Þjóðlíf - 01.12.1987, Side 50
TÆKNI & VÍSINDI
Feigðarflan eða afreksverk?
Nokkrir ofurhugar klífa K2 um hávetur
PYRIT
GULLSMIOJA
ÖNNU MARIU
ANNA MARlA
SVEINBJORNSDOTTIR
GULLSMIOUR
AF FJÓRTÁN HÆSTU fjöllum heims (yfir
8000 m há) er eitt öðrum illræmdara og
erfiðara viðureignar. Pað heitir Chogori en
er kallað K2 og lyftir sér 8.611 m yfir sjó á
landamærum Kína og Pakistan þar sem heita
Karakoram-fjöll. Fjallið er á mörkum veður-
farssvæða, mjög bratt á allar hliðar og að
mestu brynjað ís. Ekki bætir úr skák að að-
koman er löng og erfið og landssvæðið hefur
oft verið tilefni til væringa milli Pakistana og
nágrannaþjóða þeirra. Nýlega kom fram vís-
bending um að K2 kunni að vera um 10
metrum hærra en Everest-fjall (Quomol-
ungma) sem er mælt 8.848 metrar og telst
hæsta fjall jarðar. Fáir eru þó sannfærðir um
að fyrri mælingar séu rangar.
Árið 1954 klifu tveir ítalir K2 fyrstir
manna. Eftir það hafa einungis 63 menn
komist þar upp en aðrir 26 látist í hlíðum
fjallsins. Á þessu ári fórust 13 fjallamenn á
fjallinu, þeirra á meðal einn hæfasti í hópi
breskra fjallgöngumanna, Alan Rouse, og
þekktasta konan í röðum enskra fjalla-
manna, Julie Tullis. Bæði náðu þau tindinum
en fórust í ofviðri á niðurleið
Einn fjallamanna sem komst af úr ofan-
greindum hildarleik var leiðangursstjórinn,
John Barry. Hann sór þess eið að hverfa
aldrei til fjallsins á ný. En öræfin lokka. Nú
hefur pólska fjallamannasambandið boðið
Barry, tveimur öðrum Bretum og sex
Kanadamönnum að taka þátt í leiðangri á
K2. Barry tók aftur fyrri orð og slæst, ásamt
hinum, í för tíu bestu klifrara Póllands. Pott-
urinn og pannan í skipulagningu leiðangurs-
ins og stjórnandi hans er Andrej Zawada.
Hann á að baki mörg afrek í háfjallaferðum.
Líklega þætti fyrirhuguð þjóðarbræðings-
ferð ekki yfirmáta merkileg ef ekki kæmi til
að K2 verður klifið um hávetur. Auk þess
minnast menn þess að sex af átta leiðöngrum
ársins 1987 misheppnuðust. Vetrarferðir á
hæstu fjöll jarðar eru mjög sjaldgæfar og hef-
ur enginn enn lagt í K2 á þeim árstíma.
Þegar þetta er ritað eru rúmlega 500 burð-
armenn með hátt í 13 tonn af útbúnaði á
bakinu á leið um Baltoro-jökul í Pakistan
áleiðis í grunnbúðimar við rætur fjallsrisans.
Hinir leiðangursmennirnir leggja af stað í
desember á þessu ári. Um hávetur getur
vindhraði á fjallinu náð allt að 160 km hraða
á klukkustund og frostið farið niður í 50
gráður. Enn er ekki ákveðið hvaða leið
verður farin á tindinn. Ef til vill verður það
svonefndur Abruzzi-hryggur. En hver svo
sem leiðin verður tefla mennimir í mikla
tvísýnu og við, áhorfendur, getum deilt um
það hvort kalla megi svona hættuspil og átök
við náttúruna feigðarflan eða upphaf að
miklu afreksverki íþrótta.
• Ari Trausti Guömundsson
VESTURGATA 3 101 - REYKJAViK
SiMi 20376