Víkurfréttir - 20.08.2009, Qupperneq 4
4 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 33. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt.
710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn
og auglýsingar:
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamaður:
Ellert Grétarsson,
sími 421 0004, elg@vf.is
Auglýsingadeild:
Gunnar Einarsson,
sími 421 0001, gunnar@vf.is
Útlit, umbrot og prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Þorsteinn Kristinsson,
sími 421 0006, steini@vf.is
Þórgunnur Sigurjónsdóttir,
sími 421 0011,
thorgunnur@vf.is
Skrifstofa Víkurfrétta:
Rut Ragnarsdóttir,
sími 421 0009, rut@vf.is
Aldís Jónsdóttir,
sími 421 0010, aldis@vf.is
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og kylfingur.is
Afgreiðsla Víkurfrétta
er opin alla virka daga frá
kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga
er opið til kl. 15.
Með því að hringja í síma
421 0000 er hægt að velja
beint samband við auglýsingadeild,
fréttadeild og hönnunardeild.
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRINGINN ER
Í SÍMA 898 2222
VÍKURFRÉTTIR EHF. Umferðar- og öryggis-átak í Reykjanesbæ hefst
með formlegum hætti mánu-
daginn 25. ágúst en þá hefst
skólastarf af fullum krafti
og margir ungir vegfarendur
stíga sín fyrstu skref í umferð-
inni. Umhverfis- og skipu-
lagssvið stendur að átakinu
í samstarfi við Lögregluna
á Suðurnesjum en markmið
þess er að vekja almenning
til umhugsunar um unhverfi
sitt og umferðarmenningu.
Að sögn Guðlaugs H. Sigur-
jónssonar framkvæmdastjóra
umhverfis- og skipulagssviðs
Reykjanesbæjar hefur átakið
verði haldið árlega frá árinu
2004 og gefið góða raun. „Það
er mikilvægt að vekja alla íbúa
til umhugsunar um umferðar-
öryggi og í takt við slysalausa
Umferðarátak í umhverfi skóla við upphaf skólastarfs:
Mikilvægt að foreldrar fari yfir
skólaleiðina með börnum sínum
framtíðarsýn bæjarins sem
snýr að öruggari samgöngu-
leiðum, betri merkingum á
umferðargötum og öruggari
ökumönnum. Þær leiðir sem
hér hafa verið farnar m.a. að
draga úr hraðaakstri í íbúða-
hverfum og við gönguleiðir
og ókeypis strætisvagnar hafa
dregið verulega úr slysahættu í
umferðinni.“ Guðlaugur segir
ennfremur að sérstök áhersla
verði nú sem endranær á skóla-
hverfi og verður það gert með
góðri samvinnu við Lögregl-
una á Suðurnesjum. Að sögn
Skúla Jónssonar aðstoðaryfir-
lögregluþjóns hefur Lögreglan
á Suðurnesjum ávallt lagt
mikla áherslu á eftirlit við skól-
ana í umdæminu og er engin
undantekning þetta árið. „Það
er mikilvægt að foreldrar fari
yfir leiðina sem börnin fara
í skólann eða hvernig nota á
strætó. Einnig er mikilvægt
að allir séu með endurskins-
merki enda bráðum myrkur
á morgnana. Við hvetjum
svo ökumenn til þess að sýna
varúð við skólana og að þeir
sýni gangandi vegfarendum
tillitssemi.“
Átakið stendur til 8. septem-
ber og verður lögregla með
vakt í öllum skólahverfum.
Sandgerðisdagar verða haldnir hátíðlegir dag-
ana 27. - 29. ágúst næstkom-
andi. Sandgerðisdagar eru
fjölskylduhátíð bæjarbúa í
Sandgerði og bjóða Sandgerð-
ingar gesti velkomna í bæinn
til að taka þátt í herlegheit-
unum með sér.
Miðvikudaginn 26. ágúst
verður skólasetning Grunn-
skólans í Sandgerði auk þess
sem nýtt skólahúsnæði verður
vígt. Um kvöldið verður róleg
kvöldstund í safnaðarheimil-
inu með Lundi og hljómsveit-
inni Klassart úr Sandgerði.
Á fimmtudagskvöldinu verður
hin margumtalaða Loddu-
ganga, ganga fyrir fullorðna
með Helga og Bigga, Aftan
festival hópurinn stendur fyrir
tónleikum á Vitanum og uppi-
stand á Mamma mía.
Formleg setning hátíðarinnar
verður í Safnaðarheimilinu
föstudagskvöldið 28. ágúst kl.
20.00 þar sem tónlistarfólk
úr Sandgerði og fleiri flytja
fagra tóna og önnur skemmti-
legheit. Litaglaðir bæjarbúar
skreyta hús sín og götur en
hverfum bæjarins hefur verið
skipt upp eftir litunum gulur,
rauður, grænn og blár.
Laugardaginn 29. ágúst verður
mikið um að vera. Meðal ann-
ars verður hverfakeppni í lit-
bolta, markaðstjald, ýmsar
uppákomur í Púlsinum, lista-
sýningar, dorgveiðkeppni,
Sandgerðistuddinn, hæfileik-
arík börn úr Sandgerði leika
og syngja, auk þess sem Skíta-
mórall mætir á svið og tryllir
lýðinn.
Götu- og hverfagrill eru fastur
liður í hátíðinni fyrir kvöld-
skemmtunina og lýkur með
hverfagöngu að hátíðarsvið-
inu.
Um kvöldið heimsækja okkur
góðir gestir, kveikt verður í
varðeldi og harmonikufélagið
leikur fyrir gesti. Hápunktur
kvöldsins verður þegar Hobbit-
arnir úr Sandgerði spila fyrir
bryggjuballi þar til dagskrá
lýkur á hátíðarsviði með
sprengjum og eldingum að
hætti björgunarsveitarinnar
Sigurvonar úr Sandgerði.
Eftir dagskrá á hátíðar-
sviði taka við skemmtanir á
skemmtistöðum bæjarins,
Mamma mía og Vitanum auk
þess sem Skítamórall leikur
fyrir dansi í Samkomuhúsinu.
Frekari upplýsingar er hægt
að nálgast á www.sandgerdis-
dagar.is og á www.245.is.
Sandgerðisdagar 28. til 30. ágúst nk.:
Bæjarhátíð Sandgerðis undirbúin