Víkurfréttir - 18.06.2009, Blaðsíða 6
6 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 25. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Auglýsingasíminn er 421 0000
Verktakar eru byrjaðir að breyta
byggingu 910 við Grænásbraut á
Ásbrú. Þar var síðast framhalds-
skóli Varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli en nú verður innréttuð
aðstaða fyrir rannsóknasetur
í orkuvísindum. Síðustu daga
hefur ýmsu gömlu og ónothæfu
verið mokað út, rafvirkjar eru
að endurnýja raflagnir og þess
verður ekki langt að bíða að mál-
arar mæti í hús og máli það í
ferskari litum en þekktust hjá
Varnarliðinu.
Það eru Háskóli Íslands, Keilir,
Þróunarfélag Keflavíkurflug-
vallar, Nýsköpunarmiðstöð Ís-
lands, HS Veitur og HS Orka
hf. sem á vormánuðum undir-
rituðu samstarfssamning um
uppbyggingu rannsóknaseturs
í orkuvísindum. Samstarfið
felur í sér að byggja upp á Ás-
brú aðstöðu til þess að stunda
rannsóknir á sviði orkuvísinda,
sérstaklega á sviði jarðvarma
og annarrar endurnýjanlegrar
orku og innlendrar orkufram-
leiðslu. Rannsóknasetrið verður
nýtt sem kennsluaðstaða í orku-
vísindum við Keili, Háskóla Ís-
lands og aðra innlenda skóla og
kennslustofnanir. Jafnframt við
rannsóknir á vegum stofnaðila
sem og annarra aðila.
Rannsóknasetrið í orkuvís-
indum mun stórbæta alla að-
stöðu til verklegrar kennslu og
rannsókna í orkuvísindum á Ís-
landi. Markmið samningsins er
fjórþætt. Í fyrsta lagi að stórefla
aðstöðu á Íslandi til verklegrar
kennslu og þjálfunar í verk- og
tæknigreinum. Í öðru lagi að
koma upp öflugri aðstöðu fyrir
verklegar rannsóknir í orkuvís-
indum. Í þriðja lagi að efla sam-
starf akademíunnar og atvinnu-
lífsins. Í fjórða lagi að ná fram
sparnaði vegna samlegðar sem
fæst með því að færa ákveðnar
rannsóknir samningsaðila undir
eitt þak.
Starfssvið rannsóknasetursins
verða rannsóknir á beislun og
nýtingu orku sem hægt er að
virkja á Íslandi. Megináhersla
verður lögð á þróun á búnaði og
aðferðum til nýtingar jarðvarma
(há hita- og lág hita varma).
Rannsóknasetrinu verður skipt
upp í fjórar sérhæfðar rann-
sóknastofur sem munu vinna
náið saman. Starfssvið stofanna
er: varma- og straumfræði, efnis-
fræði, mekatróník og efnafræði.
Rannsóknasetrið verður, eins
og áður segir, staðsett í húsnæði
Keilis, Grænásbraut 910.
Innrétta rannsóknasetur
í orkuvísindum á Ásbrú
Ófáum bílhlössum af gömlum innréttingum, amerískum raflögnum og öðru er ekið á haugana.
Þó er reynt að nýta allt eins og hægt er við breytingarnar.