Þjóðlíf - 01.12.1987, Page 61
gerð, sem umboðið hefur ákveðið að leggja
áherslu á hér á landi.
Þannig búin hefur Omegan ekki einungis
nægilegt afl, það er beinlínis feikinóg,
| kannski meira en nóg. að minnsta kosti varð
bílnum aldrei afls vant og hámarkshraðinn
slíkur að hann kemur íslendingum nánast
ekki við því hann er meiri en helmingi meiri
en hér er leyfilegur, samkvæmt upplýsinga-
bæklingum.
Vélarafl er hins vegar ekki bara spuming
um hámarkshraða og hröðun, það ræður því
einnig hvernig er að aka bílnum við venju-
* legar kringumstæður. Og í því efni varð ég
mjög hrifinn af Omegunni. Eins og áður hef-
Ur verið vikið að í þessum þáttum eru hestöfl
eitt og „tog“ (torque) annað. Togið er mæli-
kvarði á það hve miklu afli vélin skilar til
hjólanna við breytilegan snúningshraða og í
því efni er 2.0i vélin sérstaklega sveigjanleg
og skemmtileg. Hún tekur vel við sér hvort
sem ekið er á litlum eða miklum hraða í
hinum ýmsu gírum. Pað þarf m.ö.o. ekki að
þenja hana út í hörgul til að fá hana til að
vinna vel, hún tekur líka mjög vel við sér við
| lágan snúning og það þarf ekki stöðugt að
vera að hræra í gírkassanum, t.d. þegar ekið
er í mikilli umferð þar sem hraðabreytingar
eru örar.
Og ekki sakar það að bensíneyðslan er
rnjög hagstæð miðað við aflið. Samkvæmt
Upplýsingum framleiðanda eyðir Omegan
nieð þessari vél tæpum 6 lítrum á hverja 100
, km sé ekið stöðugt á 90 km hraða og um 7
h'trum sé ekið á 120 km hraða, þ.e. þægileg-
Um ferðahraða á hraðbrautum erlendis. í
hlönduðum bæjarakstri segja þeir að eyðslan
sé um 11 lítrar á hverja 100 km. Þetta eru
ttijög frambærilegar tölur, miðað við rúm-
lega 1200 kg bíl, enda loftmótstaðan með því
hesta sem um getur, sem áður segir.
ANNAR BÚNAÐUR Omegunnar er mjög
viðunandi, ekkert vantar beinlínis, en engu
er heldur ofaukið. Einhver myndi benda á að
híll í þessum verðflokki ætti að vera búinn
olíuþrýstingsmæli og hleðslumæli, en reynsla
flestra mun þó vera sú að þeir fylgjast lítt
með þessum mælum; viðvörunarljós eru
nægjanleg. Þá má nefna að þægilegt væri að
hafa hallanlegt stýrishjól.
Hins vegar eru í bílnum ýmis þægindi sem
fengur er í. Svo dæmi séu nefnd þá eru
hurðalæsingar miðstýrðar (allar hurðir
læsast eða aflæsast þegar lykli er snúið í bíi-
stjórahurðinni); hliðarspeglar báðum megin
eru rafstýrðir frá bílstjórasæti (þægilegt
öryggisatriði þegar fleiri skiptast á um að
nota bílinn, t.d. bæði langir slánar og nettar
frúr); miðstöðin er öflug og hefur hvorki
meira né minna en fimm hraðastig; hæð bíl-
beltanna er stillanleg eftir stærð ökumanns
og bílstjórasæti er ekki einungis færanlegt
fram og langt aftur og halli á sætisbaki
stillanlegur, það er líka hægt að hækka og
lækka setuna, allt eftir hæð bílstjórans í sæti,
og stilla stuðning við mjóhrygginn.
Þá er í bílnum stórt farangursrými, sem
auka má enn frekar með snjöllum hætti. Þó
bíllinn sé venjulegur fólksbíll með skottloki
er aftursætisbakið tvískipt og má Ieggja niður
hvorn hluta fyrir sig og fá þannig meira pláss
án þess að fórna nema öðru sætinu. Auk þess
má leggja niður armpúðann í rniðju aftur-
sætinu einan sér og fá með því pláss fyrir
langa hluti, t.d. skíði. Þannig geta fjórir
ferðast í bílnum með skíðin innandyra. Þetta
hef ég ekki séð í öðrum bílum.
