Víkurfréttir - 28.10.2010, Blaðsíða 6
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 42. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR6
VÍKURFRÉTTIR EHF.
Afgreiðsla Víkurfrétta
er opin alla virka daga frá
kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga
er opið til kl. 15.
Með því að hringja í síma
421 0000 er hægt að velja
beint samband við auglýsingadeild,
fréttadeild og hönnunardeild.
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRINGINN ER
Í SÍMA 898 2222
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf.,
kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn
og auglýsingar:
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík,
sími 421 0000
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamaður:
Ellert Grétarsson,
sími 421 0004, elg@vf.is
Auglýsingadeild:
Gunnar Einarsson,
sími 421 0001, gunnar@vf.is
Útlit, umbrot og prenvistun:
Víkurfréttir ehf.
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Þórgunnur Sigurjónsdóttir,
sími 421 0011,
thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson,
steini@vf.is
Skrifstofa Víkurfrétta:
Rut Ragnarsdóttir,
sími 421 0009, rut@vf.is
Aldís Jónsdóttir,
sími 421 0010, aldis@vf.is
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og kylfingur.is
141 776
UM
HV
ERFISMERKI
PRENTGRIPUR
n Málefni fatlaðra til sveitarfélaganna:
Auglýsingasíminn
er 421 0001
Póstfang: gunnar@vf.is
Viltu ná til
fjöldans?
Um næstu áramót flytj-ast málefni fatlaðra frá
ríki yfir til sveitarfélaga sem
þessa dagana undirbúa við-
töku á þessu viðamikla verk-
efni. Sveitarstjórnarmenn á
Suðurnesjum ræða hvernig
best verði að þessu staðið og
virðast almennt vera sam-
mála um að gera Suðurnesin
að einu þjónustusvæði. Ljóst
er að verkefnið er nokkuð
stórt og þarf góðan undir-
búning. Komið hafa fram
áhyggjur yfir því að tíminn sé
of naumur og hættan á klúðri
yfirvofandi. Þær komu m.a.
fram á aðalfundi SSS í haust
og hjá bæjarfulltrúa Fram-
sóknar á síðasta bæjarstjórn-
arfundi í Reykjanesbæ, en
bærinn tekur yfir um 300
milljóna króna rekstur frá
ríkinu vegna málaflokksins.
Í Reykjanesbæ eru 232 ein-
staklingar sem nýta þjónustu
við fatlaða. Þá eru ótaldir þeir
sem eru á biðlistum. Um er að
ræða 97 börn upp að 17 ára
aldri og 135 fullorðna.
Alls starfa 48 manns við þjón-
ustuna í 29 stöðugildum, þ.e.
þroskaþjálfar, félagsliðar og
stuðningsfulltrúar.
Félagsþjónusta Reykjanesbæj-
ar býr sig undir að taka þenn-
an málaflokk yfir og setja inn í
sitt skipurit. Markmiðið er að
fella hann inn í þá stoðþjón-
ustu sem fyrir er og samþætta
þessi þætti.
Málefni fatlaðra munu kosta
Reykjanesbæ árlega um 300
milljónir sé tekið mið af
rekstri svæðisskrifstofunn-
ar, samkvæmt því sem fram
kom í máli Árna Sigfússonar,
bæjarstjóra, á síðasta fundi
bæjarstjórnar. Þar rakti hann
helstu tölur og varpaði ljósi
á umfang þessa málaflokks.
Þau fjögur stöðugildi sem eru
á svæðisskrifstofunni munu
væntanlega deilast á þau þrjú
félagsþjónustusvæði sem eru á
Suðurnesjum. Reykjanesbær
mun einnig taka yfir hlut rík-
isins í starfsemi Bjargarinnar
og Ragnarsseli með fjárfram-
lagi frá ríkinu, samvæmt því
sem fram kom í máli Árna. Þá
nefndi Árni þá margvíslegu
búsetuþjónustu sem verður á
könnu Reykjanesbæjar fram-
vegis. Þar er um ræða tvö sam-
býli í Lyngmóa, þjónustuíbúð-
ir í Seljudal og liðveisla. Þrátíu
manns njóta þessarar þjónustu
en 38 starfsmenn inna hana
af hendi.
Hæfingarstöðin við Hafn-
argötu kemur einnig inn í
þennan rekstur. Af 19 einstak-
lingum sem þar njóta þjónustu
eru 13 úr Reykjanesbæ. Tíu
starfsmenn eru á hæfingarstöð-
inni. Fjórtán einstaklingar
nýta atvinnu með stuðningi og
23 börn úr Reykjanesbæ eru
í skammtímavistun í Garði.
Öll þessi þjónusta færist til
Reykjanesbæjar, samkvæmt
því sem fram kom í máli Árna.
Auk þess er bærinn með 25
stuðningsfjölskyldur á sín-
um snærum sem fellur undir
þennan málaflokk.
Árni nefndi einnig biðlistana.
Átján fullorðnir og þrjú börn
eru á biðlisa eftir búsetuþjón-
ustu og sagði Árni að skoða
yrði strax hvernig þau mál
yrðu leyst. Leitað hafi verið
eftir svörum frá ríkinu varð-
andi stuðning og fjármagn. Þá
eru einnig börn á biðlista eftir
skammtímavistun.
Reykjanesbær hefur fengið
ráðgjafa til liðs við sig vegna
yfirtökunnar en sá hefur hald-
ið utan um málefni fatlaðra
fyrir ríkið. Árni sagði að móta
þyrfti stefnu um það hvern-
ig þessum málum yrði hagað
innan félagsþjónustunnar, auk
þess að ræða við forsvarsmenn
og starfsmenn í þeim stofn-
unum sem málinu tengjast.
Gert væri ráð fyrir að allir
gengju að sömu kjörum og
þeir hafi haft.
Eins og áður hefur komið fram
munu sveitarfélögin fá tekjur
með verkefninu í gegnum
skattkerfið. Útsvarið verður
hækkað en tekjuskattur lækk-
aður þannig að ekki komi til
skattahækkana.
-þegar málefni fatlaðra færast yfir til sveitarfélaga um áramót
Reykjanesbær yfirtekur
300 milljóna króna rekstur
FRÉTTIR
Ráðuneyti
styrkir listvið-
burð í Garði
Mennta- og menningar-málaráðuneytið hef-
ur ákveðið að styrkja lista-
verkefnið „Ferskir vindar í
Garði“ um 100.000 krónur.
Listaverkefnið mun standa
yfir í Garðinum í desember
og janúar næstkomandi en
þá munu tugir innlendra og
erlendra listamanna vinna
að listsköpun í Garðinum
og standa fyrir sýningum
og fræðslu um list sína.