Þjóðlíf - 01.12.1987, Page 48
Blómafijórkom:
Náttúndeg snilld býflugunnar og tœkni nútíma-
mannsins sameinast
Um aldir og árþúsundir hefur býflugan séö
manninum fyrir heilsusamlegu fæði. Blómafrjó-
korn, sem býflugan safnar, eru karlkynsfrumur
plantna og hafa að geyma mikla næringu. Blóma-
frjókornum má að uppbyggingu líkja við fuglsegg.
Kjarninn, karlsæðið, er sem rauðan, næringin þar
utan um er sem hvítan og skelin utan um komið
sem skurn eggsins. Vísindamenn, sem rannsakað
hafa frjókom, hafa fundið í þeim mikinn fjölda
mismunandi efna, svo sem fjörefni, steinefni,
eggjahvítuefni, hormóna, hvata og fituefni.
Leið til betri heilsu
Margvíslegar rannsóknir hafa verið gerðar á
blómafrjókomum og áhrifum þeirra á manns-
líkamann. Meðal annars hefur komið í ljós, að
fólks sem í tilraunaskyni neytti einvörðungu frjó-
koma og vatns, reyndist í betra ástandi, andlega
og líkamlega, að tilraununum loknum en í upphafi
þeirra.
Komið hefur í ljós að þetta jurtafæði er auðugra
af eggjahvítuefnum en kjöt og fiskur. Samsett efni
í frjókomunum, sem ekki hefur tekist að greina,
eru um 3% af efnisinnihaldi þeirra og þau em
vísindamönnum ráðgáta, þar sem ekki hefur tek-
ist að ákvarða hlutverk þeirra í samvirkni við önn-
ur efni í komunum.
Tilraunir, sem gerðar hafa verið í mörgum
löndum hafa leitt í ljós jákvæð áhrif frjókoma á
fjölda kvilla og sjúkdóma, auk þess sem frjókomin
hafa reynst mjög virkur alhliða orkugjafi í dagsins
önn.
Umfangsmiklar
vísindarannsóknir
Blómafrjókom hafa um allnokkurt skeið verið
söluvara víða um lönd. Það var hins vegar ekki
fyrr en bandaríska fyrirtækið C.C. Pollen Co. í
Arizona í Bandaríkjunum beitti sér fýrir víð-
tækum rannsóknum á frjókomum, í lok sjöunda
áratugarins, að vakning varð meðal almennings í
Bandaríkjunum og bandarískir vísindamenn fóm
að gefa blómafrjókomunum aukinn gaum.
C.C. Pollen Co. framleiðir blómafrjókom undir
heitinu High Desert og varð fyrst bandarískra
fyrirtækja til að kynna þau og mátt þeirra á heilsu-
fæðumarkaðnum. Að baki framleiðslunnar liggja
víðtækar vísindalegar rannsóknir, meðal annars á
jarðvegi, næringarefnum, atferli býflugna og á
sviði vinnslu- og geymsluaðferða á frjókomi. Þess
má geta að meðal þeirra vísindamanna sem starfa
og hafa starfað á vegum C.C. Pollen Co. em
margir þekktir og virtir vísindamenn í næringar-
efna-, líf- og náttúrufræðum í Bandaríkjunum,
þeirra á meðal menn sem einnig hafa getið sér
góðan orðstír fyrir vísindastörf sín utan Banda-
ríkjanna. Þá hefur fylkisháskólinn í Arizona tekið
að sér mörg rannsóknarverkefni fyrir C.C. Polien
Co.
Valin kom irá mörgum fylkjum í
Bandaríkjunum
Upphaflega vom High Desert blómafrjókornin
aðeins frá Arizona. Hins vegar kom í ljós, að í
jarðveginn þar skorti sumar tegundir snefilefna og
örvera. Eftir víðtækar rannsóknir þar sem á
þremur árum var rannsakað veðurfar og jarðveg-
ur í 48 fylkjum Bandaríkjanna, vom valdir staðir
allt frá sólheitum eyðimörkum Arizona til köld-
ustu svæða Klettafjalla, með tilliti til loftlags,
jarðvegs og mengunar. Býflugunum er á öllum
þessum stöðum beitt á tugi þúsunda blómjurta,
sem valdar eru á vísindalegan hátt með tilliti til
eðlis og staðhátta. Síðan er blómafrjókornum frá
öllum þessum stöðum blandað saman í fyrirfram
ákveðnum hlutföllum. Með þessum hætti fæst
ákjósanleg blanda, samsett af vísindalegri ná-
kvæmni með þarfir mannslíkamans í huga.
Jarðvegur næringargildi, súrt
regn og geislavirkni
í umræðum um blómafrjókom gleymist oft hversu
jarðvegurinn skiptir miklu máli. Þau efni sem ekki
eru til staðar í jarðveginum fyrirfinnast ekki
blómafrjókomum af viðkomandi svæði. Þetta á
bæði við um æskileg og óæskileg efni.
Ljóst er, að þar sem úrkoma er mikil, skolast
uppleysanleg næringarefni burtu úr jarðveginum.
