Fagnaðarboði - 01.04.1958, Blaðsíða 7
FAGNAÐARBOÐI
7
„Evrépu-iiitvarpa.
Framháld af bls. ).
an kristninnar, og væri svo sterk, að hún næði um alla
álfuna. Stöð þessi skyldi starfa á sama hátt og „HCJB“
í Andes fjöllum. Engin efni yrðu flutt viðskiptalegs- eða
stjórnmálalegs eðlis, en dagskrárliðum skipt réttiiega
milli Biblíulegs efnis, uppfræðslu- og menningarmála.
Eftir að hafa rætt oftsinnis um þetta mál við háttsetta
opinbera ráðamenn og ráðandi menn innan kristninnar,
er hr. Broekhoven ötull í hinu margvíslega samstarfi sínu
við fjölda kirkna og trúarfélaga, sem beita sér fyrir
því, að farið er með fjölda bænalista til áskriftar í nokkr-
um löndum Evrópu. Kristnir menn, jafnt safnaðarmeð-
limir kirkna sem annarra trúarsamfélaga ,sýna áþreif-
anlega ,bæði í ræðu og riti, stuðning sinn við þetta mál-
efni og frambera þá beiðni til „The World Radio
Missionary Inc.“ að allt verði gert til þess, að koma á
fót „Evrópiskri HCJB sendistöð". Síðustu skýrslur, frá
7 Evrópulöndum, sýna, að yfir hundrað þúsund manns,
hafa þar skráð nöfn sín á bænalista. Á sama tíma er
jafnframt haldið áfram verkinu í 10—12 löndum öðrum,
og um leið keppt að því marki, að ná til viðbótar 150.000
til 200.000 áskriftum á næstu mánuðum. Samt sem áð-
ur verður „The World Radio Missionary Fellowship
Og nú spyrjið þið: „Hvernig?" og svarið er þetta:
Gangið frá öllu hinu fyrra, hinni dauðu bókstafsþjón-
ustu, eins og Páll postuli, og fyllist eldkrafti Heilags
Anda til þjónustunnar, krafti Andans er sjálfur Drottinn
framgekk í og hefir gefið ykkur fyrirheitið um.
Nýtt tímabil er að hefjast. Þegar er farið að lýsa af
nýjum degi. Nú eru spádómar Hósea að uppfyllast, er
hann talar um hið fyrra og síðara regn. Ekki aðeins
síðara regnið, vinir mínir, heldur einnig fyrra regnið,
með slíkri dýrðar-blessun, er fyllir allt í öllu, svo aldrei
hefir annað eins þekkzt fyrr á jarðríki.
Ég fékk forsmekkinn að þessu á samkomum Bran-
hams, og þar með hvarf ég að fullu og öllu frá hinum
dauðu erfikenningum. En stundin er að koma, þá er
gjafir Andans skulu falla sem blessunarskúrir í slíkum
ómótstæðilegum krafti og dýrð, að allt, sem við höfum
séð hingað til verður aðeins sem hinir fyrstu regndropar
á undan skúrinni.
Þér heilögu Drottins! Sjá, dagar dýrðarinnar eru
að koma.
Grein eftir Lennard Darbee.
(Noklcuð stytt í þýðingunni).
Inc.“ ekki háð neinum félagssamtökum né sérstökum
nefndum í Evrópu.
Kappsamlega, en þó með forsjá, halda brautryðjend-
ur Andesfjalla-stöðvarinnar áfram þessu áhættusama
verki, þessu trúarskrefi, og biðja öll Guðs börn, hvar
sem er, að sameinast í einlægri bæn til Guðs, að' Hann
greiði fyrir framgangi þessa máls, en þó aðeins, að þetta
sé samkvæmt vilja Hans. Þeir viðurkenna, að menn-
irnir eru vanmáttugir og margar óyfirstíganlegar hindr-
anir verða á veginum við slíkt risa-framtak, og því að-
eins, að ef Drottinn er í liði með þeim, sé hægt að vænta
að þessar framkvæmdir verði leiddar til farsælla lykta.
Á Ritningar Orðunum Jeremía 33, 3. byggja þeir allt
starf sitt varðandi „Evrópu-útvarp“.
Unnið er að þessu beggja megin Atlantshafsins, og
gerðar nákvæmar rannsóknir á öllu, sem viðkemur hin-
um tæknilegu og skipulagslegu atriðum, er snerta
Evrópusendistöð. Hið fyrsta sem gera þarf, er að fá
leyfi fyrir bylgjusviði og tíðni fyrir útvarpssendingar.
Foráðamenn „The World Radio Missionary Fellow-
ship, Inc.“ álíta, að einlægar og kröftugar bænir Guðs
barna, bornar fram með skilningi, séu árangursríkar og
geti borið jafn mikinn ávöxt nú 1958 varðandi „Evrópu-
útvarp" eins og þær gerðu árið 1930. Þegar verið var
að koma á stofn stöðinni „HCJB“ í Quito.
Þó nú þegar hafi náðst mikill árangur, með því að
keyptur hefir verið tími hjá útvarpssendistöðvum til
útbreiðslu Fagnaðarerindisins, þá er fullvíst, að sendi-
stöð, sem væri eingöngu til eflingar kristninnar mundi
stórlega auka áhrif og útbreiðslu Guðs Orðs meðal mill-
jóna Evrópubúa, sem hlusta á langbylgjustöðvar. Áætl-
að er, að yfir 90.000.000 viðtækja séu að jafnaði í notkun
í Evrópu, eða rúmlega þriðjungur allra viðtækja í heim-
inum. Full dagskrá, sem útvarpað væri um kraftmikla
sendistöð myndi að miklum mun auðvelda útbreiðslu
Fagnaðarerindisins til milljónanna, sem boðberar Orðs-
ins ná ekki til.
Aðalforráðamenn evangelískra trúarsafnaða og sam-
félaga í Evrópu og N.-Ameríku hafa látið í ljós mikinn
áhuga fyrir þessu fyrirhugaða „Evrópu-útvarpi“. Gerð-
ar hafa verið ráðstafanir, til þess að koma á fót í Ev-
rópu leiðbeinandi ráðum, en slík ráð eru nú þegar starf-
andi í N.-Ameríku. Haldið mun vera áfram rannsókn-
um og reynt að skýra þetta mál fyrir fólki í ýmsum
löndum og þess fastlega vænzt, að nauðsynleg leyfi fyrir
þessari útvarpsstöð fáist hjá einhverju ríki í Evrópu.
Harold Van Broekhoven,
81fl Knapp St., N. E.,
Grand Rapids 5, Michigan.