Þjóðlíf - 01.12.1987, Side 56
FERÐALÖG
undir ána til baka. Þá er ekiö undir og yfir
brýr og gegnum háskólahverfið. Einnig er
ekið framhjá „brúnni út í buskann", en það
er akbrú á fjórðu hæð sem endar í báða enda
við stórar byggingar og þar af leiðandi óöku-
fær. Skýring þessa er talin vera sú að hraðinn
hafi verið svo mikill í byggingunni að ekki
hafi unnist tími til að gæta að því hvert hún
ætti að liggja. Verslunar- og skrifstofuhúsin
sem hindra framgang brúarinnar eru full ný-
leg til niðurrifs og sama er reyndar að segja
um allt það húsahverfi sem að hraðbrautinni
liggur.
RISAEÐLUR OG RAFAEL. Á háskóla-
svæðinu er n.k. þjóðminjasafn borgarinnar
ogáþaðyfir lOOárasöguaðbaki. Þaðer Art
Gallery and Museum, sem er orðið svo gam-
alt og geymir það margan merkan muninn.
Gefur þar að líta listmuni, þjóðminjar, nátt-
úrugripa- og forndýrasafn, höggmyndir og
listaverk, ný og gömul og frá helstu menn-
ingarþjóðum. Af einstökum hlutum má
nefna líkan af sólkerfinu sem smíðað var á
síðustu öld, stórt og fallegt kirkjuorgel og
einstaka steingerfinga og beinagrindur risa-
eðla. Tímabundnar sýningar listamanna er
einnig að finna og eru það ýmist efnilegir
nýlistamenn eða trúir lærisveinar hefðarinn-
ar. Náttúrugripasafnið er sérstaklega vel úr
garði gert og er það greinilega mikið notað af
skólafólki til fróðleiksöflunar, eða t.d. til að
æfa sig í dráttlist.
Annað merkilegt safn er Burrell safnið á
Polloks grundum. Það er í nýlegu húsi og
engu öðru safni líkt. Það er að öllu leiti söfn-
un eins manns, Sr. William Burrell (1861-
1958) og vina hans. Þar eru munir frá Nílar-
deltu og Pekingdal, frá 3-4000 f.Kr., svo
dæmi séu tekin. Þar eru heilir salir úr frægum
köstulum Bretlands og fágætir listmunir.
Húsið er að verulegu leyti byggt utan um
þetta mikla safn og sniðið að mununum sjálf-
um. T.d eru flestar dyr og úthöggnar stein-
umgjarðir þeirra einnig safngripir, þar á
meðal aðalinngangurinn.
Það er ekki síður skemmtilegt að litast um
á Pollok grundum sjálfum, en þær eru í sunn-
anverðri miðborginni. Þar er aðstaða til
iðkana allra helstu almenningsíþrótta og auk
þess beitarhagar fyrir nautgripi og annan bú-
fénað. Það er því nokkuð erfitt að tala bara
um garð í þessu tilfelli, eða grænt svæði.
NÆSTA HÉRAÐ í NORÐ-VESTRI. Afar
freistandi er að fá sér lítinn bílaleigubíl, prófa
að keyra vinstra megin, og sjá með eigin
augum sveitasælu Skotlands. Rétt er að
vekja athygli á ódýrri bílaleigu, sem er við
Colston Road í Bishopbriggs og nefnist hún
Ashfield. Það tekur um hálftíma að aka út úr
Glasgow og inn í annan heim, sem á ekkert
skylt við stórborgarlíf. Landið er skógi vaxið
frá vötnum upp til hæða og fjalla. Það er
ævintýralega fagurt að stíga út á stað á borð
við Luss við Loch Lomond. Úr því er nær
• Alls konar mannlíf er að finna á líflegum
götum Glasgow-borgar.
sama hvert ekið er, litið eða horft, - allt er
það eins og að ganga eftir póstkortum eða
lifa í mynd eftir David Attenborough. Ilmur-
inn af gróðri og skepnum fær þó komið
ferðalöngum í snertingu við eitthvað sem
raunveruleika líkist. Hér er Skotland. Þorp
við þorp og bær við bæ og allt út í talsvert
strjálbýli.
