Þjóðlíf - 01.12.1987, Qupperneq 55
FERÐALÖG
KRISTINN BJÖRNSSON
• Götumynd frá Glasgow.
Iðandi, gróin og þokkaleg
Stuttir þættir af Glasgow
í NOKKRA ÁRAtugi hafa staðið yfir um-
fangsmikilar breytingar á skipulagi og um-
• hverfi hjá íbúum Glasgowborgar. Á næsta
ári verður haldin geysilega stór garðveisla í
borginni og nefnist hún „Garden Festival
1988“. Síðustu tvö ár hefur verið unnið af
fullum krafti að undirbúningi þessararhátíð-
ar, sem standa mun yfir allt næsta sumar. í
því skyni var m.a. skipulagður stór lystigarð-
ur með stígum og tjörnum, hæðum og dölum
og fjölmörgum þjónustukjörnum. Garður
þessi liggur meðfram Clyde ánni á svæði, þar
sem áður voru skipasmíðastöðvar og upp- og
útskipunaraðstaða. Sem dæmi um einhver
stærðarhlutföll má nefna að stærsti kolakrani
Bretlands hefur verið settur upp í einum
hluta garðsins, en til samanburðar því sem
við þekkjum hér heima er hann ríflega helm-
ingi stærri en Jakinn í Sundahöfn.
Fjöldi íslendinga streymir um þessar
rnundir til Glasgowborgar í ýmsum erinda-
gjörðum, en líklega eru flestir þar með annan
fótinn inni í frægum verslunum borgarinnar.
Synd væri þó að segja að Glasgow hefði ekki
upp á annað að bjóða en verslunarvaming.
Borgin er með grænni heimsborgum og inn-
an hennar marka er að finna stærri og fleiri
græn svæði en í flestum öðrum evrópskum
borgum. Er ætlunin hér að sýna fram á
nokkra möguleika sem í boði geta verið.
Byrjum á þekktri nágrannaborg.
HEIMSÓKN í HÖFUÐSTAÐINN. Margir
reyna að fara til Edinborgar á meðan á dvöl-
>nni stendur. Edinborg er afar falleg og hríf-
andi borg þar sem mikið hefur verið gert til
uð lífga upp á menningararfinn, en hann er
þar í ríkum mæli. Sérstaklega er rómantískt
að teygja lítið eitt á dvölinni fram á kvöld.
Þegar skyggja tekur er mikil og mögnuð lýs-
ingin tendruð og koma þá enn betur en ella
fram í ljósinu sérstæðar og fallegar byggingar
frá liðnum öldum. Aðeins tekur um klukku-
stund að ferðast með lest til Edinborgar, sem
er jafnframt höfuðborg Skotlands, og ganga
lestirnar langt fram á kvöld. Járnbrautarlest-
in til höfuðstaðarins leggur upp frá Queen
street stöðinni, en ekki aðalstöðinni og er
rétt að-hafa það í huga í tíma. Heimsókn í
Edinborgarkastala er nánast skylduverk
allra gesta og æði margir íslendingar eiga aí
sér ljósmynd hjá fallbyssuröð við norður-
veggina, fyrst eftir að inn fyrir er komið.
Klukkan eitt á hverjum góðviðrisdegi er
skotið úr nýjustu fallbyssunni til hátíðar-
brigða.
Saga þessa kastala og Skotlands er samof-
in á margan hátt og segir hvort til um annað á
þessum tilkomumikla stað. Klettana undir
kastalanum er strax farið að nýta á 6. öld svo
vitað sé með vissu. En það er á 11. öldinni
sem farið er að tala um kastla á þessari hæð.
