Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.06.2009, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 11.06.2009, Blaðsíða 19
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 11. JÚNÍ 2009 19STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Geymið auglýsinguna Listamannaleiðsögn: Brennið þið, vitar! Listahátíð í vitum umhverfis Ísland Verið velkomin á sýningu Gjörningaklúbbsins, Vitaskuld, auðvitað, í Garðskagavita Á sama tíma sýna: Unnar Arnar, Staðarskálann, í Dalatangavita á Austfjörðum Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Assan yrkir, í Kópaskersvita við Öxarfjörð Brennið þið, vitar! verður opin til 3. ágúst 2009 Opnunartímar í sumar: fimmtudaga – sunnudaga, kl. 14-18 www.listahatid.is Sunnudaginn 14. júní kl. 14.00 verður Olga Bergmann með leið- sögn um sýningu sína, Í húsi sársaukans, í Listasal Duushúsa. Olga hefur farið fremur óhefðbundnar leiðir í listsköpun sinni en nýtur virðingar fyrir áleitin og vönduð verk. Á sýningunni, sem er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík, er stefnt saman myndbands- verkum, skúlptúrum og fundnum hlutum. Reynt er að skyggnast á bak við þær hugrenningar og tilfinningar sem skapast við missi, áföll eða umbyltingu aðstæðna og leitast við að leiða í ljós hvað sú togstreita sem af slíku hlýst hefur í för með sér svo sem stöðnun eða nýtt upphaf. Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum er opinn virka daga frá kl. 11.00 til kl. 17.00 og um helgar frá kl. 13.00- 17.00. Sýningin stendur til 17. ágúst og aðgangur er ókeypis. Olga Bergmann í Lista- safni Reykjanesbæjar Conference room Nokkur munur er á skóla- sókn 16 ára ungmenna eftir landshlutum. Hlutfallslega flestir 16 ára unglingar sækja skóla á Austurlandi en þar er skólasókn 96%. Hins vegar sækja hlutfallslega fæstir skóla á Suðurnesjum en þar eru 88% 16 ára ungmenna skráð í skóla. Munurinn á milli þessara landshluta er því 8 prósentustig sem er umtalsverður munur. Þetta kemur fram í gögnum Hag- stofu Íslands. Í 17 ára aldursflokknum er svipaða sögu að segja. Þar er skólasókn langminnst á Suður- nesjum eða 74%. Hún er næst- minnst á Suðurlandi eða 84%. Á Norðurlandi er hún mest eða 94%. Erling og Stafnes aflahæstir í maí Tveir netabátar á Suðurnesjum eru efstir á lista Gísla Reyn- issonar á vefsíðunni www. aflafrettir.com yfir aflahæstu netabátana í maí. Erling KE trónir efstur með tæplega 290 tonn í 19 sjóferðum. Stafnes KE kemur þar á eftir með rúm 225 tonn í aðeins 6 sjóferðum og fékk mest 55 tonn í einum róðri. Meginuppistaðan í afla skipsins undanfarið hefur verið ufsi. Þá er Ósk KE í sjö- unda sæti listans með 77 tonn en alls eru 30 netabátar á list- anum. 22 kaupsamn- ingar í maí Alls var 22 fasteignakaupsamn- ingum þinglýst í Reykjanesbæ í maí síðastliðnum. Þar af voru 9 samningar um eignir í fjöl- býli, 10 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um ann- ars konar eignir. Heildarveltan var 445 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,2 milljónir króna, skv. gögnum Fasteignaskrá ríkisins. Á sama tíma var 8 samningum þinglýst á Akranesi, 14 á Ár- borgarsvæðinu og 33 á Akur- eyri. Alls var 37 samningum þinglýst í Reykjanesbæ í maí 2008. Minnsta skólasókn- in á Suðurnesjum

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.