Héraðið norð-vestan af Glasgow er
Argyll-hérað. Sögufræg þungamiðja þess er
kastali lávarðanna af Argyll í Inverary.
Helsti ferjustaður héraðsins er Oban, sem er,
að sögn heimamanna, höfuðstaður Vestur-
Skotlands. Oban er lítið og notalegt þorp
með vinalegum íbúum að ræða við.
Lítið mál er að verða sér úti um gistingu á
landsbyggðinni og matur er afar ódýr á
heimilislegum tehúsum. Seld er gisting með
morgunverði í öðru hverju húsi á köflum.
„Bed & Breakfast" kostar frá 8 og er hafra-
grautur gjarnan innifalinn. Að fenginni
reynslu er hægt að fullyrða að skosk gestrisni
og skoskt viðmót sé með því notalegasta sem
• Útsýni frá listasafninu í Glasgow. Verk eftir
listamanninn Robert Houston (1891—1940).
hægt er að vonast eftir. Ekki síst þegar
húmar að kvöldi og sest er inn á „Public
bar“.
KASTALINN HENNAR LIMMU. Við
minntumst áðan á arkitektinn Limmu. Hún
og maðurinn hennar hafa það fyrir hugsjón
og annað starf að kaupa forn hús, gera þau í
upprunalegt horf og búa í þeim þar til nægi-
lega vandaður kaupandi finnst. Um þessar
mundir eru þau stödd í miðju slíku verkefni,
sem áætlað er að taki um fimm ár að ljúka.
Já, þau festu fyrir fáeinum árum kaup á
kastala og eru að múra hann upp og pússa í
stand. Kastali þessi er hinn tignarlegasti ogá
hann eftir að verða öðrum til fyrirmyndar,
eins og hann forðum var. Á miðöldum, er
hann var reistur, fylgdu honum miklar lend-
ur með dádýraveiði og veiði í vatni. Þá var og
mikill og skrautlegur hallargarður sem
íslensk-írska fjölskyldan er líka að rækta
upp.
FÁEIN SMÁATRIÐI. Rétt er að benda á að
ekki er alveg sama hvar borðað er eða versl-
að. Gildir það að reyna eftir því sem kostur
er að finna staði þar sem skoska reglan ríkir.
Skoska reglan er einfaldlega sú að þar eru
hlutirnir hafðir til sölu á sanngjörnu verði
fyrir viðskiptavininn. í því skyni er rétt að
forðast allar verslunarkeðjur og búðir þar
sem verðið er samræmt yfir allt landið. Ekki
þarf endilega að sniðganga aðal verslunar-
göturnar, heldur miklu frekar að velja rétt úr
öllu framboðinu.
Helsta verslunarsvæði miðborgarinnar er
á milli Sauchiehall Street og Argyll Street.
Þessar götur eru jafnframt helstu verslunar-
götur Glasgow. Til eru dýrar götur eins og
Buchanan og einnig er að finna ódýrar búðir
með ótrúlegasta varning í hliðargötum og
nálægum strætum. Rétt er fyrir ferðamenn í
verslunarhugleiðingum að tala við einhvern
fróðan áður en farið er utan eða tryggja sér
samfylgd kunnugra. Þá er einnig rétt að nýta
eins og kostur er þá lipru þjónustu, sem oft-
ast er í þegjandi boði hjá starfsfólki hótel-
anna.
En til að tryggja það að ekki sé farið langt
út yfir leyfileg tollamörk á innflutningi fatn-
aðar og tækja, er mælt með því að varið sé
einhverjum tíma á degi hverjum til upplyft-
ingar. Fróðlegt getur verið að spjalla við
heimamenn, skoða söfn eða heimsækja
athyglisverða staði. Þá getur ekki síður verið
hollt að eyða kvöldstund á góðu veitinga-
húsi, en þau eru nokkur. Ekki er ætlunin að
auglýsa eitt öðru fremur, en hjá því verður
ekki vikist í einu tilfelli. Ef því verður við
komið, er mælt með kvöldverði á Babbitý
Bowster í Blackfriarsgötu. Þar er maturinn
ódýr og gamalt munkaklaustrið frá 1797,
sem hýsir staðinn, hefur verið gert að ein-
staklega vinalegum veitingastað.
• Kristján Bjömsson
56