýmist talað um að fallið
endi með mjúkri lendingu eða skelli. Að
mati Alan Budd í London Business School
mun verðhrunið í fyrsta lagi minnka auðlegð
í heiminum, og þar með draga úr neyslu, og í
öðru lagi auka fjármagnskostnað fram-
leiðslufyrirtækja. Þetta mun draga úr fram-
leiðslu og útflutningi/innflutningi í heimin-
um, - hversu mikið veltur á því hvort verð-
hrunið endar með skelli eða ekki.
Flestar spár gera núna ráð fyrir mjúkri
lendingu. í spá hagfræðideildar Oxfordhá-
skóla er reiknað með, að hagvöxtur í Banda-
ríkjunum minnki og að það, ásamt fyrirhug-
uðum skattahækkunum, dragi úr neysiu. Það
mun ekki hafa mikil áhrif á breska þjóðarbú-
ið því viðskiptajöfnuður þjóðanna verður
áfram svipaður. örlítið mun draga úr hag-
vexti í Bretlandi á næstu tveimur árum, en
m.a. vegna vaxtalækkana sem þegar hefur
verið gripið til verður verðbólgu haldið í
svipuðum skorðum og undanfarið. Atvinnu-
leysi verður áfram á undanhaldi á næsta ári,
að mati sérfræðinganna í Oxford, en óvíst er
hvort nýjum störfum fjölgi áfram á árinu
1989. Þar ræður miklu hversu mikið fé verð-
ur fáanlegt til áhættusamra framkvæmda, en
það er einn stærsti óvissuþátturinn í þessum
spám.
Það er því næsta víst, að á næstu árum
munu efnahagshjólin bresku aðeins hægja á
sér vegna verðhrunsins mikla. Sumir hafa þó
bent á, að jafnvel þó svo fari muni hagur
Breta vænkast þegar til lengri tíma er litið,
því helstu samkeppnisþjóðirnar, Banda-
ríkjamenn, Japanir og jafnvel V-Þjóðverjar,
muni fara verr út úr þessum þrengingum.
Nigel Lawson, fjármálaráðherra, átti e.t.v.
við þetta þegar hann í nýlegri fjárlagaræðu
sinni sagði að breska þjóðarbúið væri á há-
tindi veraldar. Lawson var fullur bjartsýni í
þessari ræðu og gaf til kynna, að í aprílfjár-
lögunum mætti vænta svokallaðrar þrennu,
annað árið í röð. Þrennan er aukin útgjöld
ríkissjóðs, lækkun skatta og minni skuldir
ríkissjóðs. Ræöan var flutt tveimur vikum
eftir að verðhrunið hófst og þótti mörgum
Lawson taka mikla áhættu með þessu bjart-
sýnistali og stjórnarandstaðan kallaði ræðu
hans „súrrealíska ritæfingu". Ef marka má
spár og umsagnir blaða og tímarita síðan þá,
virðist margt benda til þess að breska þjóðar-
búið fari ekki illa út úr þessu mikla verðfalli
og líkur eru á, að bjartsýnisdraumar fjár-
málaráðherrans verði að veruleika. Ekki
skal skorið úr því hér hvort því valdi þær
aðgerðir sem hann hefur gripið til eða utan-
aðkomandi aðstæður. Hitt er þó víst að álitið
á Nigel Lawson meðal þingmanna íhalds-
flokksins hefur á síðustu vikum vaxið í öfugu
hlutfalli við verðfall hlutabréfanna í Kaup-
höllinni.
Verðhrunið undanfarnar vikur er án efa
mesta áfall kapítalismans frá því í Kreppunni
miklu. Án efa mun það hafa mikil áhrif á
umræður manna um framhald og þróun auð-
hyggju samtímans, jafnt í Bretlandi sem
annars staðar. Breska þjóðarbúið slapp að
mestu með skrekkinn og e.t.v. segir það sína
sögu, að þrátt fyrir þennan mikla skjálfta
kapítalismans hrikti ekki í stoðum íhalds-
flokksins breska.
• Ásgeir Fríðgeirsson/London
HAUKUR & ÓLAFUR HF.
ÁRMÚLA 32 - REYKJAVlK - SlMI 37700
46