Víkurfréttir - 12.02.2009, Side 6
6 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 7. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Alhliða veisluþjónusta
hjá Erni Garðars.
- Jólahlaðborð
- Smáréttaveisla
- Erfidrykkja
Pantið tímanlega,
fáið tilboð
Tökum að okkur að sjá um erfidrykkur ( beina
síðan í heimasíðuna ) og gerið verðsamanburð..
Hljómsveitin Klassart vinnur nú að annarri
hljóðversplötu sinni sem áætlað er að
komi út síðar á árinu. Er plötunni ætlað að
fylgja eftir fyrstu breiðskífu sveitarinnar
,,Bottle of blues“ sem kom út árið 2007
og fékk einróma lof gagnrýnenda.
Hljómsveitin, sem í raun samanstendur
af systkinum, braust fyrst fram á
sjónarsviðið við sigur á blúslagakeppni
Rásar 2 árið 2006 og hefur hljómsveitin
komið fram með hléum undanfarin
tvö ár, en búast má við að hljómsv itin
verði mikið á ferðinni á þessu ári.
Breiðskífan er tekin upp í Sýrlandi
(Hljóðrita) og er valinn maður í hverju rúmi,
má þar nefna blúsgítarleikarann Guðmund
Pétursson (Vinir Dóra, Blúsmenn Andreu)
Davíð Þór Jónsson (Hjálmar, Flís,) á orgel
og píanó og Helga Sv. Helgason (Hjálmar,
Flís) sem lemur húðir. Upptökunum
stjórnar Keflvíkingurinn Guðmundur
Kristinn Jónsson sem án efa er einn
fremsti upptökumaður landsins í dag.
Miklar væntingar eru gerðar til væntanlegrar
breiðskífu og er þa mat ku nug a að þarna
muni tvímælalaust fara ein af plötum ársins.
Klassart með nýja breiðskífu
Systkinin í Klassart ásamt Guðmundi Kristni upptökustjóra
LJÓSMYND: GÚNDI