Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.10.2009, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 01.10.2009, Blaðsíða 8
8 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 39. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR Formleg vígsla á heilsu-leikskólanum Háaleiti og Háaleitisskóla á Ásbrú í Reykjanesbæ fór fram að loknum íbúafundi bæjar- stjóra í skólanum sl. mánu- dagskvöld. Það kom í hlut Kjartans Þórs Eiríkssonar, framkvæmdastjóra Þróunar- félags Keflavíkurflugvallar, að afhenda Eiríki Her- mannssyni, skólamálastjóra Reykjanesbæjar, lyklavöld að skólabyggingunni þar sem leikskólinn Háaleiti og Háa- leitisskóli eru undir sama þaki. Háaleitisskóli er rekinn sem útibú frá Njarðvíkurskóla en sumarið 2008 voru gerðar breytingar á fyrrverandi skóla- húsnæði grunnskóla Varnar- liðsins á Keflavíkurflugvelli og sett þar á stofn grunnskóla- deild fyrir yngri nemendur sem eiga heima á Ásbrú. Nemendur eru nú 81 talsins, í 1.-6. bekk. Deildarstjóri er Sigfríður Sigurðardóttir en skólinn starfar undir stjórn skólastjóra Njarðvíkurskóla með sömu skólanámskrá og sambærilegt kennslu- fyrirkomulag og þar er. Háaleitisskóli hefur yfir að ráða 8 kennslustofum, kennslustofu fyrir hljóð- færanám og forskóla í Tón- listarskóla Reykjanesbæjar, íþróttasal til hreyfikennslu, sérgreinastofum, fjölnota sal auk stjórnunarrýmis, aðstöðu sérfræðinga fræðslu- skrifstofu Reykjanesbæjar og skólahjúkrunarfræðings. Heilsuleikskólinn Háaleiti er sjálfstætt starfandi skóli, rekinn af Skólum ehf. samkvæmt þjónustusamn- ingi við Reykjanesbæ. Leikskólinn starfar eftir Heilsustefnunni og stefnir að því að verða Heilsuleikskóli. Háaleiti er þriggja deilda aldursskiptur leikskóli og er staðsettur á háskólasvæðinu Ásbrú. Þrjár deildir eru í leik- skólanum og geta þar dvalið allt að 80 börn samtímis. Mikil þátttaka var í Reykjanes-göngu-ferðum sumarsins, gengu yfir 600 manns um Reykjanesskagann í tíu göngu- ferðum frá 20. maí - 5. ágúst. Til að fagna skemmtilegu sumri og fallegu hausti verður blásið til haustlitagönguferðar um Þingvelli laugardaginn 3. október, ef veður leyfir. Gengið verður um fallegt umhverfi þing- valla. Þingvellir eru sögufrægur staður, þar var Al- þingi stofnað árið 930 og kom þar saman til ársins 1798. Meginviðburðir Íslandssögunnar hafa gerst þar, t.d. kristnitakan árið 1000 og lýðveldis-stofnunin árið 1944. Á Þingvöllum eru jafnframt náttúruundur á heimsvísu. Þingvallasvæðið er hluti flekaskila Atlants- hafshryggjarins sem liggja um Ísland og þar má sjá afleiðingar gliðnunar jarðskorpunnar í gjám og sprungum. Þjóðgarðurinn á Þing- völlum er elsti þjóðgarður Íslendinga. Skráning fer fram í síma 420 6000. Gangan tekur 2-3 klst og er við allra hæfi. Lagt verður af stað frá SBK Grófinni 2, laugar- daginn 3. október kl. 10:00 og komið til baka fyrir kl. 17:00. Kostnaður kr. 2000. Leiðsögumaður verður Rannveig L. Garðars- dóttir. Formleg skólavígsla á Ásbrú Leikskólinn Háaleiti og Háaleitisskóli afhentir Reykjanesbæ Reykjanesgönguferð um Þingvelli Eiríkur Hermannsson skólamálastjóri Reykjanesbæjar afhenti Sigfríði Sigurðardóttur forláta skólabjöllu í tilefni dagsins. Eins og sjá má á bakkelsinu þá var það á amerískum nótum. Hér til hliðar má svo sjá gesti í sal skólans. Myndir: Hilmar Bragi Eiríkur Hermannsson, skólamálastjóri Reykjanesbæjar, tekur við lyklum frá Kjartani Þór Eiríkssyni, framkvæmdastjóra Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.