Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.02.2009, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 12.02.2009, Blaðsíða 6
6 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 7. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR Alhliða veisluþjónusta hjá Erni Garðars. - Jólahlaðborð - Smáréttaveisla - Erfidrykkja Pantið tímanlega, fáið tilboð Tökum að okkur að sjá um erfidrykkur  ( beina síðan í heimasíðuna ) og gerið verðsamanburð.. Hljómsveitin Klassart vinnur nú að annarri hljóðversplötu sinni sem áætlað er að komi út síðar á árinu. Er plötunni ætlað að fylgja eftir fyrstu breiðskífu sveitarinnar ,,Bottle of blues“ sem kom út árið 2007 og fékk einróma lof gagnrýnenda. Hljómsveitin, sem í raun samanstendur af systkinum, braust fyrst fram á sjónarsviðið við sigur á blúslagakeppni Rásar 2 árið 2006 og hefur hljómsveitin komið fram með hléum undanfarin tvö ár, en búast má við að hljómsv itin verði mikið á ferðinni á þessu ári. Breiðskífan er tekin upp í Sýrlandi (Hljóðrita) og er valinn maður í hverju rúmi, má þar nefna blúsgítarleikarann Guðmund Pétursson (Vinir Dóra, Blúsmenn Andreu) Davíð Þór Jónsson (Hjálmar, Flís,) á orgel og píanó og Helga Sv. Helgason (Hjálmar, Flís) sem lemur húðir. Upptökunum stjórnar Keflvíkingurinn Guðmundur Kristinn Jónsson sem án efa er einn fremsti upptökumaður landsins í dag. Miklar væntingar eru gerðar til væntanlegrar breiðskífu og er þa mat ku nug a að þarna muni tvímælalaust fara ein af plötum ársins. Klassart með nýja breiðskífu Systkinin í Klassart ásamt Guðmundi Kristni upptökustjóra LJÓSMYND: GÚNDI

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.