Víkurfréttir - 23.07.2009, Page 6
6 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 30. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt.
710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn
og auglýsingar:
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamaður:
Ellert Grétarsson,
sími 421 0004, elg@vf.is
Auglýsingadeild:
Gunnar Einarsson,
sími 421 0001, gunnar@vf.is
Útlit, umbrot og prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Þorsteinn Kristinsson,
sími 421 0006, steini@vf.is
Þórgunnur Sigurjónsdóttir,
sími 421 0011,
thorgunnur@vf.is
Skrifstofa Víkurfrétta:
Rut Ragnarsdóttir,
sími 421 0009, rut@vf.is
Aldís Jónsdóttir,
sími 421 0010, aldis@vf.is
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og kylfingur.is
Afgreiðsla Víkurfrétta
er opin alla virka daga frá
kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga
er opið til kl. 15.
Með því að hringja í síma
421 0000 er hægt að velja
beint samband við auglýsingadeild,
fréttadeild og hönnunardeild.
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRINGINN ER
Í SÍMA 898 2222
VÍKURFRÉTTIR EHF.
„Við tök urn ar hafa ver ið
framar björtustu vonum,“
segja kokkarnir Haraldur
Helgason og Magnús Þóris-
son sem opnuðu matsölustað-
inn Réttinn í lok apríl. Þrátt
fyrir efasemdir sumra um að
ekki væri þörf á fleiri veitinga-
stöðum og allra síst í miðri
kreppu, létu þeir félagar það
sem vind um eyru þjóta og
ákváðu að taka slaginn.
„Við vorum báðir á ákveðnum
tímamótum í lífinu. Ef verk-
efnin koma ekki upp í hend-
urnar á manni þá verður bara
að búa þau til,“ segja þeir
félagar sem báðir eru miklir
reynsluboltar til margra ára í
matreiðslufaginu.
Þeir Haraldur og Magnús
ákváðu að róa á önnur mið.
„Það vantaði inn á markað-
inn matsölustað með ódýran,
heimil is legan mat. Slíkur
stað ur hef ur ekki ver ið á
svæðinu síðan Þristurinn var
og hét en hann var afar vin-
sæll eins og margir muna. Við
keyrum á sömu hugmynd og
teljum staðsetninguna hér í
miðbænum mjög heppilega.
Vinnusvæðið hér í kring er
mjög stórt,“ segja þeir félagar
en Rétturinn er til húsa á Hafn-
argötu 51 í húsnæði því sem
áður hýsti Vínbúðina við hlið-
ina á 10-11.
Svo hægt sé að bjóða upp á
ódýrari mat þarf að halda
kostnaði niðri. Opnunartím-
inn er því sniðinn samkvæmt
því en Rétturinn er opinn frá
kl. 11-14 og 17-19.
Ávallt er boðið upp á átta rétti
í borði með fjölbreyttu úrvali.
Þá bjóða þeir félagar einnig
upp á veisluþjónustu fyrir alla
mannfagnaði og bakkamat
fyrir fyrirtæki.
Kokkarnir Haraldur Helgason og
Magnús Þórisson:
Fundu tækifæri í kreppunni
Magnús og Haraldur eru ánægðir með viðtökurnar. VFmynd/elg
Starfsmenn VÍS í Reykjanesbæ á opnunardaginn. Talið
frá v. eru Guðmundur Örn Guðmundsson, forstjóri VÍS,
Sigurlaug Fjóla Sveinsdóttir, Birna Björk Þorkelsdóttir,
Gróa Hávarðardóttir og Gylfi Kristinsson.
VÍS opnar á nýjum stað
VÍS í Reykjanesbæ opnaði í síðustu viku nýjar skrifstofur í Kjarna, Hafnargötu 57 í Reykjanesæ. VÍS á sér langa
sögu hér í bæ en skrifstofa félagsins hefur í 20 ár verið staðsett
á sama stað hinum megin við götuna og þar áður til fjölda ára
undir merkjum Brunabótafélags Íslands. Flutningur skrifstof-
unnar ber einmitt upp á 20 ára afmæli Vátryggingafélags
Íslands.
Að sögn Gylfa Kristinssonar, útibússtjóra, var gamla húsnæðið
orðið óhentugt undir starfsemina. Nýja húsnæðið er mun minna
en nýtist betur.
Reykja nes-göngu ferð-irnar, sem Rannveig L.
Garðarsdóttir hefur staðið
fyrir í sumar, hafa verið vel
sóttar af almenningi en fjöldi
þátttakenda hefur verið á bil-
inu 70-130 manns í hverri
ferð. Þetta er annað sumarið
í röð sem Rannveig stendur
að þess um göngu ferð um
í sam starfi við HS, Geysi
Green, Norðurál, SBK og Vík-
urfréttir. Að sögn Rannveigar
hef ur þátt taka ver ið ívið
meiri nú í sumar. Níu göngu-
ferðir eru að baki af þeim ell-
efu sem voru á dagskránni.
Að sögn Rannveigar hefur
myndast fastur kjarni fólks
sem mætir í flestar ferðirnar
og hefur vaxandi áhuga á því
að kynnast möguleikunum á
Reykjanesskaga til útivistar og
gönguferða. Þessi kjarni telur
um 60 manns sem hefur mætt í
flestar ferðirnar bæði árin.
Fyrir nokkrum árum réðust
Ferðamálasamtök Suðurnesja í
gerð vandaðs gönguleiðakorts
auk þess sem helstu göngu-
leiðir voru stikaðar. Svæðið er
því orðið aðgengilegra fyrir
þá sem hafa áhuga á að kynn-
ast því. Margir þátttakendur í
gönguferðunum eru að mæta
í fyrsta skipti og segist Rann-
veig sníða ferðirnar með það
fyrir augum að fólk geti í fram-
haldinu farið að ganga um
svæðið á eigin spýtur.
Sem fyrr segir eru tvær göngu-
ferðir eftir af dagskrá sum-
arsins. Þann 29. júlí verður
gengið á Fiskidalsfjall og Vatns-
heiði. Síðasta gangan verður
svo 5. ágúst þegar umhverfi
Reykjanesvirkjunar verður
skoðað.
Rétt er að geta þess að ljós-
myndir úr öllum gönguferð-
unum má finna á ljósmynda-
vef Víkurfrétta á vf.is.
Góð aðsókn í gönguferðir
Nestisstopp í kvöldsólinni við
Reykjanesvita. Óhætt er að segja
að vel hafi viðrað til gönguferða
í sumar.