Víkurfréttir - 26.02.2009, Page 6
6 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 9. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Á Nesvöllum er hafin þróun-
arvinna sem miðar að því að
hanna kennsluefni fyrir fólk
50 ára og eldra, svo það geti
eflt færni sína á stafrænum
miðlum eins og tölvum og
fjarskipta- og upplýsinga-
kerfum.
Leiðbeinendur eru þeir Andri
Ottósson og Benedikt Bryn-
leifsson hjá Tæknibrú ehf, sem
stendur að verkefninu. Mark-
mið þess er m.a. að brúa þá
stafrænu gjá eða þekkingarbil
sem myndast hefur milli kyn-
slóða en stór hópur eldra fólks
hefur einangrast frá samfélagi
hinna sem búa yfir færni og
þekkingu á þessu sviði.
Myndin er tekin í byrjun vik-
unnar þegar námskeiðin hóf-
ust á Nesvöllum.
VFmynd/elg.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugþjónustunni á Keflavík-
urflugvelli ehf. (IGS) liggur
verkefnastaða fyrirtækisins
sumarið 2009 ekki endan-
lega fyrir en flugáætlanir
flugfélaganna koma þó til
með að taka á sig lokamynd
næstu vikurnar. Ljóst er að
samdráttur verður í starf-
semi IGS frá síðastliðnum
sumrum en engu að síður
verður mikil og öflug at-
vinnustarfsemi í gangi innan
veggja fyrirtækisins.
IGS hefur verið einn stærsti at-
vinnurekandi á Suðurnesjum
undanfarin ár og í vetur eru
starfandi um 320 starfsmenn
hjá fyrirtækinu. Samkvæmt
upplýsingum frá Svölu Guð-
jónsdóttur, forstöðumanns
starfs manna sviðs, er gert
ráð fyrir því að IGS ráði allt
að 150 starfs menn inn til
fyrirtækisins frá lok apríl til
byrjun október. Til að byrja
með verða þessi tímabundnu
störf eingöngu auglýst á Suð-
urnesjum og vonast fyrirtækið
til að geta lagt sitt lóð á vogar-
skálarnar í því erfiða atvinnu-
ástandi sem Suðurnesjamenn
standa frammi fyrir.
Hinn árlegi forvarnardagur
ungra öku manna verð ur
haldinn dagana 3. og 4. mars
nk. og eru þátttakendur nem-
endur á fyrsta ári í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja.
Markmiðið með verkefninu
er að vekja ungmennin til um-
hugsunar um þá ábyrgð sem
fylgir því að fá bílpróf, fækka
umferðarslysum og auka ör-
yggi í umferðinni.
Nemendur fá fræðslu um af-
leiðingar umferðarlagabrota,
sektir, tjónaskyldu og brot
gegn 3ja aðila auk þess að
upplifa að fara í veltibíl, belta-
sleða og prófa ölvunargler-
augu. Sviðsett er umferðarslys
á planinu við 88 Húsið og fá
nemendur að sjá hvernig lög-
regla og sjúkraflutningamenn
athafna sig þegar slys verður.
Dagskránni lýkur með grill-
veislu fyrir hópinn.
Að venju er forvarnardagur
ungra ökumanna samstarfs-
verkefni Reykjanesbæjar, Lög-
reglunnar á Suðurnesjum,
Brunavarna Suðurnesja, Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja og
Tryggingamiðstöðvarinnar.
Tekið á tæknihræðslunni
Forvarnardagur ungra
ökumanna 3. og 4. mars
IGS hugar að ráðning-
um í tímabundin störf