Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.02.2009, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 26.02.2009, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 26. FEBRÚAR 2009 13STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM HEYRNARÞJÓNUSTA Suðurnesjamenn verðum við á Nesvöllum þjónustumiðstöð Reykjanesbæ Heyrn, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur 534 9600 heyrn@heyrn.is Tímapantanir - 534 9600 Föstudaginn 6. mars Nánari upplýsingar www.heyrn.isTækið sem enginn veitir eftirtekt 20 „Þetta var sérstakt ástand en ég auglýsti í White Falcon, blaði varnarliðsmanna og fékk 3-5 konur varnarliðsmanna í vinnu í nokkrar vikur,“ segir Júlíus Rafnsson, þáverandi framkvæmdastjóri frystihúss R. A. Péturssonar h/f í Njarðvík en árið 1987 fékk hann ekki mannskap í fiskvinnslu. Íslenskar konur fengust ekki í þessi störf á þeim tíma. Frétt þessa efnis var á forsíðu Víkurfrétta 1. okt. 1987 eða fyrir rúmu 21 ári síðan. R. A. Pétursson h/f hafði lengið verið vinsæll vinnustaður í Njarðvík og reksturinn gengið vel. Þegar hér var komið við sögu var nýbúið að tæknivæða vinnsluna og í fréttinni segir að þetta hafi verið eitt vélvæddasta frystihús landsins. „Ef ég fæ ekki ákveðinn fjölda starfsmanna getur starfsemin ekki haldið áfram,“ sagði Júlíus í viðtalinu. Það kom reyndar á daginn því starfsemin hætti nokkrum mánuðum síðar. Júlíus hóf að pakka fiskinum í smærri neytendapakkningar og honum var lofað miklu hærra verði en þá fékkst fyrir hefðbundna framleiðslu. Það gekk ekki eftir. Afköst voru heldur ekki nógu mikil vegna skorts á mannskap þó svo að launin væru ekki verri en annars staðar. Þessi frétt er lítið dæmi um hvernig atvinnumálin eru misjöfn í okkar landi. Þarna sárvantaði fólk til að halda starfsemi gangandi. Í dag er annað uppi á teningnum. Nú vantar starfsemi en ekki starfsfólkið. Gamalt og gott úr Víkurfréttum: Varn ar liðs kon ur komu í fisk inn Helena Rós Þórólfsdóttir fór með sigur af hólmi í söngvakeppninni Hljóðnemanum sem fór fram í Andrew's Theater á Vallarheiði í síðustu viku. Helena Rós söng lagið Everytime sem Britney nokkur Spears söng á sínum tíma. Í öðru sæti varð Ólína Ýr Björnsdóttir með lag hljómsveitarinnar Goo Goo Dolls, Iris. Hljómsveitin Reason To Believe tók síðan þriðja sætið með laginu Everytime I Look For You með pönk-rokksveitinni Blink 182. SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA Á VF.IS

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.