Fagnaðarboði - 01.01.1948, Side 4
4
FAGNAÐARBOÐI
Hvað lest þú?
£g er fæddur og uppalinn í sveil, og var
þar þá siður að ailir sem gátu voru látnir fara
lil sjós á veturna. Ég var seylján ára þegar
ég l'ór í fvrsta sinn lil sjóróðra. Ég man
þegar mamma var að taka til fötin min að
hún vælli þau flesl i tárum sínum. Eg skildi
það ekki þá eins og ég skil það nú, hvað hún
leið yfir að ég og bróðir minn fórum til sjós,
sem við hræðurnir gei’ðum i nokkur ár.
Þegar ég kvaddi mömmu í fyrsta sinn,
sagði hún við mig, að það væri siður þegar
væri farið á sjó, að lesa sjóferða bæn, cn ég
veit að þú kannt enga sérstaka sjóferðabæn,
en mundu að lesa einhverja góða bæn og fela
þig Guði.
Svo þegar ég kom heim um vorið og var
háltaður um kvöklið kom mamma lil min og
spurði mig: „Ilvað lastu þegar þú fórst á sjó-
inn.“ Ég sagði henni að ég Iiefði lesið sign-
inguna og Faðir vorið, og fann ég að henni
líkaði það vel, og það létti af henni miklum
áhyggjum.
Ég fór nú að verða svo stór með mig og
hugsaði ekki um að líf og heilsa er gefið fyr-
ir náð Drottins. Ég hætli að lesa bænir og
hugsa yfirleitt um Guðs vegu, i mörg ár. Ég
þjáðist í synd og af synd, en Guð var sá hinn
sami. Hann var miskunsamur og ég hef feng-
ið að lieyra, sjá og þreifa á almætti Drottins.
Ég sein las ekki Guðs Orð í mörg ár, hef
gengið Guði á hönd og má hvern einasta dag
eta og drckka við náðarborð Drottins. Ég hef
fundið þar liinn himneska frið fyrir Nafn
•lesú Krists og ég veit að Hann er mihn Frels-
ari. Hann hefir keypt mig með blóði sínu frá
syndinni.
Ég les nú söguna um Jesú, þá einustu sögu,
sem allir ættu að lesa og læra. Þú sem sérð
þcssar linur, lest þú söguna um Jcsú? Ef ekki,
])á skipt um skjótt, því tíminn er naumur.
Endurkoma Jesú Krists er fvrir dyrum til
að vitja sinna. Guð gcfi öllum náð til að vera
i fylgdinni með Jesú, fagna og gleðjast yfir
endurkomu Hans.
I dag við skulum skipta um skjótl,
skal synd á flótta rekin.
Ilver veit ncma sé nú i nótt
náðin i burtu tekin? H. P.
Frímann Ingvarssoit.
Hefir þú séð?
Hefir þú séð, að Jesús Kristur kom i heiin-
inn til að veita þér eilift líf?
Hefir þú séð Ilann samkvæmt Ritningun-
um, hangandi á krossinum, lil þcss að afmá
heift dauðans? Svo að þú og ég, ættum hlut-
deild i Guðlegu eðli, fyrir trúna á Soninn,
sem liefur búið öllum sem á Hann trúa, eilíft
réttlæti. Með endurfæðingunni gefst það.
Ef maðurinn fæðist ekki af vatni og Anda,
g'elur liann ekki komist inn i Guðsríkið. Jóh.
3, 5.
Eftir ráðsályktun sjálfs sin fæddi Ilann oss
með sannleiksorði, til þess að vér skyldum
vcra nokkurs konar frumgróði skepna Hans.
Jak. 1, 18.
Hefir þú heyrt?
Ilefir þú licyrl að Jesús Kristur býður þér
lil hcilagrar samvistar við sig, með endur-
lausninni, cr Hann hefir búið þér með fvrir-
gefningu syndanna.
Þigg samvistina. Meðtak hans frið í dag.
Ilans eilifi friðarfaðmur stendur þér opinn.
Þegar þú ert þangað kominn, mun Hann segja
þér, hvað þú átt að gjöra, þvi Hann kom i
heiminn, sem ljós heimsins, til að upplýsa
hvcrn mann.
Ef við tökum manna vitnisburð gildan, þá