Svo er til að mynda um ýmis svæði í Evrópu, þar
sem vinnsla blómafrjókorna er stunduð. Þá hefur
eftirspum eftir blómafrjókomum frá Bandaríkj-
unum vaxið mjög mikið eftir kjamorkuslysið í
Tsjemobyl, þar sem geislavirk efni hafa fundist í
evrópsku frjókomi.
Um alla Evrópu hefur mengun aukist gífurlega
undanfarin ár. Skógar í Þýskalandi, Sviss og
Austurríki em að eyðast vegna súrs regns og ár og
vötn víða um álfuna em að verða menguninni að
bráð, meira að segja í nágrenni okkar, í Noregi og
Svíþjóð.
Skordýraeitur, sem úðað er á ræktað land, á
greiða leið í blómafrjókom. Vegna þessa notast
C.C. Pollen Co. einvörðungu við land til bý-
flugnaræktunar, sem ekki hefur verið brotið til
ræktunar áður.
Háþróuð vinnslu- og
geymslutækni
Háþróuð vinnslu- og geymslutækni, sem C.C.
Pollen Co. hefur þróað og hefur einkaleyfi á,
byggist á því að sækja þekkingu til náttúmnnar
sjálfrar. Þannig hafa ýmsar aðferðir verið sóttar
beint til býflugunnar.
Fomleifafræðingar og mannfræðingar hafa
lengi notað blómafrjókom, sem fundist hafa í
innyflum egypskra múmía og annarra fommanna,
til þess að ákvarða aldur þeirra, en mjög auðvelt
er að aldursgreina frjókomin. En hvers vegna
hafa frjókomin varðveist svona vel í meltingar-
færum fornmanna? Jú, vegna þess að þau eru
ómeltanleg. Hins vegar hefur C.C. Pollen Co. yfir
að ráða aðferð til að sprengja skum komanna,
þannig að stór hluti þeirra meltist auðveldlega.
Það var eftir þessa uppgötvun, að vísindamenn í
Bandaríkjunum fóru að veita High Desert blóma-
frjókornunum vemlega athygli.
Býflugan ummeltir sykur (nectar), sem hún
sýgur úr blómunum, og breytir honum í hunang.
Flugan tekur frá ákveðin hólf í býkúpunni fyrir
blómafrjókom og þar gerjast þau í hunangi uns
skel þeirra mýkist það mikið, að flugan getur
umbreytt þeim í drottningarhunang, sem er undir-
staða lífkerfis býkúpunnar.
Blómafrjókornum C.C. Pollen Co. er safnað í
sérstakar gildrur, sem settar eru upp við býflugna-
búin. Flugan fer í gegnum eins konar net, til að
komast í búið og við það losna frjókom af fótum
hennar. Sá böggull fylgir hins vegar skammrifi,
eins og áður kom fram, að komin meltast ekki
nema að litlum hluta í meltingarfæmm manna,
eins og þau koma fyrir úrgildrunum.
C.C. Pollen Co. þróaði því sérstaka aðferð til
þess að sprengja skum kornanna, til að maðurinn
gæti melt kornin og nýtt sér til fulls næringargildi
þeirra. Þetta er gert með hátíðnitækni, sem fyrir-
tækið hefur einkaleyfi á.
Þá nýtir C.C. Pollen Co. sérstaka tækni til frost-
þurrkunar. Samkvæmt tiltækum upplýsingum eru
frjókom annarra framleiðenda, þar á meðl hinna
evrópsku, hins vegar sólþurrkuð. Rannsóknir
hafa leitt í ljós, að við sólþurrkun og aðra þurrkun
við hátt hitastig eyðast öll b-vítamínefni og hvatar
í komunum, en með frostþurrkun er komið í veg
fyrir það. Að auki tryggir frostþurrkunin að
kornið heldur gæðum sínum allt frá því það er
tekið úr býkúpunni, þar til þess er neytt.
Umbúðirnar varðveita gæðin
Síðast en ekki síst hefur C.C. Pollen Co. vandað til
pökkunar blómafrjókomanna, í því augnamiði að
sem minnst rýmun verði á gæðum vörunnar við
geymslu og flutning. Til að mynda er lausu kom-
unum pakkað í loftskiptar umbúðir, þ.e.a.s. þeim
er pakkað með köfnunarefnislofti. Þetta er viður-
kennd aðferð til að varðveita gæði frjókomanna
og koma í veg fyrir að þau þráni. Ennfremur fást
High Desert blómafrjókomin kaldpressuð í litlar
töflur og hylki. Aðrir framleiðendur hafa ekki svo
vitað sé lagt í þann kostnað sem fylgir framleiðslu
kaldpressaðra taflna.
Æ fleiri neyta blómafrjókorna
Þeim fer stöðugt fjölgandi hér á landi sem neyta
blómafijókoma reglubundið og ef til vill er það
gildasta sönnunin fyrir áhrifamætti þeirra. Fyrir
þá sem hyggjast slást í hópinn er rétt að hafa í
huga, að öllum ber að fara varlega í neyslu blóma-
frjókoma fyrst í stað og byrja með því að taka
hluta úr töflu, eða eitt kom. Sé þess ekki gætt,
kunna áhrifin að verða of sterk í byrjun. Góður
árangur næst einungis með reglubundinni neyslu
og ekki er óvarlegt að ætla sér þijá mánuði til þess
að vinna verulegan árangur.
48