Víkurfréttir - 01.10.2009, Page 6
6 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 39. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Dagur læsis var 8. sept. en markmið hans er að vekja athygli á mikilvægi læsis og hvetja til auk-
ins lestrar. Í tilefni af þessum degi munu Víkurfréttir birta framhaldssögu í átta köflum fyrir börn
og er nú komið að fjórða kafla. Sagan fjallar um Jónsa fréttaritara og ævintýri hans og er birt í
samvinnu við Alþjóðasamband fréttablaða, – WAN, World Assocaiation of newspapers and news
publishers, sem gengst fyrir því að blöð geti birt árlega sögu fyrir börn í tilefni af degi læsis.
Jónsi fréttaritari
4. kafli. Ráðgátan í horninu
Útgáfuhópurinn gaf út fyrsta eintakið af fréttablaðinu sínu en komst brátt að raun
um að það vantaði ritstjóra. Konni maríubjalla
slóst í hópinn.
„Það lítur út fyrir að þeir hafi
byggt nýtt stórt hreiður í útjaðri
bæjarins, rétt hjá garðinum,“ sagði
Rikki til að útskýra nýju fréttina
fyrir Jónsa.
„Hvers konar hreiður?“ spurði Jónsi.
„Bláþröstur sagði mér að allan daginn aki risa-
stórir vörubílar, hlaðnir ávöxtum, inn í hreiðrið
en ...“ og hér þagnaði Rikki til að leggja áherslu á
framhaldið, „á kvöldin snúi þeir til baka ... tómir.“
„OK, ég geng í að kanna málið,“ sagði Jónsi og
bjóst til að leggja af stað til að rannsaka þessa nýju
frétt.
„Farðu gætilega, lambið mitt,“ kallaði Kata á eftir
honum
„Geri það, gamla mín,“ kallaði Jónsi til baka og
var horfinn.
Skyndilega gaf Maggi margfætla frá sé einkenni-
legt hljóð. „Neee... hva... uuhh,“ stundi hann upp
og starði á eitthvað skrýtið sem hékk niður úr
einu horninu í herberginu. Það var grænt og glans-
andi og leit helst út eins og baunabelgur. Allir
komu hlaupandi til að sjá það sem Maggi hafði
fundið.
„Hvað í ósköpunum er nú þetta?“ spurði Matta.
„Hef ekki hugmynd um það,“ sagði Kata, sem
aldrei þessu vant hafði ekki skýringu á reiðum
höndum, þrátt fyrir sína köngulóarkænsku. Það
gerði málið enn dularfyllra í augum hinna í útgáfu-
hópnum.
„Ég veit, við skulum spyrja Lenu lirfu,“ stakk Maggi
margfætla upp á. „Hún er svo klár, ég þori að veðja
að hún veit það.“ Hann leit í kringum sig á hina í
hópnum en tók þá eftir því að Lena var horfin.
„Hvert fór hún?“ spurði Matta. „Það er ekki eins
og hún geti fallið inn í umhverfið og horfið eins
og ég!“
„Og lirfur eru heldur ekki mjög fráar á fæti,“ bætti
Konni við.
„Rikki, ég er með verkefni handa þér,“ sagði Kata
og kallaði mauraliðið yfir að vefnum sínum.
„Já, frú mín,“ sagði Rikki og heilsaði að her-
mannsið að vanda.
„Vilt þú og vinir þínir fara og leita að Lenu í
trénu?“ spurði Kata.
„Ekkert sjálfsagðara, frú mín, en ertu viss um að
þú viljir ekki að við förum og finnum meiri pappír
í næsta tölublað af Flugu á vegg?“ spurði hann.
„Hreint ekki!“ svaraði Maggi margfætla. „Við
eigum nógan pappír í 10,000 blöð!“
Um leið dreifðu Rikki og lið hans sér um tréð til
að leita. Allir fylgdust með þegar þeir þustu út á
greinarnar.
Meðan þeir voru að leita sneri Jónsi aftur úr rann-
sóknarleiðangri sínum. „Hvað gengur á hjá maur-
unum?“ spurði hann.