BÍLADÓMAR geta verið erfiðir þegar í hlut
eiga úrvalsbílar hvað varðar útbúnað og
aksturseiginleika. Þá er nánast ekki annað
að segja en að þetta sé úrvalsbíll á alla lund
og aðfinnslur jaðra við nöldur. Við þann
vanda, ef vanda skyldi kalla, er óneitanlega
að etja hvað Omeguna varðar. Hún er búin
þeim kostum sem nokkur leið er að ætlast til:
Kraftmikilli, spameytinni vél, frábæmm
aksturseiginleikum á alls kyns vegum og
hæfilega léttu og hámákvæmu aflstýri sem
gerir bílinn afar lipran og skemmtilegan í
bæjarakstri. Og hann er líka fallegur og
rennilegur og annar búnaður mjög viðun-
andi sem áður getur.
Að einu leyti liggur mér við að segja að
Omegan sé of góð við íslenskar aðstæður;
Tæknilegar
upplýsingar
Lengd (cm): 468.7
Breidd (cm): 177.2
Hæð (cm): 144.7
Eiginþyngd (kg): 1225
Farangursrými (Itr): 520)
Bensíntankur (Itr): 75
Vél: 4 strokkar í röð, 2 ventlar á hverjum,
einn yfirliggjandi knastás
Sprengirými (cm): 1984
Afl (DIN-hestöfl): 122
Tog (Nm/snún/mín): 175/2600
Þjöppunarhlutfall: 10:1
Bensíninnspýting: Rafeindastýrð
Fjöðrun: Sjálfstæð á hverju hjóli, sambyggðir
gormar og höggdeyfar
Hemlar, framan: Diskar
Hemlar, aftan: Diskar
Stýri: Tannstangarstýri með hjálparátaki
Beygjuradíus (m): 10.8
Gírkassi: 5 gírar áfram
Drif: Að aftan
Bensínnotkun (skv. upplýsingum
framleiðanda pr. 100 km):
Borgarakstur: 11.0 I
90 km/ldst, stöðugt: 5.6 1
120 km/klst, stöðugt: 7.4 1
það er svolítið erfitt að halda sig undir há-
markshraða. Hún rennur svo Ijúflega,
áreynslulaust og hávaðalaust á vegi að
hraðamælirinn sýnir fyrr en varir þriggja
stafa tölu. Og þægilegasti ferðahraðinn á
góðum vegi, 100-120 km/klst., er harð-
bannaður með lögum! Við þessu er svo sem
ekkert að gera því ég er ekki viss um að
vegirnir - eða þjóðin - þoli meiri hraða en
leyfilegur er.
ÞEIR SEM NÚ ætla að rjúka til og panta sér
Opel Omega verða fyrst að íhuga eftirfar-
andi staðreynd: Bíllinn kostar tæpa milljón
með þeim búnaði sem hér hefur verið lýst.
Nánar tiltekið um 970 þúsund kominn á
götuna með útvarpi, sé hann staðgreiddur.
Hvort það er mikið eða lítið skal ekki fullyrt
hér. Væntanlegir bifreiðakaupendur hljóta
að hugsa málið með tvennum hætti:
1. Hvaða bílar aðrir kosta kringum mill-
jón? (Margir úrvalsfákar eru þá í boði).
2. Hvaða bíla aðra má fá með svipuðum
búnaði og hvað kosta þeir? (Sumir kosta
meira, en aðrir vissulega minna).
Þegar menn hafa kannað alla valkosti fer
tilfinningin fyrir bílnum að segja til sín.
Hvaða kenndir vakna við að horfa á hann,
hvemig er að setjast undir stýri, hvernig
mundi hann virka á aðra? Og nafnið, vekur
það tiltrú? Hvað segir Siggi frændi, sem hef-
ur keyrt leigubíl í 35 ár, og hvað segir Tommi
bifvélavirki, sem bölvar flestum tegundum?
Og hve mikill er sannfæringarkraftur sölu-
manns?
Hvernig væri að djúphyglir menn reyndu
að greina með vísindalegum hætti hvað það
er í raun og vem, fyrir utan verðið, sem
ræður því hvers konar bíla fólk ákveður að
kaupa? Það yrði fróðleg lesning.
• Asgeir Sigurgestsson
61