Heima og erlendis - 01.10.1951, Síða 4

Heima og erlendis - 01.10.1951, Síða 4
Eftir aö eg liafÖi bú* sett mig hér, varÖ Yal- týr stundum á vegi mín- um, einkum á fundum í Dansk-Isl. Samfund. Hann sótti aÓ jafnaói fundi |)ess, og virtist hafa mikinn áhuga fyrir |>eim félagsskap. þegar frú Astrid Stampe Fed- dersen liaföi skrifaÖ í Hojskolebladet um stofnun félagsskapar meÖ- al Islandsvina hér, til aukinnar þekkingar á íslandi, menning þess og bókmenntum, skrifaÖi Yaltýr henni og þakkaÖi samúÖ og áhuga hennar fyrir íslandi. Mig furÖaði oft á því, aÖ rekast aldrei á Yaltý á fundum íslendingafélags og eg hygg aó hann hafi ekki verið félagi þar eftir 1918 því eg hefi ekki fundið nafn hans í hókum félagsins, og ekki minnist eg þess, aö sljórn félagsins hafi nokkurn tíma farið bónarveg til lians, vióvíkjandi fundarefni. En ástæÖ- una til þessa þekki eg ekki. Aftur sá eg hann á fundi Stúdentafélagsins, og þar tal- aöi hann einu sinni, svo eg muni. Skömmu eftir aÖ eg haföi sent frá mér 1. thl. af „17. júní“, sendi Yaltýr mér svohljóð- andi hréf: „Eg þakka yður fyrir blaÖ yðar „17. júní“, sem byrjar vel. Greinarnar stuttar og efniÓ marghreytt og komiö við margt, sem um- ræöu er vert. MáliÖ líka yfirleitt gott (þó fáein dönskuskotin orö), en stafsetningu tals- vert ábótavant allvíÖa. þér ættuð aÓ fá ein- hvern (t. d. Björn þórólfsson) til að líta yfir eina próförk. Búningurinn hefir mikla þýð- ingu fyrir orðstír hlaÖsins og álit, og því vert aÖ vanda hann jafnframt efninu. jiað borgar sig“. Mér þótti vænt um þetta hréf Valtýs, datt síst í hug aÖ hann færi aÖ skrifa mér um blaðiÖ, og allra síst aÖ lofa það. Einhverju sinni spurði Vallýr mig að því, hvort eg treysti mér ekki til þess, aö gefa út blað um Island á dönsku. ViÖ ræddum þetta nokkuÖ, en eg sagðist ekki treysta mér til þess. þaÖ sem réði baggamuninum hjá mér var málið og svo auðvitaÓ fjárhagshliö útgáfunnar. En Valtýr haföi trú á þessu. Valtjr var skemmtilegur heim aÖ sækja, l)látt áfram í framkomu allri. Hann hjó lengst af Amagerhrogade lól (Sundborg) en á sumrin bjó hann í Charlottenlund. Um og eftir aldamótin síðustu, var Valtýr illa séður í íslenzkum stjórnmálum, einkum meðal stúdenta hér, og 5. janúar 1905 var honum vikið úr Stúdentafélaginu. þetta mæltist þó illa fyrir og nokkrir stúdentar og meðal þeirra Finnur Jónsson, stofnuöu nýtt félag og nefndu þaÖ „Kára“, en Valtýr gerðist aldrei félagi þar. Aldrei heyrði eg Valtýr nefna Finn eða Boga Melsteð, en þá er eg baÖ hann aÓ skrifa um Sigfús Blöndal í „17. júní“, tjáöi hann sér ljúft aÖ gera það. Af liinum eldri íslenzku fræðimönnum, er hér hafa orðið á vegi mínum, þótti mér vænst um Valtýr og eg tel hann hafa verið gáfaðastann þeirra. En hann var svo víð- faðma, haföi svo mörg járn í eldinum, aö mörg þeirra hlutu að brenna. Valtýr óskaði þess, aÖ jarðneskar leyfar hans yrðu lluttar til Islands og þar var líka kona hans jörÓuÓ. ViÖ útför hans í Reykja- vík orti þ(orsteinn) G(íslasonl) fögur ljóð og eru þessi erindi þaðan: Ur fátækt ungur hóf hann hug og hafði vilja, þor og dug og sterka þrá það starf aó fá, aö vekja landsins lýÖ. Og hyggið að, hvar okkar þjóÖ á æskudögum manns þess stóð, hve margt er breytt, úr mörgu greitt, sem stóö þá fyrir fast. Og vitið, þaó er víst, hann er einn vegryðjandi landsins hér. Menn hljóta lof og last um of. En dæmið dána rjett. þorf. Kr. SigríÖur Jónsdóttir, gift Nielsen. Haustiö 1867 lagói ung stúlka frá IsafirÓi upp í fyrstu utanför sína. Hún tók sér far meÖ seglskipi og velltist á hafi í fullar 7 vikur, eöa eins margar vikur og menn nú fara á tímuin loftleiðina til Reykjavíkur. Af fööur sínuru hafÖi hún fengið 20 kr. til fararinnar, og þóttu miklir peningar þá.

x

Heima og erlendis

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima og erlendis
https://timarit.is/publication/1100

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.