Víkurfréttir - 26.02.2009, Qupperneq 12
12 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 9. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Nafn: Helena Rós Þórólfsdóttir
Ald ur: 18 ára
Fjöl skyldu hag ir: Mamma Ólrikka
Sveinsdóttir, pabbi Þórólfur
Þorsteinsson og ein eldri systir,
Marína Ósk Þórólfsdóttir.
Staða: Á lausu 20svör fyrir forvitna
1. Hver er uppáhalds kennarinn þinn?
Harpa Kristín.
2. Hvenær vaknaði áhugi á söng? Hef alltaf
elskað að syngja, frá því ég man eftir mér.
3. Afdrifaríkasta ákvörðun lífs þíns?
Engin ennþá !
4. Besta ráð sem þú hefur fengið? Ekki ein-
blína alltaf á neikvæðu hlutina.
5. Hvað er besta árið í þínu lífi til þessa?
Árið 2005.
6. Áttu þér draum? Að komast í landsliðið
í fótbolta held ég... annars langar manni svo
margt !
7. Hefurðu gert eitthvað verulega kjána-
legt? (hvað?) Bara svona klaufahluti held ég,
labba á hurðar, flækja mig í neti og detta og
eitthvað svoleiðis..
8. Uppáhaldskvikmyndir? Hummm…10
Things I Hate About You, Police Academy
og margar margar fleiri.
9. Uppáhaldstónlist? Sálin hans Jóns míns,
Gavin DeGraw, Fall Out Boy t.d.... flest allt
nema þungarokk.
10. Hefurðu fylgst með sápuóperu? Já,
Bold’n The Beautiful.
11. Hefurðu grátið við að horfa á bíómynd
(þá hvaða mynd)? Haha já mörgum, eins og
Notebook og A Walk To Remember
bara sem dæmi !
12. Hvernig tölvupóst myndir þú vilja fá
í dag? Annað hvort fyndinn eða að ég hafi
unnið eitthvað skemmtilegt.
13. Ef þú fengir eina ósk, hver væri hún?
World Pease held ég bara.
14. Hvað myndir þú gera ef þú feng-
ir alræðisvald sem bæjarstjóri í einn
dag? Fækka þessum hraðahindrunum á
Hafnargötunni og láta laga grasið á
knattspyrnusvæðinu á Iðavöllum !
15. Hvers gætir þú ekki verið án?
Fjölskyldunnar, vinanna og súkkulaðis !
16. Uppáhaldsmatur og drykkur?
Lambahryggur, brúnaðar kartöflur, brún
sósa, síðan er það vatnið.
17. Hvað vildir þú verða þegar þú yrðir
fullorðin? Ætlaði alltaf að verða lögfræð-
ingur og atvinnumaður í fótbolta þegar ég
var yngri, en það breyttist.
18. Ertu með síðu á Facebook? (Hvað áttu
marga vini þar?) Já, ég á 272 vini.
19. Hvert á að fara í sumarfríinu? Bara ekki
neitt held ég, bara vinna og fótbolti.
20. Hvað fékkstu í fermingargjöf? Skart,
pening, sjónvarp og eitthvað fleira.
„Ég tók þátt í Hljóðnemanum í fyrra og fannst svo gaman þá að ég ákvað
að taka bara aftur þátt,“ segir Helena Rós Þórólfsdóttir sem sigraði í
Hljóðnemanum 2009. „Ég valdi lagið Everytime af því að mér finnst það flott
og fallegt lag og það passaði líka vel við röddina mína. Systir mín Marína Ósk
spilaði undir hjá mér á gítar og söng bakraddir, hún er að verða 22ja í ár og er
frábær tónlistarmaður. Hún spilar á mörg hljóðfæri og syngur og hún er bara
æði ! Við höfum þó nokkrum sinnum spilað og sungið saman, hún var líka
með mér í fyrra í Hljóðnemanum“.