AÐ BYGGJAST UPP OG GRÆNKA. En
mikið er að sjá í Glasgow og því er ekki tóm
til að fjalla meir um höfuðstaðinn Edinborg
að sinni. Segja má að Glasgow hafi byggst að
mestu upp í kringum innflutningsverslun á
átjándu og nítjándu öldinni. Þangað sigldi
fjöldi skipa með varning frá Ameríku. Ein
afleiðing þessara siglinga var sú að til eru
nokkrar byggingar í New Jersey, sem reistar
voru úr því skoska stórgrýti, sem notað var til
að fergja tóm skipin á siglingunni vestur.
Helsta grjótnáman er þar sem nú stendur
önnur helsta brautarstöðin í Glasgow.
Blómatími innflutningsverslunar í Glasgow
er á fyrri hluta síðustu aldar. Skömmu fyrir
aldamótin verða gífurlegar breytingar á öllu
athafnalífi borgarinnar. í kjölfar þeirra
verður sú þróun er leiddi til þess að íbúum
hennar fækkaði mjög. Eftir stóðu bygging-
arnar, stórar skemmur og miklir hafnar-
bakkar. Enn sér þess víða merki að þessi hús
standa auð og skuggaleg inni í miðhluta
hennar, en mikið hefur verið gert til að
breyta þessari þróun til batnaðar. Áætlun sú
sem starfað hefur verið eftir á síðustu árum
og áratugum hefur verið kölluð „uppbygging
hverfanna við Clydeánna“ (Riverside
project).
Þar sem áður voru skipasmíðastöðvar,
kolaútskipun og kaffi- og kryddjurtainn-
flutningur, var nú orðið mannlaust og
skuggalegt svæði. Jamaica Street, Dixon og
Oswald Street eru dæmi um þessar götur.
Oswald feðgarnir voru t.d. þekktir og virtir
innflytjendur um langt skeið og ganga af
þeim góðar sögur ennþá. Um 1950 var tekið
til við að rétta borgina úr kútnum og má
heita að nú sé lögð megin áhersla á að þessi
hverfi byggist að nýju. Fjöldi arkitekta og
hönnuða hefur tekið þátt í þessu verkefni til
þessa og uppbyggingin verður í fullum gangi
næstu árin. Meðal annars hafa verið reistar
nýjar íbúðarblokkir, til reynslu, eftir verð-
launateikningum.
Islendingur einn hefur tekið þátt í þessu
uppbyggingarverkefni með Skotunum, en
það er arkitektinn Limma, Kristín Hannes-
dóttir. Hún býr í Piparmylluhúsi við Pipar-
myllugötu í Edinborg, ásamt manni sínum,
Niculási Groves-Rains, og börnum þeirra
þremur, Sigrúnu, Höllu og Gunnari. Maður
hennar er frá írlandi og er hann einnig arki-
tekt. Þau hjónin eru bæði orðnir þekktir sér-
fræðingar í húsagerð frá síðustu öld og þeirri
átjándu. Síðar í þessari grein verður heilsað
betur upp á Limmu og fjölskyldu hennar.
GÓÐ YFIRSÝN Á TVEIMUR TÍMUM. Á
hverjum degi er boðið upp á sérstaklega
skemmtilega leiðsögn um borgina í tveggja
hæða strætisvagni, sem ber númerið 500.
Farið er í þröngan hring um miðborgina og
annan víðari. í lok fyrri hringsins er staldrað
við í Höll fólksins (People Palace), en hún
stendur í grónum og fallegum garði sem
nefndur er Glasgow Green. Garður þessi er
elsti borgarlystigarður Bretlands sem ætlað-
ur var til almenningsnota og fyrirmynd ann-
arra. Það mun hafa verið Georg 10. lávarður
af Argyll, sem lét gera garðinn fyrir landa
sína og lét hann einnig reisa Höll fólksins, Nú
er þar vandað alþýðuminjasafn, sem gefur
áhrifaríka og trúverðuga mynd af lífi og
kjörum alþýðu Skotlands á liðnum áratugum
og einnig frá síðustu öldum.
í stærri hringnum er farið út yfir Clydeána,
ekið um íbúðarhverfi, stofnanahverfi og
55