Víkurfréttir - 08.01.2009, Page 11
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 8. JANÚAR 2009 11STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Virkjun mannauðs á Reykja-
nesi hóf starfsemi sína sl.
mánudag. Virkjun er til húsa
í byggingu 740 á Vallarheiði
en þar er verið að byggja upp
starfsemi fyrir íbúa á Reykja-
nesi sem leita nýrra tækifæra
í atvinnu eða námi.
Við þær aðstæður sem eru í
þjóðfélaginu var afráðið að
setja á stofn miðstöð, Virkjun,
þar sem einstaklingar á Suður-
nesjum geta leitað nýrra tæki-
færa en boðið verður upp á
náms- og starfsráðgjöf, persónu-
lega sérfræðiaðstoð lögmanna,
félagsráðgjafa, fjármálaaðstoð,
framtalsaðstoð og fleira.
Þá verður Virkjun ekki síður
samkomustaður fólks sem vill
nýta það áfall sem atvinnuleysi
er hverjum og einum til að búa
sig undir ný tækifæri í atvinnu
með námi, námskeiðum eða
mannbætandi tómstundum
og menningarstarfsemi sem
einnig verður í boði í Virkjun.
Keilir, Fjölbrautaskóli Suður-
nesja og Miðstöð símenntunar
á Suðurnesjum hafa tekið
höndum saman með Virkjun
eins og sjá má í auglýsingu í
blaðinu í dag og bjóða upp á
fjölbreytt nám fyrir þá sem
leita nýrra tæki færa. Við
hvetjum alla sem vilja skoða
þessa möguleika að líta við í
Virkjun og kynna sér málin
frekar. Laugardaginn 17. jan-
úar verður sameiginleg kynn-
ing námstækifæra og starfsemi
Virkjunar frá kl. 13:00 - 16:00.
Virka daga er Virkjun opin
frá kl. 09:00-16:00 og eru allir
íbúar á Reykjanesi sem telja sig
eiga erindi velkomnir, fá sér
kaffi og kynna sér starfsemina,
en nám, fyrirlestrar, íþrótta-
æfingar, listnám og annað
sem Virkjun býður verður
þátttakendum að kostnaðar-
lausu. Vinnuaðstaða er fyrir
námstengd verkefni, stofnun
fyrirtækja og ýmiskonar frum-
kvöðlastarfsemi í samstarfi við
frumkvöðlasetrið Eldey.
Virkjun er rekin með framlagi
stofnana, fyrirtækja og einstak-
linga sem leggja fram vinnu án
endurgjalds og þörf er á fleiri
sjálfboðaliðum til starfa til að
halda starfseminni úti. Þeir
sem vilja leggja sitt af mörkum
mæti í Virkjun og hafi samband
við Pál Rúnar Pálsson, sími 664
2804, Ásu Eyjólfsdóttur í síma
862 5282, eða Ásmund Friðriks-
son síma 894 3900, sem veita
allar upplýsingar.
Strætó fer frá Reykjaneshöll
á heila tímanum í Virkjun,
fyrir þá sem koma akandi er
Virkjun við Flugvallarbraut á
leið í gömlu flugstöðina.
Ásmundur Friðriksson
verkefnastjóri Virkjunar.
Virkjun á Vallarheiði:
Ert þú að leita tækifæra?
21.900.000,-
Uppl. á skrifst.
Staðarhraun 42, 240 Grindavík.
Fallegt mikið endurnýjað raðhús á góðum stað.
Möguleiki á yfirtöku á hagstæðu láni frá
íbúðalánasjóði með 4,15% vöxtum.
Hringbraut 136
Möguleiki á að skipta Hringbraut 84 eh og
Hringbraut 136 í einbýlis eða parhús í Keflavík.
Nánari upplýsingar á skrifstofu.
16.900.000,-
Hringbraut 84 eh
4 herbergja íbúð ásamt bílskúr.
Íbúðin er mikið endurnýjuð.
Löggiltur fasteignasali: Sigurður Ragnarsson - Sölumenn: Júlíus Steinþórsson og Sævar Pétursson
Við bjóðum nýjar íbúðir til leigu í 15 mánuði án vísitölu.
Að þeim tíma liðnum getur þú keypt fasteignina.
Leigan gengur beint upp í kaupin.
Skoðið alla kostina á www.es.is
Aftengjum verðbólgu í Reykjanesbæ
Leigðu, lifðu, eigðu...
Daglegar fréttir á vf.is
- rjóminn af tíðindum dagsins, fréttir, mannlíf og íþróttir