„Ja, það vex eitthvað furðulegt þarna í horninu,
við ætluðum að spyrja Lenu hvað það væri en þá
var hún horfin,“ svaraði Kata, „svo að við báðum
maurana að hjálpa okkur að finna hana.“
„Hamingjan góða,“ sagði Jónsi, „hvað eigum við
að gera?“
„Við skulum fara að vinna að næsta blaði,“ svaraði
Konni. „Ætli hún hafi ekki bara hringað sig saman
og fengið sér blund einhverstaðar, hún kemur víst
nógu fljótt til að argast í öllum. Og vinnan við
fréttirnar verður að hafa sinn gang!“
„Jæja, Jónsi, hvað fannstu?“ spurði Maggi marg-
fætla.
Jónsi tók ákafur upp minnisbókina sína til að
deila sögunni með hinum. „Fyrst af öllu fór ég inn
í stóra silfurlitaða og glansandi hreiðrið. Ég settist
á vegg og fylgdist með fundi nokkurra manna í
skrautlegum fötum. Ég reyndi að sitja alveg kyrr,
alveg eins og þið kennduð mér,“ sagði Jónsi og
kinkaði kolli í áttina til Möttu og Matta kinkaði
kolli í viðurkenningarskyni. „Og í þetta skipti sat
ég kyrr og hlustaði á allt samtalið.“
Jónsi fletti með hægð í gegnum blokkina sína og
rýndi í minnispunktana.
„Áttu erfitt með að lesa skriftina þína?“ spurði
Matta og beið eftir að hinir færu að hlæja.
„Hann kann þó að minnsta kosti að skrifa!“
hreytti Maggi margfætla út úr sér í áttina að
Möttu. „Haltu áfram Jónsi og segðu okkur sög-
una.“
„Já, ég komst að því að þessi bygging er alls ekki
hreiður. Hún er kölluð verksmiðja og þar er búin
til ... getiðið hvað ... þar er búin til ... og hlustið
þið nú vel...“
Matta þoldi ekki spennuna lengur og hrifsaði
minnisbókina af Jónsa og hrópaði: „ÁVAXTA-
SULTA!“
Allur útgáfuhópurinn missti sig í fagnaðarlátum
því öll skordýr vita að sultuverksmiðju fylgir fullt
af ávaxtaúrgangi, sem er uppáhaldsfæða allra
skordýra.
„Ég ætla að fara að vinna!“ tilkynnti Maggi og
Kata sótti sér nýjan kassa af plástrum.
Jónsi las glósurnar sínar fyrir Magga en hélt sér
í hæfilegri fjarlægð frá iðandi örmum hans og
oddhvössum hlutum. Eftir nokkrar mínútur og
tvö minni háttar meiðsli var Maggi búinn með
forsíðuna. Meðan Konni var að lesa söguna yfir
komu maurarnir til baka úr leitarleiðangrinum og
vonsviknir á svip.
„Við leituðum alls staðar!“ sagði Rikki mæðulega.
„Hún kemur örugglega aftur,“ sagði Jónsi og klapp-
aði á öxlina á Rikka. „Takk fyrir að reyna að finna
hana.“
„En nú við þurfum að koma út blaðinu!“ sagði
Kata. „Eruð þið til í að dreifa því aftur?“
„Heldur betur, frú mín,“ sagði Rikki ákveðinn.
„Komum maurar!“
„Kata,“ sagði Jónsi þegar maurarnir voru farnir.
„Ég hef áhyggjur af Lenu, geturðu ímyndað þér
hvert hún hefur farið?“
Höfundur texta: Cathy Sewell, Myndir: Blaise Sewell
Styrktaraðili: The Curriculum Closet (www.curriculum close.com)
Þýðing: Starfsmenn við Háskólann á Akureyri.
Endurprentað í samvinnu við World Association of
Newspapers and News Publishing og með leyfi The
Curriculum Closet Productions Inc. Öll réttindi áskilin.
Þá er októbermánuður skollinn á. Hann er einna
frægastur fyrir hið svokallaða oktober-fest. En það
er bjórfestival sem á rætur sínar að rekja til
Þýskalands.
Mikil stemming og skemmtun ríkir ávallt á þessari
hátíð hvar sem er í heiminum sem hún er haldin.
Skemmtistaðurinn Deluxe ætlar að vera með
sérstakt Oktober-fest tilboð í gangi fyrir
vinnustaði og aðra hópa í október. Veittur verður
40% afsláttur af bjór hvort sem keyptir eru heilir
kútar eða stakir drykkir.
Þetta tilboð verður í gangi alla miðvikudaga, fimmtudaga og
föstudaga í október. Allar nánari upplýsingar og bókanir veitir
Atli í síma 862-0700 eða atli@zax.is
léttöl
40% afsláttur á