Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.10.2009, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 01.10.2009, Blaðsíða 2
2 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 39. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR Láttu ekki veturinn koma þér á óvart! · Eru dekkin í lagi? · Eru perurnar í lagi? · Eru rúðuþurrkurnar í lagi? · Er rafgeymirinn í lagi? · Er búið að smyrja? SÍMI 440 1372 WWW.N1.IS Meira í leiðinni N1 HJÓLBARÐA- OG SMURÞJÓNUSTA, GRÆNÁSBRAUT, 235 REYKJANESBÆ Renndu við á N1, hjólbarða- og smurþjónustu, Grænásbraut. Þú færð góðar móttökur alla virka daga frá 8 til 18. Gott úrval af hjólbörðum og felgum Láttu okkur geyma dekkin fyrir þig á dekkjahóteli N1 Kona sem var hand-tekin á sunnudag fyrir að stinga fimm ára stúlku í brjóstið í heimahúsi í Keflavík hefur viðurkennt verknaðinn í yfirheyrslu hjá lögreglunni. Lögreglu- stjórinn á Suðurnesjum krafðist gæsluvarðhalds yfir konunni fyrir Héraðsdómi Reykjaness á mánudag og var hún úrskurðuð í viku gæsluvarðhald. Jafnframt var úrskurðað að kröfu lög- reglustjóra að hún skyldi sæta geðrannsókn. Lögreglan á Suðurnesjum var kölluð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja kl. 12:01 á sunnu- dag eftir að 5 ára gömul telpa hafði verið flutt þangað til að- hlynningar vegna hnífstungu í brjóstið. Ti ldrög hnífstungunnar munu hafa verið þau að telpan fór til dyra á heimili sínu þegar bankað var á úti- hurðina. Þegar hún opnaði dyrnar mun hafa verið lagt til hennar með hnífi þannig að hún hlaut eitt stungusár á brjóst. Foreldrar telpunnar voru heima og fluttu hana þegar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Fljótlega beindist grunur að 22 ára gamalli konu og var hún handtekin á heimili sínu skömmu síðar og gekkst hún við verknaðinum við yfir- heyrslur hjá lögreglu. Hnífur sem talið er að konan hafi notað við verknaðinn fannst í sorptunnu við heimili hennar. Eftir læknisaðgerð á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja var telpan flutt á Landspítal- ann í Reykjavík til eftirlits og mun henni heilsast vel eftir atvikum. Tillaga stjórnar Eignar-haldsfélags Suðurnesja að ráðstafa 150 milljónum króna til atvinnumála á Suðurnesjum var samþykkt á aðalfundi félagsins í vik- unni. Næsta verk stjórnar Eignarhaldsfélags Suður- nesja verður að móta sér reglur sem hafðar verða til viðmiðunar við útlutun til verkefna. Þegar regluverkið liggur fyrir verður ráðist í að auglýsa eftir verkefnum til að lána til, styrkja eða til hlutafjárkaupa. Eignarhaldsfélag Suðurnesja er í 70% eigu ríkisins og Byggða- stofnunar, 20% í eigu sveitar- félaganna á Suðurnesjum og 10% í eigu Lífeyrissjóðsins Festu og annarra fagfjárfesta. Þriggja bíla árekstur Þriggja bíla árekstur varð á gatnamótum Hafnargötu og Ránargötu í Grindavík á mánudagsmorgun. Einn ökumaður var fluttur til skoðunar á sjúkrahús með sjúkrabíl. Töluverðar skemmdir urðu á bílunum. Reykjanesbær tekur 213 m.kr. lán Reykjanesbær ætlar að taka 213 milljóna króna lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga til að endurfjármagna af- borganir á lánum bæjarins hjá lánasjóðnum. Bæjarráð samþykkti þetta á fundi sínum á fimmtudaginn. Lánið er til 15 ára. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins. Úttekt á aðild RNB að Fasteign Gerð verður sérstök úttekt á aðild Reykja- nesbæjar að Eignarhaldsfé- laginu Fasteign. Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum að gera samning við Capacent ráðgjöf um verkefnið en fyrir lá tillaga frá Capacent varðandi nálgun að því. Bæjarráð verður tengiliður Capacent við vinnslu verkefnisins. Gæsluvarðhald og geðrannsókn Veita 150 milljónum kr. til atvinnulífsins á Suðurnesjum

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.